Vikan - 02.01.1976, Qupperneq 11
í NÆSTU VIKU
ALLT MANNKYNIÐ AÐ „EINU
BJÁNAÞORPI”
,,I gamla daga var öll tónlist miðuð
við það að taka þátt I henni. Þessi
árátta að sitja og hlusta er nýkomin
til sögunnar með grammófóninum,
útvarpinu og sjónvarpinu. Og ég
segi þér satt, að þótt fjandinn
sjálfur hefði tekið sig til, hefði hann
aldrei fundið upp djöfullegra tæki
mannkyninu til eyðileggingar en
sjónvarpið. Allir sjá það sama,
hugsa það sama — allt mannkynið
verður að ,,einu bjánaþorpi”. Já,
Ragnar H. Ragnar skólastjóri Tón-
listarskólans á Isafirði er ekkert að
skafa utan af hlutunum. Og hann
segir margt fleira hressilegt í viðtal-
inu, sem birtist við hann í næstu
Viku.
7.396.156 SENDINGAR.
Árið 1974 voru bornar út sjö
milljón þrjú hundruð níutíu og sex
þúsund sendingar I pósti I Reykja-
vík. Samtals vógu sendingarnar á
að giska 111 tonn. Allan þennan
póst báru 82 manns út, 65 konur
og 17 karlmenn. Við vitum öll,
hve nauðsynleg þjónusta póstþjón-
ustan er, og hún kemur meira og
minna við sögu hvers manns á næst-
um hverjum degi hins daglega lífs.
Ekki er þó bréfburður hátt metinn
til fjár — bréfberar fá greidd laun
samkvæmt 12. launaflokki opin-
berra starfsmanna, og byrjunarlaun
eru þvl rúmar 50 þúsund krónur.
Nýlega fylgdist Vikan með starfi
nokkurra bréfbera I Reykjavík, og
frásögn og myndir af því má líta I
næsta blaði.
LOÐSKINN ÚR TILRAUNA-
GLASl.
Engum flekkóttum villiköttum
verður útrýmt vegna loðskinnanna,
sem prýða tlskusíðurnar I næsta
blaði, því þau verða nefnilega til I
tilraunaglösum. Góðar og gildar
ástæður liggja á bak við gerviskinna
iðnað. Jafnt veiðimenn sem feld-
skerar og pelsakaupmenn hafa við-
| urkennt, að sala á villikattaskinnum
virðist ekki eiga neina framtlð
fyrir sér. Hafa þeir einnig bent á,
að hlébarðann, jagúarinn, tlgrisdýr-
ið og fleiri villiketti verði hreinlega
að friða, annars sé hætta á, að þess-
ar dýrategundir deyi út. Þcir kjósa
heldur að láta tískuiðnaðinn fram-
leiða villikattaskinn, sem unnin eru
I vefstólum.
4^
HIÐ FULLKOMNA MORÐ.
Flestir höfundar sakamálasagna
skrifa einhvern'tlma söguna um hiða
skrifa einhvern tlma söguna um hið
fullkomna morð. Að vlsu láta þeir
venjulega eitthvert smáatriði spilla
fyrir hinu fullkomna morði, en I þá
gröf fellur ekki Vigdis Stokkelien,
höfundur smásögunnar, sem birtist
I næsta blaði. Þar segir frá ungri
konu, sem kemst að þvl, að maður-
inn, sem hún hefur veitt ást slna
og sem hefur gert henni barnið,
sem hún hefur alltaf þráð, er kom-
inn I tygi við aðra konu. Hún und-
irbýr hið fullkomna morð....
VIKAN Útgefandi Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir, Blaðamenn: Trausti ólafsson,
Hrafnhildur Schram, Guðmundur Karlsson. Útlitsteiknari: . Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari:
Jim Smart. Auglýsingastjori: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing
I Slðumúla 12. Slmar 35320-35323. Pósthólf 533. Verð I lausasölu kr. 250. Áskriftarverð
kr. 2.800 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, kr. 5.250 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða kr. 9.800
I ársáskrift. Áskriftarvcrð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí.ágúst.
1. tbl. 38. árg. 1. jan. 1976 Verð kr. 250
GREINAR:
14 Enn ein viðurstyggðin á hvlta
tjaldinu.
22 Að tjaldabaki I Þjóðleikhúsinu:
Kirsuberjatré úr einangrunar-
plasti. Fylgst með gerð leik-
myndar I Góðu sálina I Sesúan.
VIÐTÖL:
2 „Almáttugur, hún er I stígvél-
um”. Rætt við Sonju Backman
borgarstjórafrú.
6 Vesturför V: I húsmæðraskól-
anum Ósk á ísafirði.
*
SÖGUR:
16 Tvífari Faustinu Crayle. Fyrsti
hluti stuttrar framhaldssögu
eftir Helen Mc. Cloy.
28 Marianne. Sjötti hluti fram-
haldssögu eftir Juliette Benzoni.
38 Strangt varðhald. Kafli úr bók
eftir Vilhelm Moberg.
*
ÝMISLEGT:
9 Krossgáta.
12 Póstur.
20 I leiðinni.
30 Stjörnuspá.
34 Babbl. Þáttur I umsjá Smára
Valgeirssonar.
36 Á fleygiferð. Þáttur I umsjá
Árna Bjarnasonar.
40 Draumar.
41 Matreiðslubók Vikunnar.
44 Nú skal allt glansa og glitra.
l.TBL. VIKAN 11