Vikan

Tölublað

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 37

Vikan - 02.01.1976, Blaðsíða 37
Það er öruggt mál, að ef yfirvöld leyfðu bílaíþróttir, sem stundaðar væru samkvxmt fullnægjandi öryggisreglum, og komið yrði upp aðstöðu til að keppa, til dæmis í rally-cross eða einhverri álíka grcin, mundu þeir, sem áhuga hafa á þess- um málum, fá sína útrás á vissum afmörkuðum svseðum, þar sem öryggisreglur væru mjög strangar, bæði varðandi bíla, braut og áhorf- endur. Þó að mörgum þyki þetta glanna- skapur og telji, að þetta hvetji fólk til hraðakstrus, þá er þetta miklu betri lausn heldur en að fólk keyri eins og villimenn og stundi kappakstur í almennri umferð, þar sem vegfarendur geta orðið illilega fyrir barðinu á þeim. En nú hugsar þú eflaust, les- andi góður: Af hverju þurfa menn endilega að keyra hratt? Áhugi á bílum og bílaíþróttum, er oftast kallaður bíladella, og þeir sem eru með þessa dellu, fá enga útrás, ef aldrei má fara upp fyrir 70 km. hraða. Bílaíþróttin er viðurkennd i flest- um löndum heims nema á íslandi. Við skulum þvi vona, að bót verði á þessu sem fyrst, svo áhugamenn um þessi mál geti með góðri samvisku stundað sína íþrótt. Þessi 125 hestafla V. W. er bor- aður í 1700 cc og með 2 tvöfalda 48 mm Weber blöndunga. Felg- urnar eru afPorsche. Þessi fékk 1. verðlaun á bílasýn- ingu í Bandaríkjunum. Svona V. W mundi varla henta vel á lslandi. Baja Bug kalla þeir V. W. þegar búið er að breyta honum svona. Hvaða stórglœsilegi gamli bíll er Þessi mundi henta betur á íslandi. þetta? Auðvitað V. W. en með yfir- byggingu úr þlasti. Góð eftirlík- ing af Bugatti. Vélin er í kassanum aftast. Það er orðið vinsælt sport að breyta Volkswagen Beetle á ýmsa vegu, svo hann verður nánast óþekkjanlegur. Banda- ríkjamenn virðast einna frum- legastir og duglegastir við það, kannski vegna þess að V.W. er mjög vinsæll i Bandaríkjunum um þessar mundir. Hér sjáum við nokkrar hugmyndir um, hvcrnig gera má V.W. dálítið öðruvísi, hvort sem okkur finnst nú breytingarnar allar til bóta. 1. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.