Vikan

Tölublað

Vikan - 08.07.1976, Blaðsíða 27

Vikan - 08.07.1976, Blaðsíða 27
FUGLARANS SNARA Irina Hrádek þekkir gjörla grimmd, tillitsleysi og framagirni fyrrverandi eiginmanns sins, sem er háttsettur í tékknesku leyniþjónustunni. Þess vegna er hún undrandi og svolítið óróleg yfír þvi, að hann skuli ekki gera minnstu tilraun til að hindra hana í að flýja vestur fyrir járntjald. Meðal þeirra, sem aðstoða Irinu á flóttanum, er ameríkaninn David Mennery, sem eitt sinn hafði átt með henni eldheitt ástarœvintýri. Hans hlutverk er að fylgja henni til föður hennar, heimsfrægs rithöfundar, sem er í felum í Vestur-Evrópu. En ferðalag þeirra Irinu og Davids breytist brátt í martröð. Hrádek hafði í fyrstu aðeins ætlað að nota Irinu til að visa veginn til föður hennar. en brátt er hún sjálf orðin aðal fómarlambið. Mitt í örvæntingarfullri baráttu við að vemda Irinu, nær ástin aftur tökum á David Mennery.... l. Eins konar letitilfinning, sem verður þegar svefnhöfgi sækir að einkenndi akrana þennan júlídag um leið og sólin gekk hægt til viðar. Litirnir á himninum urðu sterkari, en hérna í skógarjaðrin- um urðu kaldir skuggar síðdegis- ins að kvöldkuli. Irina Kusak dró dökkbrúnu, ódýru regnkápuna, sem var álíka lítið áberandi og gráa pilsið hennar og blússan, þéttar að sér. Svarta slæðan, sem hafði hulið ljóst hárið á hinni löngu dagleið hennar suður á bóginn, hvíldi nú á öxlunum. Hún vafði henni um háls sér og skalf, ekki vegna skugga trjánna, heldur vegna þess að þegar hún horfði niður grasi vaxna brekk una í áttina að þéttri gaddavírs- girðingunni, óx kvíði hennar og ótti. Þarna voru landamærin, en handan við þau lá yfirlætislaus, mjór vegur afmarkaður af gadda- vír Tékkóslóvakíu og fjalla Austurríkis. Josef lá skammt frá. Hún sat og studdi sig við olnbogann. Hann skimaði, ýmist í áttina að veginum eða niður víðáttumikla grasi vaxna brekkuna framundan eða að trjánum, sem skýldu þeim. „Vertu róleg,“ sagði hann og rödd hans var lág, einskonar hvísl, en vingjarnleg. Hann brosti hug- hreystandi til hennar. Framför, hugsaði hún, ekki þessi ólundar- lega þögn, er hafði einkennt ferð þeirra allan daginn. ,,Nú er ekki langt að bíða, í mesta lagi fjörutiu mínútur,“ sagði hann, „þá ættum við að sjá bifreiðina, ljósan Volks- wagen, aka eftir veginum. Þeir koma úr vestri„ og sólin verður sest, en ekki algjörlega orðið dimmt. Vertu áhyggjulaus. Þeir munu sjá okkur.“ „Hver og einn gæti séð okkur,“ Hún horfði á opið svæðið fram- undan, nakið og miskunnarlaust, sem algjör mótsögn við landbún- aðarhéruðin, sem þau höfðu farið um. Ár, götuslóðar og sveitavegir, allt í einni ringuireið. Hér höfðu trén verið felld og gróðri eytt, alveg að þessum skógarjaðri. Hún hugsaði um, hvort fætur hennar, sem voru bólgnir eftir þriggja klukkustunda erfiða göngu og höfðu borið hana að þessum siðasta áfanga á leið hennar, myndu geta hreyft sig nógu fim- lega og komið henni alla leið að gaddavírnum. Síðasti áfangi? Nei, þetta var upphafið að annarri ferð, öðru lífi. Einmitt það gerði hana óttaslegna. Kvíðinn kom frá þessu ógnandi, opna svæði framundan og svo gaddavírsgirð- ingunni. Tilhugsunin nisti í gegn- um merg og bein. „Hver og einn gæti séð okkur," samsinnti Josef. Loksins varð hann ræðinn og alúðlegur, „þess vegna fara eftirlitssveitirnar hér aðeins um á tveggja tíma fresti. Þeir voru hér siðast klukkan sex. Rétt fyrir klukkan átta, áður en myrkrið skellur á, mun bifreiðin birtast austurríkismegin. Ef til vill verða einhverjir bændur á ferð með heyvagna sína,“ hann benti á hestvagn. sem silaðist áfram undir fyrirferðamiklu hey- hlassi. „Við þurfum ekki að hafa éhyggjur út af austurríkismönn- um. Þeir munu ekki kæra okkur á næstu lögreglustöð." Hann næstum hló. „Að hugsa sér. Afi minn bölvaði austurríkismönnum fyrir að ráðast inn i Tékkó- slóvakíu. Faðir minn bölvaði nas- istunum. Ég og bróðir minn bölvum rússunum." En svo varð rödd hans bitur. „Er þetta allt og sumt sem við megnum, bölva inn- rásarherjunum og í mesta lagi mynda máttlitlar neðanjarðar- hreyfingar?" Hann varð rólegri, en hélt samt áfram að tala lágri röddu, rétt eins og hann héldi að orð hans myndu friða hana. „Bróðir minn, Aloia, manstu eftir honum?“ Hún hugsaði sig um, en var nógu heiðarleg til þess að hrista höfuðið. „Hann skrifaði i Chronicle. áður en það blað var bannað. En ég býst ekki við að eiginmaður þinn hafi leyft þér að lesa þess háttar blöð.“ „Við erum skilin." Rödd hennar var köld eins og raunar fætur hennar. Hún néri þá og óskaði þess að eins auðvelt væri að mana fram hinn týnda funa tilfinninganna. „Hann skildi við mig í síðasta mánuði." „Of mikill dragbítur fyrir hann? Jafnvel dóttir Jaromir Kusaks, menningarlegrar hetju okkar í augum alheimsins. var honurn til einskis gagns." „Ekki." Hún beit sig í neðri vörina. Hann þagði, en baðst ekki af- sökunar. Vissi hún ekki að hann var að koma henni í örugga höfn. vegna þess að hún var dóttir Kusaks? Ekki vegna þess að hún hafði einu sinni verið gift Jiri Hrádek. Hún hafði loksins séð í gegnum þann þorpara. en áreiðanlega ekki vitað hversu mikilvægu hlutverki hann gegndi í öryggislögreglunni. Samt hafði hún víst örugglega haft nóg á sinni könnu. Einu sinni. fyrir langa löngu, höfðu þau verið vinir. „Nú er langt um liðið." sagði hann og rödd hans varð þýð- ari. „Hópur stúdenta umhverfis kaffiborð í Prag að ræða um tón- list, pískra um stjórnmál og upp- reisnina í Ungverjalandi. bíðandi. En við biðum of lengi. Ég minnist þín enn sem fallegustu stúlkunn- ar í Prag. Hversu gömul varstu?" „Sautján ára." Hún tevgði úr fótunum, öxlum og baki. Hún NÝ FRAMHALDSSAGA EFTIR HELEN MACINNES 28. TBL. VIICAN 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.