Vikan

Tölublað

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 29

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 29
En hver svo sem skýringin var, þá kallaði magi hennar á mat, eins og aðeins sautján ára gamall magi getur gert. Yfir kvöldverðinum i gær hafði hún verið í svo mikilli geðshræringu, að hún hafði sama og ekkert borðað, og síðan hafði hún ekki tekið til sín neina næringu. Var það virkilega ekki lengra síðan en I gær, að hún hafði gifst Francis? Henni fannst heil eilífð vera liðin frá því hjónavígsian fór fram. Á aðeins fáeinum klukkustundum hafði hún breyst.í hamstola eigin- konu, orðið ekkja og var nú glæpa- kvendi á flótta undan réttvísinni. Brátt myndu þeir hafa upp á henni, ef þeir væru þá ekki þegar komnir ásporið. En þegar henni varð hugsað til þeirra, sem höfðu sært hana svo grimmdarlega, fann hún ekki til neinnar iðrunar. Þau höfðu fengið makleg málagjöld, og með því að koma þeim fyrir kattarnef, hafði hún aðeins verið að verja heiður sinn, eins og sérhver maður úr hennar ætt myndi hafa gert. Það var aðeins, er henni varð hugsað til Francis, að hún fann eitthvað hrærast innra með sér. Svimi sótti að henni, rétt eins og hún væri stödd við þverhnípi, og upp I sér fann hún beiskt bragð af ösku. Af viljastyrk einum saman bægði hún frá sér þessum dapurlegu hugs- unum. Marianne var ung og hraust, og hún var ákveðin í þvi að beita öllu afli sínu til þess að yfirstíga þessi illu örlög, sem virtust ásækja hana, en ef svo mætti verða, varð hún að halda lífi. Fyrst og fremst varð hún að borða, hvlla sig og hugsa. Hún leit í kringum sig og svipaðist um eftir drengnum, sem hún hafði talað við, en hann var með öllu horfinn. En hún mundi vel, hvað hann hafði sagt við hana. Krúnan og Akkerið var bcsta gisti- húsið I Plymouth, og það var nálægt St. Andrewskirkju. Og þarna fyrir ofan brött þökin sá hún einmitt turn byggðan I gotneskum stíl, sem hlaut að tilheyra hinni fyrrverandi kaþólsku kirkju. Mjó, hlykkjótt gata lá að henni, og von bráðar blasti við henni gamaldags, viðarklædd for- hliðin, steindir gluggar og stórt skilti ávirðulegu, gömlu gistihúsi. Hesta- sveinn tók óðara við hesti hennar, og hún gekk inn í gistihúsið, fór niður nokkur þrep og var þá komin i stórt viðfeldið herbergi, sem var prýtt kopar og látúni. Stórt borð var í því miðju. en umhverfis það voru nokkur minni borð, og á þeim voru hvltir hreinir dúkar. I arninum var verið að brenna mó, og nokkrar bosmamiklar þjónustustúlkur, rjóðar í kinnum og glansandi í framan, trítl- uðu um með hlaðna bakka. Fáir gestir voru þarna inni, og Marianne tókst að smeygja sér óseð að litlu borði, sem stóð I skugga eldstæðisins. Þjónustustúlka kom nær samstundis, og "'tiún pantaði ostrur, krabba og gulan búðing, sem henni þótti svo góður, einnig te og ristað brauð. Mikill pilsaþytur varð, er stúlkan flýtti sér í burtu að sækja pöntunina, og Marianne reyndi nú að gera sér grein fyrir stöðu sinni. Allt, sem hafði gerst fram að þessu, virtist næsta ótrúlegt. Hún gat ekki einu sinni sótt leiðsögn I ástkærar skáldsögur sínar. Engin þeirra hafði að geyma kringumstæð- ur, sem líktust hið minnsta þeim, sem hún var nú komin I. Hún átti að vísu dálítið af peningum, en það var ekki mikið. Þeir myndu I hæsta lagi hrökkva til einnar viku. Auk þess varð hún að útvega sér vega- bréf, án þess að þurfa að snúa sér til yfirvaldanna í héraðinu. Það gat verið erfitt að finna manp, sem væri reiðubúinn að brjóta sigl- ingabann það, sem hafði verið I gildi milli Englands og Frakklands síðastliðin þrjú ár. Þetta allt saman kostaði Iíka peninga, sjálfsagt mikla peninga. Marianne var að vlsu enn með perluhálsfestina, en þótt henni tækist að selja hana hér, þá yrði það áreiðanlega áhættusamt og myndi vekja grunsemdir. Auk þess yrði þá lítið eftir handa henni að lifa af, þar sem hún myndi leita hælis, hvar svo sem það yrði. Oe sannleikurinn var sá, að það skipti þessfi flóttakonu litlu máli, hvert vindurinn feykti henni, svo lengi sem hún kæmist I þokkalega fjarlægð frá snöru böðulsins. En hálsfestina varð hún að geyma. Svo varð henni hugsað til hestsins. Þetta var verðmæt skepna, og með því að selja hana gæti hún kannski komist yfir nógu mikla peninga til þess að borga ferðina með einhverj- um bát. Skipstjórinn inætti auð- vitað ekki vera of kröfuharður um greiðslu. En hvað sem öðru leið, þá var þetta ekki eins hættulegt og að selja hálsfestina. Er hún hafði lagt niður fyrir sig Búðirnar með góða matinn Kjörbúðin Glæsibæ Simi 85166 Matardeildin, Hafnarstræti 5 — 11211 Matardeildin, Aðalstræti 9 — 26211 Kjörbúð Vesturbæjar, Bræðraborgarstig 43 — 14879 Kjötbúðin Skólavörðustig — 14685 Kjörbúðin Brekkulæk 1 Kjörbúðin Háaleitisbraut Kjörbúðin Alfheimum 2—4 Kjörbúðin Laugavegi 116 Matarbúðin, Akranesi — 35525 — 82750 — 34020 — 23456 — 93-2046 Allt í hátíðarmatinn gæðafæða bragðast bezt Sláturfélag Suðurlands 1. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.