Vikan

Tölublað

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 4

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 4
veislur ög móttökur hégóma einan og sóun á tíma og fjármunum, og ég neita því ekki, að það hvarfl- aði að mér sjálfri hér áður fyrr. En ég hef kynnst því, hvað þessi hlið hefur mikið að segja, miklu meira en maður gæti haldið að óreyndu. Ég hef oft séð, hvernig slaknar á spennunni og menn nálgast hver annan auðveldar við slík tækifæri. — Og þú hefur það ekkert á til- finningunni,, að þú sért bara skrautblóm I hnappagati eigin- mannsins við slík tækifæri? — Nei, þá finn ég einmitt mjög vel, að mitt framlag er metið. En við lifum ekki og hrærumst I ein- tómum veisluglaumi, þar sem menn skála við ráðstefnugesti og erlenda borgarráðsmenn eða þjóð- höfðingja, þótt fréttir , af slíku komist helst I blöðin. Slðan Birgir varð borgarstjóri, hef ég smám saman. kynnst ýmsu, sem fram fer hér I borginni, en Iitlar fréttir fara af. Hér á ég til dæmis við mjög jákvætt og uppbyggilegt starf safnaðanna, svo og félög áhugamanna á ýmsum sviðum. Mér kom á óvart, hvað það er mikið um að vera I borginni. Það er alltaf hæst haft um það, sem miður fer, og það gefur dálítið ranga mynd af borgarlífinu. — Nú verður maður^.þinn oft fyrir gagnrýni opinberlega, þar sem honum er jafnvel borin á brýn persónuleg hlutdrægni og annað miður skemmtilegt. Tek- urðu slíkt nærri þér? — Yfirleitt ekki. Ef ég kannast ekki við einstök mál, sem upp koma, þá spyr ég Birgi, og hann skýrir sín sjónarmið fyrir mér. Þerra er nokkuð, sem maður verð- ur að sætta sig við og láta sem minnst á sig fá. Sem betur fer cr ég sjálf sjaldan dregin inn I málin, þó að það hafi hent, til dæmis I sambandi við Ármannsfellsmálið. Það mál olli mér hins vegar ekki minnstu áhyggjum, af þvl ég vissi svo vel, að við áttum þar engan hlut að. — En hefurðu ekki stundum á tilfinningunni, að þú sért undir smásjá almennings, fólk sé að velta fyrir sér smáatriðum til dæm- is I klæðaburði þlnum og fram- komu? — Ég reyni auðvitað að láta slíkt ekki á mig fá, en ég veit af því. Það er ekki hægt að þóknast öllum. Mér er til dæmis kunnugt um það, að tlskustígvélin, sem ég klæddist, þegar við tókum á móti svíakóngi, kölluðu á tvenns konar viðh^ögð — bæði ,,mikið er hún smart” og ,,almáttugur, hún er I stlgvélum”. — Nú hljótið þið að hafa nokkurn samgang við borgarstjórn- armenn úr öðrum flokkum og konur þeirra. Hvernig er sam- komulagið? — Það er alveg ljómandi gott. Þó hart sé oft deilt um opinber malefni, er allt sllkt látið niður falla utan funda. Og ég kann mjög vel við marga I þessum hópi. • — Ég geri ráð fyrir þvl, að stjórn heimilisins lendi enn frekar á þínum herðum, eftir að Birgir gerðist borgarstjóri. — Já, vissulega finn ég nokkuð til þess. Starf hans er ákaflega tlmafrekt og krcfst allra hans krafta. Ég sakna dálítið þess, að við vorum vön að fara alltaf saman að versla á föstudögum til heimil- heimsækja stofnanir fyrir þroska- heft börn. Mér er sérstaklega minnisstætt heimili I Hull, en það heimili reka hjón, sem ganga börnunum I foreldra stað. — Eruð þið ekki með þeim yngri í hópi borgarstjórahjóna, sem þið hafið kynnst? — Jú, mikil ósköp, enda kemur það fólki llka oft á óvart. Vlða er það svo, að hinn opinberi borg- arstjóri hefur ekki framkvæmdar- vald, eins og hér tíðkast, heldur er þetta eins konar virðingarstaða, sem menn hljóta að launum fyrir dygga þjónustu og gegna kannski ekki nema skamman tlma I senn, og þctta eru yfirleitt vel fullorðnir menn. — Þú virðist 'nokkuð örugg I fasi við opinber tækifæri. Ertu aldrei taugaóstyrk? — Ég var afskaplega taugaóstyrk I fyrstu, en ég er nú farin að sjóast, enda höfum við þurft að taka á móti þremur þjóðhöfðingj- um, svo ég ætti eitthvað að hafa lært. Ég man ennþá mjög vel, hvað ég var óstyrk, þegar við tók- um á móti Margréti danadrottn- ingu og manni hennar. Við buð- um þeim til hádegisverðar að Kjarvalsstöðum, og slðan var okk- ur boðið til kveðjuveislunnar á snekkju þeirra.. Og þar var það, sem drottningin tók allt I einu strikið beint til mln, og ?g hugs- aði náttúrlega — hamingjan góða, isins, en til þess gefst nú yfirleitt ekki tlmi. Ég sakna sllkra stunda. Ég sakna þess líka stundum að geta ekki sjálf unriið utan heimil- isins, en það hef ég ekki gert síð- an tvíburarnir fæddust. Þær hafa sannarlega séð til þess, að ég hafi nóg að gera. — Er mikið um utanlandsferð- ir I sambandi við starf manns þlns? — Ekki kannski mikið, en við höfum ögn ferðast til annarra landa I sambandi við starfið. I sumar var okkur til dæmis boðið á Edinborgarhátlðina ásamt borg- arstjðrahjónum frá fjölmörgum öðrum löndum, jafnvel alla leið frá Ástrallu. Það var afskaplega skemmtilegt. í sömu ferð heim- sóttum við Leeds, Sheffield, Hull og fleiri staði og fengum að kynna okkur það, sem við helst vildum. Birgir kaus að kynna sér skipu- lagsmál borga, en ég fékk að 4 VIKAN l.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.