Vikan

Tölublað

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 36

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 36
ÁRNI BJARNASON Á FLEYGI FERÐ , .Kappakstur, það hlýtur að vera eitthvcrt stórhaettulegt fyrirbaeri, þar scm flestir, ef ekki allir, fara sér að voða. Kappakstursökumenn hljóta að vera alvarlega ruglaðir glannar, scm vilja endilega stytta scr aldur.” Ef minnst er á bílaíþróttir, segir fólk mjög oft eitt- hvað þessu líkt, en af hverju? Aðalástaeðan fyrir því er sú, að fréttir f íslenskum fjölmiðlum af bflaíþróttum eru oftast nær úr þeirri grein, sem kölluð er Formula f Grand Prix, en í þeirri grein er hraðinn einna mestur, og ef slys verða, þá eru þau einna alvarleg- ust þar. Og þær fréttir, sem við fáum af Formula 1, eru hclst þær, hvcr verður heimsmcistari, og svo auðvitað hverjir slasast og jafnvel láta. Iffið. Svo það er cngin furða, þótt margir íslendingar séu á móti bílaíþróttum og haldi, að allt. sem þeim viðkcmur, sé stór- hættulcgt og bara fyrir brjálæðinga. En staðreyndin er nú samt sú, að það eru til ótrúlega margar og fjöl- brcyttar greinar bflafþróttar, og þær eru alls ekki allar stórhættulegar og bráðdrepandi. Hér á landi hefur áhugi fyrir bílaíþróttum farið gífurlega vax- andi sfðustu ár, nokkrar torfæru- keppnireru haldnará hverju sumri, og sfðastliðið vor hélt F.Í.B. rally, scm tókst alvcg með ágætum. Þcir hjá F.Í.B. hafa mikinn áhuga á að gcra rally að föstum lið á sinni skrá á hverju vori, og ef það tekst er strax orðin mikil bót á þessum málum. Rally er alls ekki svo hættulegt, að um það sé talandi. í Bretlandi slasast flcira f fótbolta en f rally, þótt haldin séu fjölmörg rally f hverri viku. En það er margt annað, sem mundi henta okkur íslendingum vel,. til dæmis rally-eross, sem nýt- ur mjög mikilla vinsælda á hinum norðurlöndunum. þó sérstaklega í Svíþjóð. Rally-crdss fer fram á malarbraut með mörgum og kröpp- um bcygjum og smáhólum, svo að það getur verið erfitt fyrir öku- mcnn að ná umtalsverðum hraða. Öryggisreglur f rally-cross eru mjög strangar, og bílarnir eru svo vel styrktir, að það væri mjög erfitt fyrir menn að meiða sig, jafnvcl þótt þeir reyndu. Fyrir áhorfendur er rally-cross mjög spennandi, þótt hraðinn sé ekki ýkja mikill, og fyrir ökumenn, sem gaman hafa af bílafþróttum, hlýtur rally-cross að vera mjög skemmtileg fþrótt. ísakstur mundi henta okkur hér á Fróni mjög vel á vetrum og gæti eflaust verið jafn spennandi og rally-cross. En það cr ekki hlaupið að þvf að halda keppni í bílaíþróttum hér á landi, vegna þess að lög um há- markshraða gilda, hvort sem er á vcgum eða vegleysum. Vegna laganna er ekki hægt að fá trygg- ingu fyrir bílafþróttir, en þetta lciðir til þcss, að það er útilokað að stunda þessa íþrótt, nema f óþökk við yfirvöld og ótryggður. My ndir I og II: F.Í.B. hélt rally síðastliðið vor með ágcetum árangri, og vonandi eigttm við efttr að sjá meira þessu líkt. Þessar myndir vortt teknar þá. 36 VIKAN 1. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.