Vikan - 23.01.1975, Blaðsíða 6
Þessi mynd snart Völstadhjónin
svo mjög, aö þau ákváöu að ætt-
leiða börnin, sem hún sýnir.
Flugvél lendir, rennur spölkorn
eftir flugbrautinni, nemur staöar.
Landgöngustiginn er færöur aö
dyrunum, og farþegarnir ganga
frá boröi.
— Þarna eru þær!
Viö þetta fagnaðaróp hrökkva
langþreyttir farþegarnir við.
Ekkert er óvenjulegt viö það,
aö fagnaöarfundur verði á flug-
völlum, en þessi var einstæöur.
Maður, kona og tveir drengir hafa
gleymt öllu i kringum sig, þar
sem þau standa við landgöngu-
stigann.
Þau reka upp fagnaöaróp, þeg-
ar flugfreyjan og grannvaxin
víetnömsk kona birtast i dyrum
flugvélarinnar. Ekki vegna
kvennanna tveggja, heldur agn-
arsmárra stúlknanna, sem þær
halda á.
1 þrjú ár hafa hjónin Ruth og
Tor Völstad og synir þeirra tveir,
Torbjörn og Arnfinn, beöið þessa
augnabliks, að fá stúlkurnar tvær
til sln, fá að faðma þær að sér og
annast þær af ástúð.
Hjónunum hefur fundist þau
vera foreldrar stúlknanna
tveggja allt frá þvi þau töluðu
fyrst um að ættleiöa þær við aðal-
ritara norsku Vietnamshreyfing-
arinnar. Þá voru tviburasyst -
urnar fáeinna mánaða gamlar,
litlar og veikbyggðar verur á
barnaheimilinu Go Vap i Saigon.
Og Völstadhjónin höföu af þeim
miklar áhyggjur. Ætli þær fái nóg
aö boröa? Fá þær nægilega um-
önnun, og er þeim sýnd næg
ástúö? Biða þær ekki tjón á and-
legri heilsu sinni? Hjónin gerðu
sér vel ljóst, hvaða afleiðingar
langvinnur næringarskortur get-
ur haft.
Á flugvellinum hverfa allar á-
hyggjur þeirra eins og dögg fyrir
sólu. Börnin eru komin, og það
eitt skiptir máli.
Litla vietnamska konan,
Nguyen Kim Dung, ber ekki leng-
ur ábyrgð á stúlkunum tveimur.
Hún er að niðurlotum komin,
enda hefur hún verið á flugi i 27
klukkustundir og þurft að annast
tvær agnarlitlar og veikbyggðar
verur alla leið frá Saigon um
Nýju-Dehli ' og Kaupmannahöfn.
Börnin hafa fengiö hita á ferða-
laginu og ekki haft neina matar-
lyst. Hún þurfti að leita læknis
fyrir þær I Nýju-Dehli, og aö auki
er þetta fyrsta utanferð hennar.
En allt fór vel að lokum.
Ruth Völstad hcldur á dætrum
sinum tveimur.
Nguyen Kim Dung stigur út úr
flugvélinni og heldur á annarri
stúlkunni.
Norska og vietnamska eru alls
óskyld tungumál, en Tor Völstad
og dóttir hans viröast samt skilja
hvört annaö vel.
Fyrir þremur árum sáu norsk hjón mynd i blaði. Á myndinni
gat að lita nunnu i Vietnam halda á tveimur nýfæddum, en
munaðarlausum börnum. Hjónin ákváðu að ættleiða börnin, e
þau fengju leyfi til þess. Það tók þau þrjú ár, en nú hafa þau
eignast tvær dætur.
i
ÖRUGGRI
Af flugvellinum er haldið til
Innbjoa, þar sem amma og afi
biða eftir barnabörnunum. Þar
eiga litlu stúlkurnar að hvila sig
eftir ferðina, áður en þær halda til
nýja heimilisins sins. Þær sofna
brátt, en Torbjörn bróðir þeirra
blöur óþolinmóður eftir þvi, að
þær vakni. Hann langar til að
skipta á þeim. Arnfinni leiðist
lika biðin. Honum finnst hann
hafa beðið allt of lengi eftir systr-
um sinum.
En þeir verða að biða i nokkra
daga til viðbótar, áður en þeir fá
að annastsystur sinar. Þær verða
að vera undir eftirliti sjúkrahúss i
Stavanger fyrstu vikurnar, þvi að
þær eru óvanar norskum mat, og
þess vegna er hætta á þvl, aö þær
verði veikar i maga fyrst i stað.
Völstadhjónin eru aðdáunar
verð. Hún er fjörutiu og eins árs
og hann átta árum eldri. Þau hafa
ættleitt tvö erlend og foreldralaus
börn áður, Arnfinn er griskur aö
Synir frá Kóreu og Grikklandi,
dætur frá Vietnam. Arnfinn held-
ur á Astrid og Torbjörn á Magny.
uppruna og Torbjörn er kórversk
ur. Og nú bætast tvær þriggja ára
vtetnamskar dætur i systkinahóp-
inn. Og heimilisfaðirinn er blind-
ur, missti sjónina og þrjá fingur I
slysaskoti árið 1951, en hann
missti ekki móðinn þrátt fyrir
þaö. Að visu var hann vondaufur i
fyrstu, en svo kynntist hann Ruth,
gejik I verslunarskóla og rekur nú
nýlenduvöruverslun. Og nú er
hann fjögurra barna faðir.
Ættleiðingar þeirra hjóna hafa
kostað þau mikiö erfiði og fjár-
muni. Samkvæmt norskum lög-
um um ættleiðingar, er fötluðu
fólki ekki leyfilegt að ættleiöa
börn, nema með sérstakri undan-
þágu, og hún er örsjaldan veitt.
Skriffinnskubákniö er ekki þess
6 VIKAN 4. TBL.
4. TBL. VIKAN 7