Vikan

Tölublað

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 12

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 12
 Þú getur lært nýtt tungumal á 60 tímum LINGUAPHONE tungumálanámskeió kennir þér nýtt tungumál á sambærilegan hátt og þú læróir íslenzku. Þú hlustar, þú skilur og talar síóan. Þú hef ur meófædd- an hæfileika til aó læra aó tala á þennan hátt. A ótrú- lega skömmum tíma nemur þú nýtt tungumál, þér til gagns og ánægju. — Þetta er RÉTT og ÞÚ getur sannaó þaó. — Vió sendum þér aó kostnaóarlausu upplýsingapésa um námió. — Þegar þú hefur tekió ákvöróun, — sendum vió þér linguaphone námskeió í því tungumáli, sem þú ætlar aó læra. Pctyd&vo, I 'a^ctobus 5(p \CJ ? “ UNGUAPHONE tungumálanámskeió á hljómplötum og kassettum Hljóófærahús Reykjavíkur • Laugav.96 • sími 13656 * Þarf ég endilega að lofa því aö elska engan nema hann? Elsku Póstur! Þcr finnst þetta eflaust asnalegt bréf, en svona er ég. Ég ætla að biðja þig um að birta fyrir mig svarið, ekki spurningarnar og ekki nafnið mitt. Hvað get ég gert til að stöðva fitu? Ég er farin að fitna allt, alltof mikið, ég er orðin feit. Og hvað get ég gert við gulu tennurnar mínar? Ö, elsku Póstur, ég hef aldrei skrifað þér áður, en frænka mín gerði það, og hún fékk ekki svar. Ég er ekki áskrifandi að Vikunni, en ég kaupi hana í lausasölu. Kannski viltu þú bara svara áskrif- endum, jæja þú um það. En samt bið ég þig um að birta svar við þessu. Og að lokum: Hvernig eiga saman tvíburi og bogmaður? Hvað þýða nöfnin...... Mcð fyrirfram þökk fyrir svarið. 1814 L.H. Pósturinn varð svo hrifinn af bréfinu þínu, að hann œtlar að taka sér það bessaleyfi að birta það. Þú ert óþarflega hógvœr, bréfið þitt eralveg reglulega skemmtilegt. Það er skrifað án nokkurrar tilgerðar og Póstinum fannst hann vera að tala við þig, þegar hann las bréfið. Að skrifa bréf á þann hátt er nokk- uð, sem ekki er öllum gefið. Pósturinn svarar bréfum án tillits til hvort bréfritarar eru áskrifendur eða ekki. Hins vegar vill hann benda þér á, að fyrir þá, sem kauþa Vikuna nokkuð reglulega í lausa- sölu vœn mun hagstœðara að ger- ast áskrifendur. Ef þú vilt fara í stranga megrun ættir þú að byrja á því að fara til lœknis. Hann mun stðan ráðleggja þér, hvaða aðferðum þú cettir að beita. Pósturinn er hins vegar á þeirri skoðun, að ekki þurfi allir landsmenn að hafa hina einu réttu þyngd. Feitir eru oft alls ekkert óaðlaðandi, heldur þvert á móti. Það hefur lengi verið haft fyrir satt, að feitabollur séu öllum öðrum glaðlyndari og mun mikið til t því. Gulu tennurnar ættirþú að tala um við tannlcekni. Svarið við því hvers vegna hún frænka þtn fékk ekki svar frá Póst- inum hlýtur að vera það, að hennar bréf hafi ekki komist í hálfkvisti við þitt. Annars kemst Pósturinn aldrei yfir að svara ölLum þeim aragrúa bréfa, sem honum berast. Tvíburi og bogmaður eiga ágæt- lega saman. Þeir hafa Itka kímni- gáfu og sviþuð Itfsviðhorf. Pósturinn getur ekki sagt þér merkingu nafnanna án þess að uþþ komist um nafn þitt. Þú getur fengið bók með merkingu flestra íslenskra mannanafna á næsta bóka- safni. Hse gamli! Ég er nú ekki í neinum ástarhug- leiðingum, en ég setla að.spyrja þig nokkurra spurninga. 1. Hvaða aldur þarf til að komast 1 sjómannaskólann? 2. Hvaða bekk í gagnfræðaskóla 12 VIKAN 1. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.