Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 31
Stuna Avarays bar frekar vott um
þolinmæði en ánægju.
,,Prýðilegt. Nú verð ég einungis
að setja traust mitt á milt loftslag
eyjarinnar. Kannski kemst ég aftur
til sæmilcgrar heilsu.” 1)
Marianne hlustaði ekki á meira.
Þarna eygði hún vonarglætu. Maður-
inn var á förum frá Englandi. Hann
hafði skip til umráða, og úr því að
skipstjórinn var smyglari, gat hann
ekki verið mjög nákvæmur, hvað
varðaði formsatriði. Þetta var upp-
lagt, heppni, sem tók öllum vonum
fram, og hún mátti ekki láta hana
ganga sér úr grcipum. Hún lét fara
lítið fyrir sér þarna í horninu og
þorði varla að anda, en fylgdist
með mönnunum tveim og beið eftir
réttu augnabliki til þess að kynna
sig. Hertoginn var sjúkur maður,
og vandræði hennar hlutu að vekja
hann til meðaumkunar. Ef hann
væri fús til þcss að hjálpa henni,
myndi hún annast um hann, hjúkra
honum, gerast þjónusta hans, veita
honum umhyggju sína.
Mennirnir tvcir luku þegjandi við
málsverðinn. En er hertoginn pant-
aði meira te, stóð biskupinn á fætur
og sagðist ætla að færa Talleyrand-
Perigord fréttirnar. Hann hafði fylgt
vini sínum hertoganum niður að
höfninni, en var nú í heimsókn hjá
einhverjum útflytjendum, sem
bjuggu í bænum. Stofan hafði
smám saman tæmst, og nú var
hertoginn einn eftir. Marianne leit
svo á, að nú byðist henni tækifærið
Hún reis á fætur.
Er hún stóð fyrir framan hann,
var gamli maðurinn aftur I miðju
hóstakasti.
,,Yðar náð - með yðar leyfi.
Ég þarf nauðsynlega að tala við
vður-”
1) Hertoginn af Avary lést ári síðar
á Madeira.
Or blóðhlaupnu andlitinu störðu
rök augu.
,,Hvað er yður á höndum?” sagði
hann og stóð á öndinni. ,,Farið
í burtu!”
í stað þess að svara settist hún þar
sem biskupinn hafði áður setið,
hellti vatni i glas og rétti hertogan-
um.
,.Drekkið hægt, þetta mun hressa
vður. Á eftir getum við talað
saman. ’ ’
Ösjálfrátt hlýddi hann, tæmdi
glasið hægt, og litaraftið varð aftur
cðlilegt. Hann tók upp stóran vasa-
klút og þurrkaði fölt ennið.
,,Ég þakka yður fyrir,” sagði
hann. , ,Hvað gct ég gert fyrir yður?”
Marianne hallaði sér fram þannig,
að birtan frá arninum féll á andlit
hennar.
,,Horfið á mig herra hertogi.
I gær I Selton Hall voruð þér við-
staddur brúðkaup mitt. I dag er ég
glötuð, ef þér hjálpið mér ekki.”
Tilfinningahitinn var svo mikill,
að rödd hennar varð hás, og hún
ætlaði varla að geta stunið upp úr
sér síðustu orðunum, en mött augu
hertogans urðu kringlótt af undrun.
,,Ungfrú d’Asselnat! Lafði Cran-
mere á ég við. Hvað eruð þér að
gcra hér? Hvað hefur komið fyrir?”
..Dálítið hræðilegt. I gær átti
ég hús, auðæfi, eiginmann og nafn.
Nú cr þctta allt horfið, ekkert eftir.”
..Ekkert? Hvernig má það vera?”
..Húsið er brunnið til kaldra kola,
auðæfin glötuð, eiginmaður minn
dáinn, og ' ég blygðast mín fyrir
nafnið.
Marianne lýsti í stuttu máli at-
burðum þessarar hræðilegu nætur
fyrir hertoganum, og hún átti fullt
I fangi mcð að halda aftur af sorg
sinni. Um leið og hún talaði
fann hún skelfinguna og kvölina
fara um sig á ný. Enn var hún varla
Gamall stílLvönduð vinna.
BÓLSTRARINN
HVERFISGÖTU 76, SÍMI 15102
Vogar-
merkib
24. sept. —
23. okt.
Hugsun þín er mjög
opin fyrir nýjungum
þessa dagana. Það er
kominn skriður á eitt-
hvað, sem þér hefur
fundist þú þurfa að
framkvæma nokkuð
lengi. Árangurinn
virðist glæsilegri en
nokkur óraði fyrir.
Þetta hefur mjög góð
áhrif á þig
Dreka-
merkið
24. okt. —
23. nóv.
Hcppnin erförunautur
þinn þessa dagana. At-
hafnir þínar í ákveðnu
máli virðast stjórnast
af þessari cinstæðu
heppni. Þú gerir þér
ekki grein fyrir því
núna, en eftir nokkr-
ar vikur rennur sann-
leikurinn uppfyrirþér.
Bogmanns-
merklð
23. nóv. —
21. des.
Þú hefur mikil umsvif 5
byrjun þessa árs. Ein-
hverjir erfiðleikar
steðjaað, en þú stend-
ur þig með prýði.
Skynsemi þín segir þér
að láta ekki aðra hafa
veður af þessum erfið-
leikum. Það reynist
rétt vera, og betri dagar
renna fljótlega upp.
Geitar-
merkib
22. des. —
20. Jan.
Tíminn læknar öll sár,
líka þau, sem þér virð-
ast ógræðandi í byrjun
ársins. Sökktu þér nið-
ur I skyldustörfin og
það mun koma þér
mjög á óvart, hversu
fljótt þetta fyrnist.
Óþarfa viðkvæmni í
ákveðnu máli getur
komið sér illa.
Vatnsbera-
merkið
21. jan. —
19. febr.
Löngu liðin sorgarsaga,
sem þú taldir glevmda,
skýtur upp kollmum.
Nú kemur í ljós að lífs-
reynslan, scm þú öðl-
aðist þá hcfur vcitt þér
ótrúlegan styrk. Gættu
þín á að einangra þig
ekki um of frá félags-
skap annarra.
Fiska-
merkið
20. febr. —
20. marz
Þú byrjar nýtt ár með
miklum eldmóði. Stór-
ir draumar og nýjar
vonir skjóta upp koll-
inum. Farðu samt var-
lcga í allar stórákvarð-
anir. hugsun þín er
ekki nægilega rökrétt.
Hjálpsemi þín við aðra
veldur þér á einhvern
hátt erfiðleikum.
1. TBL. VIKAN 31