Vikan - 08.07.1976, Blaðsíða 14
gjörn á að bjóða upp á tækifæri til
óhófs. Hún borðaði hádegisverð í
matsölunni í kjörbúðinni fyrir
sextíu sent á 'viku, kvöld-
maturinn var á $1.05. Kvöld-
blöðin — sýndu mér New
Yorkbúa, sem ekki kaupir kvöld-
blaðið sitt — kostuðu alls sex
sent, og tvö sunnudagsblöð —
annað vegna lesendadálkanna og
hitt til að lesa — kostuðu tíu sent.
Samtals gerir þetta $4.76. Nú, og
svo þarf maður að kaupa sér föt
og
Eg gefst upp. Ég hef heyrt sagt
frá reyfarakaupum á fataefnum
og kraftaverkum framkvæmdum
með nál og þræði; en ég efast. Ég
er reiðubúinn með pennann á
lofti, en án árangurs, þegar ég
kem að þeim stað, þar sem ég
hefði bætt við sögu Dulciar ein-
hverju af þeim ánægjustundum
sem hver kona á heimtingu á fyrir
sakir allra óskrifuðu, heil-
ögu, sjálfsögðu, máttlausu lag-
anna, sem sett eru af sanngirni á
himnum. Hún hafði tvisvar komið
til Coneyeyju og hafði farið i
hestahringekju. Það er ákaflega
þreytandi að telja upp þá
skemmtun, sem maður hefur
orðið aðnjótandi, i árum i stað
klukkutíma.
Það þarf ekki nema eitt orð um
Piggy. Þegar stelpurnar upp-
nefndu hann, var óverðskuld-
uðum smánarbletti klint á hina
göfugu ætt svina Kennslustundin
í ljótu lýsingarorðunum í gamla
stafrófskverinu byrjar á ævisögu
Piggys. Hann var feitur; hann var
með rottusál, leðurblökuvenjur,
göfuglyndi kattarins... Hann
klæddist dýrum fötum; hann var
sérfræðingur í hungri. Hann gat
litið á búöarstúlku og sagt þér
síðan, hversu langt var síðan hún
hafði etið nokkuð, sem var meira
nærandi en krembolla og te.
Hann hélt til í verslunarhverfun-
um, sniglaðist um kjörbúðirnar
með mataboðin. IÞeir, sem fara í
gönguferðir með hundana sína á
götunni, líta niður á hann. Hann
er manngerð; ég get ekki eytt
meiri tíma í hann; penninn minn
er ekki einn af þeim, sem honum
eru ætlaðir; ég er enginn tré-
smiður.
Þegar klukkuna vantaði tiu
mínútur í sjö var Dulcie tilbúin.
Hún leit á sjálfa sig í skældum
speglinum. Endurvarpið var full-
nægjandi. Dökkblár kjóllinn féll
hrukkulaust að líkama hennar,
hatturinn með spjátrungslegri
svartri fjöður, fingravettlingarn-
ir næstum alveg hreinir — allt
bar þetta vitni um sjálfsafneitun,
jafnvel svelti — allt fór þetta
henni mjög vel.
Stundarkorn gleymdi Dulcie
ollu öðru en eigin fegurð og því,
að nú var lífið að því komið að
lyfta einu horni hulu sinnar fyrir
hana, svo að hún gæti séð undur
þess. Enginn herramaður hafði
áður boðið henni út. Um stutta
stund fengi hún nú að r.jóta
glaumsins og gleöinnar.
Stelpurnar sögðu, að Piggy
væri ,,eyðslukló“. Hún fengi stór-
fenglegan málsverð, tónlist,
glæsilega klæddar konur til að
horfa á og rétti að borða, sem
gerði stelpurnar undarlegar í
kring um munninn, þegar þær
reyndu að lýsa þeim. Á>því léki
enginn vafi, að hann byði henni
út aftur.
Hún vissi af bláum kjól í
búðarglugga — með því að spara
tuttugu sent á viku í stað tíu 1 —
látum okkur nú sjá — oh, það
tæki fjölda ára! En það er búð í
sjöundu götu, sem selur notaðan
fatnað, og þar....
Einhver barði að dyrum. Dulcie
opnaði. Þar stóð húseigandinn og
glotti íbygginn hnussandi eftir
lykt af mat soðnum við stolið gas.
,,Það er herramaður niðri, sem
vill finna þig,“ sagði hún. „Hann
heitir herra Wiggins."
Þetta var viðurnefnið, sem þeir
notuðu sem voru svo óheppnir að
verða að taka hann alvarlega.
Dulcie sneri sér að komm-
óöunni til að taka upp vasaklút-
inn sinn; hún staðnæmdist
skyndilega og beit fast í neðrivör-
ina. Meðan hún horfði í spegilinn
hafði hún séð ævintýraland og
sjálfa sig sem prinsessu vakta af
þyrnirósarsvefni. Hún hafði
gleymt einum, sem var að horfa á
hana með hryggu, fallegu,
ströngu augnaráði, — sá eini
þarna, sern mundi samþykkja eða
fordæma gerðir hennar. Beinn,
grannur og hávaxinn með trega-
fullan og ásakandi svip á myndar-
lgu, þunglyndislegu andlitinu,
1 1 1
Fékkst þú þér
TROPICANA
í mr.rrr.in
í morgun ?
sólargeislinn
frá Florida
Stærsta og fullkomnasta Jivottaplan
bæjarins til afnota fyrir viðskiptavini.
VERIÐ VELKOMIN í
Veganesti, Gferárhverfi
Sími 2 28 80
NtTlSKU
ÞJÖNUSTUSTÖÐ,
sem býður viðskiptavini
velkomna.
f SÖLUSKÁLA:
Sólgleraugu, nýjasta tíska.
Reykjarpípur, mikið úrval.
Alls konar nýlenduvörur.
Tropicana-safi, samlokur,
pylsur.
Ný epli, appelsínur, vínber,
nýjar perur.
í BENSÍNSKÁLA:
Úrval af ESSO bifreiðavörum
og fjölbreytt úrval af fylgi-
hlutum til bifreiðarinnar.
14 VIKAN 28.TBL.