Vikan

Tölublað

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 20

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 20
Átta ára á hæsta tindi Evrópu 198 árum eftir að fjallaleið- sögumaðurinn Joseph Bal- mat kleif fyrstur manna Mont Blanc, komst Christel Boc- hatay, þrátt fyrir sín átta ár og 120 cm hæð, alla leið upp á hinn 4807 m. háa tind. Hún er þaulvön fjallaferð- um ásamt föður sínum og hefur brunað á skíðum frá 2 1/2árs aldri. Hún sagði blaðamönnum frá ævintýri sínu, þegar niður kom, og sagði, að tindurinn hefði freistað sín lengi. ,,Við lögðum af stað kl. 6 um morguninn í besta veðri, og þegar við komumst á tindinn tók Philippe, burðarmaður- inn, sem fylgdi mér upp, mynd af mér. Auðvitað var ég dálítið stolt, en voða þreytt. Þokan var svo þétt, að ég sá ekkert frá mér. Ég er ekkert smeyk við að reyna aftur, vonandi verður bjart- viðri næst, svo ég geti notið útsýnisins." 8 ára gömul á hæsta tindi Evrópu. . Tinni yngdur upp Eftir sjö ára íhugun og þriggja ára vinnu, gefur Hergé, maðurinn, sem skap- aði Tinna, út nýja Tinna-bók. 24 teiknarar unnu af kappi í átta mánuði að ævintýrum Tinna við uppreisnarmenn i Suður-Ameríku. Og Tinni fer með sigur af hólmi ásamt hundinum Tobba, eins og reyndaralltaf. Þessi bók verð- ur sú 23. sem ,,faðir Tinna" lætur frá sér fara, og verður hún gefin út í 500.000 eintök- um. Hergé ferðast sjálfur með hetjum sínum um allan heim, hann er nýkominn hein frá Kína og er á förum til Rússlands. Það er einmitt á þeim slóðum, sem atburðarás fyrstu bókar hans ,,Tinni í Rússlandi" á sér stað, og er sú bók nú alls staðar uppseld. Heimili eða listasafn? Varaforseti Bandaríkjanna og eiginkona hans ganga til hvílu í fjarska frumlegu hjóna- rúmi, sem er hvorki meira né minna en heilt listaverk, hannað af aldavini Rocke- felleps' þýskfædda listamann- inum, Max Ernst. Nýja heimilið þeirra, sem Tinni, sém er oröinn miöaldra eöa 46 ára gamaii, ieggur nú pokabuxurnar á hyiiuna og fer í gaiiabuxur tii aö fylg/asi með tímanum. Bandaríkjastjórn lét gera þeim, líkist meira listasafni en einkaheimili. Lampar hannað- ir af ítalanum Giacometti og gavass-myndir eftir ,,föður móbílanna" bandaríkjamann- inn Calder, eru aðeins hluti af hinu verðmæta listmuna- safni Rockefellerhjónanna. Hún slær Shakespeare út Hin 84 ára drottning leynilög- reglusagnanna, sem skapaði Hercule Poirot, á heimili sínu í Devon-héraði i Bretiandi. LeynilögreglusögurAgöthu Cþristie hafa nú verið gefnar út í fleiri eintökum en verk Shakespeare, og nú slær kvikmyndin Morðið í Austur- lar»dahraðlestinni,lsem gerð er eftir samnefndri sögu hennar, öll met í kvikmyndahúsum heimsins. Sjálf fer Agatha aldrei í kvikmyndahús. Eftir hana liggja 61 leynilögreglusaga, sem þýddar hafa verið á yfir 30 tungumál þar á meðal malayísku og swahili. Einn af framleiðendum myndarinnar, Richard Good- vin, skýrir frá því, að aldrei fyrr hafi þeir borgað eins stóra fjárfúlgu fyrir kvik- myndarétt. Hún er ríkasti rithöfundur heimsins, henni berast hvaðanæfa úr heimin- um tekjur af sögum sínum og leikritum. Þrátt fyrir vinsældir sínar og auðæfi er hún mörg- um óþekkt andlit í heimaland- inu, Bretlandi. 20 VIKAN i. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.