Vikan - 23.01.1975, Qupperneq 46
Prinsessan er starfí
hjúkrunarkona
Christina sviaprinsessa er ekki
eina prinsessan, sem fengið hefur
sig fullsadda á konunglegu um-
stangiogfengiBsér „almennilega’
vinnu i staðinn. Marie Astrid, tvi-
tug dóttir stórhertogahjónanna
Jean og Joséphine — Charlotte af
Lúxembúrg, hefur nýlokiö hjúkr-
unarnámi og hafið störf sem
hjúkrunarkona. Hjúkrunarnámið
stundaði hún við Sacré Coeur
sjúkrahúsið i Lúxembdrg.
Marie Astrid þótti iðinn og dug-
legur nemi á sjúkrahúsinu, en
skólinn þar er álitinn strangur.
Mjög sjaldan eru gefin leyfi frá
skólanum og nemarnir veröa aö
vera tilbúnir til vinnu hvenær
sólarhringsins sem er..
begar Marie varð tvitug gafst
henni kostur á að halda iburöar-
mikinn dansleik i fjölskylduhöll-
inni Berg, sem er skammt utan
við höfuðborgina Lúxembúrg.
Ógiftar prinsessur og ókvæntir
prinsar i Evrópu biöu I ofvæni eft-
ir boöskortinu, en þau urðu fyrir
vonbrigöum. Marie Astrid kærði
sig ekki um neitt opinberlegt hopp
og hi — Ég er iskóla, sagði hún. —
Sjúklingar á Sacre Coeur sjúkra-
húsinu I Luxembúrg geta 'útt von
á því, aö prinsessa vekji þá á
morgnana til að mæla þá.
i faðmi fjöiskyidunnar. Frá
vinstri: Margaretha prinsessa,
Jean prins, Henri rlkisarfi, stór-
hertogahjónin, Marie Astrid
prinsessa og Guillaume prins.