Vikan


Vikan - 14.11.1974, Blaðsíða 34

Vikan - 14.11.1974, Blaðsíða 34
— Það er undarlegt hvernig það hefur breytt mér að kynnast þér, nú hef ég eiginlega- engar áhyggjur af þessu. En mér finnst samt, að það sé heilög skylda mln, aö ráða niðurlögum þessa manns, það sé hluti af þessum franska arfi mlnum. Allt kvöldið hafði hann virst rólegur, en nú fann hún aö hann leyndi þessum ástríðum sínum. — Það er eitt, sem ég skil ekki, sagði Helen hljóðlátlega, — og það er þessi ákafi Marcels fyrir þvl, að geta sannað, að hann eigi son. I fyrstu hélt ég, að það væri vegna ástar hans á Madeleine, en ef hann hefur verið reiðubúinn til aö myrða hana, þá getur það ekki verið ástæðan. En jafnvel þá, þegar hann átti engar eignir, til aö arfleiða son sinn að, þá þráði hann þetta svona ákaft. — Það er vegna þess, að hann átti son fyrir, sagði David. — Og hann var andlega vankaður. Mar- cel gat ekki hugsað sér afkvæmi sitt þannig, það varð að vera heil- brigt barn. Eg hélt að þetta hefði runnið upp fyrir þér, að þessi vesalingur þarna niðri, sonur frú Desgranges, er sonur Marcels. og eins og sakir standa, er hann hinn eini raunverulegi erfingi Marcels. Það morgnaði snemma. Helen vaknaöi við raddir I húsagarðin- um og fann strax ilminn af kaffi. Viö hlið hennar lá David, stein- sofandi. Hann hafði hjúfrað sig upp að henni, eins og til að leita skjólsog hún hafði haldið honum i örmum sér, meðan hann svaf. Nú dreif hún sig út úr rúminu, þvoði sér og snyrti. Hún var svolitið syfjuð, enda ekki sofið mikið að undanförnu og hálf kveið fyrir að aka aftur til Frakklands. David vaknaði þegar hún var að ljúka við að greiða sér. Hún leit viö og sá að hann virti hana vand- lega fyrir sér. — Góöan dag, sagði hún, — hvernig liður þér I handleggnum. — Ég var nú bara búinn að gleyma honum, þangað til þú minntir mig á hann, sagði hann. — En nú finn ég, að þetta er eins og viðarlurkur. — Þér llður þá betur, sagði hún, — þú ert farinn að gera að gamni þlnu. — Það er ekki undarlegt, að mér líði vel. Nú veit ég hver ég er, sagöi hann. —' Allt liggur ljóst fyrir og ég elska þig! — Ég elska þig lika, sagði hún. — En hvað ætlarðu nú að gera? — Ég ætla a fund Marcels. Ekki til að drepa hann heldur til að sýna honum fram á, að hann getur ekki ráðið niðurlögum min- um. Ég ætla að fá undirskrifaða skýrslu frá frú Desgranges og þegar ég hitti Marcel, ætla ég að vera búinn að ganga frá öllu við Gautier og sjá til þess, að hann komi þessum plöggum til Debays lögregluforingja. Þegar ég er búinn að hitta Marcel, sé ég til hvað ég get gert næst. Frú Desgranges var ein i eld- húsinu, þegar þau komu niður. Hún gaf þeim kaffi og brauð, meban hún hlustaöi vandlega á þaö sem David sagði um fyrir- ætlanir sinar. Svo gerðu þau I sameiningu langa skýrslu, og Helen og frændinn, sem hafði fy.lgt þeim, skrifuðu undir sem vottar. Ég veit ekki hvort þetta er lög- legt plagg, en það er betra en ekkert. Það verður lika að vera okkur vernd gegn þessum manni. Frú Desgranges laut höfði. Hún sagði aö það væri sér mikill léttir, að vera loksins búin að leysa frá skjóðunni, þetta hefði verið erfið byröi I öll þessi ár. Hún sagðist treysta David fyrir þessum mál- um og kyssti hann móöurlega á kinnina og veitti honum blessun slna. Hún sagði að hún væri búin aö ganga svo frá, að Ramon frændi hennar æki meö þau til landamæranna, þeim veitti ekki af að hvfla sig og Ramon gæti alltaf komizt til baka með ein- hverjum vörubil. Ramon brosti hressilega til þeirra og þau voru honum mjög þakklát. Þegar þau voru um það bil að stlga upp I bilinn, hikaði David andartak, horföi á Helen, eins og hún hlyti að vita hvaö honum hefði dottið I hug og flýtti sér inn til frú Desgranges aftur. — Frú Desgranges, kallaði hann til hennar, — þetta lik þarna uppi á lofti I húsinu, dána konan, hver var hún? Frú Desgranges horfði á hann, skilningsvana. • — Hvaöa kona? sagði hun. — Hvaö eruö þér að tala um? Það var engin látin kona i húsinu. Þau fóru öll inn I eldhúsið aftur og settust viö borðiö og reyndu að írand finna einhvern botn I þetta. Það kom I ljós, að frú Desgranges hafði alls ekki farið upp á loft um kvöldið, hún hafði hreinsað her- bergin þar um morguninn. Hún hafði reyndar hreinsað allt húsið um morgurinn en aðeins komið þarna um kvöldið, til að hitta David. — Þar sem herbergið var mannlaust um morguninn, hefur þessu líki verið komið þar fyrir siðdegis, sagði frú esgranges. — En hvernig getur þá staðið á þvi, að hún var horfin um kvöldið. Einu megið þér trúa, ef þetta dauðsfall er I einhverju sambandi við yður, þá er það Marcel Carri- er, sem stendur á bak við það. Ferðin til landamæranna gekk vel. Þau gátu sofið i aftursætinu, meðan Ramon ók bilnum og þeg- ar hann veifaði glaðlega til þeirra að skilnaði við landamærin, voru þau létt i skapi. — Vertu nú kátur, sagði Helen, þegar hún settist undir stýrið og David hagræddi sér við hliðina á henni. — Það verður ekki svo langt þangað til við komum heim I rólegu borgina þina, ég get varla beöiö. Þeim fannst báðum ótrúlegt, að það væri ekki liöinn lengri timi en þetta, slöan þau lögöu upp I glæfralegt ferðalag sitt. Þau voru reyndar dauöþreytt, þegar þau óku inn á torgið og Helen stöðvaði bflinn fyrir framan hótelið og sneri sér brosandi aö David. Hún var úfin og þreytuleg, en i augum hans var hún yndisleg. Hún hafði Hka veriöhonum ómetanlegur fé- lagi I þessari örlagariku ferð. Hann lagði hönd slna á hennar og sagði: — Svona nú elskan, við skulum koma okkur inn. Hóteleigandinn stóð við dyrnar, hálf skuggalegur maöur og David heyröi ekki nafn hans, þegar hann kynnti sig. Hann kinkaöi alvar- lega kolli til þeirra, náði I lykil Davids og horfði á þau, þegar þau gengu upp stigann. — Fannst þér hann ekki hálf dularfullur? spuröi Helen. — Þaö getur verið, aö hann hafi '&J o ÞÉR SPHRIÐ STQRPÉ MEÐ PVÍflÐ KflUPR IGNIS FRYSTIRISTUR HAGKVÆMAR — VANDAÐAR — ORUGGAR 145 LTR. — 190 LTR. — 285 LTR. 385 LTR. — 470 LTR. — 570 LTR. UMBOÐSMENN UM LAND ALLT. RAFIÐJAN VESTURGÖTU II SÍMI 19294 RAFTORG VAUSTURVÖLL SÍMI 26660 34 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.