Vikan

Eksemplar

Vikan - 08.07.1976, Side 29

Vikan - 08.07.1976, Side 29
mínúturnar. „Auk þess þyrftu þeir að skröltast sex kílómetra yfir ótal ójöfnur. Þú veist, að vegurinn er austurríkismegin." Hann brosti breitt, þessi hold- granni, þrjátíu og þriggja ára gamli maður. Augun voru dökk- brún og skörp, en milduðust, er hann virti fyrir sér andlit hennar. ,,Þú ert ágæt, Irina... erum við þá ekki tilbúin?“ Hann benti í áttina að mjóum veginum. Volkswagen- bíllinn kom nú í ljós. Hann fór hægt yfir og var ljóslaus. „Farðu ekki aftur sömu leið Josef,“ sagði hún snöggt, „ekki einu sinni til þess að sækja bif- hjólið þitt. Veldu þér aðra leið.“ Henni varð hugsað til Jiris. Hann hikaði andartak og horfði undrandi á hana. „Engar áhyggjur, Irina, ég er gamall refur." Hann tók töskuna hennar og hljóp af stað. Hún fullvissaði sig um að hnúturinn á slæðu hennar gæfi sig ekki og taldi upp að tíu. Síðan elti hún hann, hrasaði tvívegis um ójöfnur en hélt áfram að hlaupa. Hann var kominn að vírnum og byrjaður að klippa af augljósri kunnáttu, en hún varla hálfnuð. Bifreiðin var enn í nokkurri fjarlægð. Guði sé lof, hugsaði hún, er hún kom að gaddavírsflækjunni, Jiri hefur haldið loforð sitt. Engir eftirlits- verðir komu þjótandi úr fylgsn- um sínum, engin óvænt vélbyssu- skothríð, engin leitarljós. Aðeins grá hula myrkursins, sem jókst í skógi vöxnum hlíðunum, hjúpur um ótal liti og þögnina. Hún beygði sig og hönd hennar nam við nakta jörðina. „Núna,“ sagði Josef. Hann lagði frá sér vírklippurnar, steig á einn vírinn, en hélt öðrum með hendinni þannig að hún kæmist í gegn. Hún lagði hendurnar þétt upp að síðunni, hnipraði sig sain- an og komst klakklaust í gegn, aðeins smárifa á erminni, ekkert annað. „Farðu lengra," sagði Josef, er hún horfði á hann. Sjálfur hörfaði hann um leið og hann sleppti vírunum. Hann tók upp töskuna og þeytti henni hátt yfir í áttina til hennar. Hún gat ekkert sagt, stóð bara þarna og horfði á hann. Fyrir aftan hana hafði bifreiðin numið staðar og maður stökk út, hljóp til hennar yfir mjóa gras- ræmuna, sem skildi veginn frá landamæragirðingunni og tók um handlegg hennar. Þetta var Lud- vik Meznik og hann leiddi hana í áttina að bílnum. „Upp í,“ sagði hann og snéri siðan aftur að girðingunni. „Er allt í lagi, Josef, engar neyðarbjöllur?" „Já, allt í lagi,“ sagði Josef, teygði sig eftir vírklippunum og setti þær í vasann. 1 sömu andrá kvað við skot- hvellur. Aðeins einu sinni og hann rauf hina djúpu þögn. Hópur hrafna tók sig upp úr trjá- toppunum. Gargið úr þeim berg- málaði um allt dalverpið. Irina snéri sér snöggt við. I fyrstu sá hún ekkert nema digran skrokkinn á Ludvik hopa frá girðingunni. Josef lá grafkyrr. Irina tók á rás en Ludvik náði í handlegg hennar og dró hana að bifreiðinni. ökumaðurinn var hvergi sjáanlegur, en Ludvik náði í hann lfka. „Uppí, fíflin ykkar,“ sagði hann, „við getum ekkert gert. Hann er dauður. Uppi, annars er úti um okkur öll." Hann ýtti þeim á undan sér. „Við getum ekki skilið hann eftir þarna," öskraði Irina. „Hann er bróðir minn," sagði Alois. En öll mótmæli og deilur snarhættu þegar leitarljós lýstu upp himininn og fjarlægt hljóð úr aflmikilli vél nálgaðist óðum. „Eg skal aka,“ sagði Ludvik. Hann ók eins og óður væri yfir djúp hestvagnaför og ójöfnur, þögull en andlitið hörkulegt. Alois sagði ekkert. Hann var enn í mikilli geðshræringu. Irina grét. Þegar hún hafði náð valdi yfir rödd sinni, sagði hún: „En hvaðan kom skotið?“ Ludvik einbeitti sér að vginum, sem þau voru nú komin á, greiðari og vel merktum. Hann hafði tendrað ljósin og ók á þolan- legum hraða. „Við erum nú stödd suður af landamærastöðinni. Sjáðu varðturninn þarna. Horfðu vel. Þetta er táknræn og kannski síðasta mynd þín af Tékkó- slóvakíu." Hún leit ekki um öxl, heldur endurtók spurninguna. „Hvaðan kom skotið?“ „Ur skóginum, held ég.“ „Nei við földum okkur þar. Josef hafði grandskoðað allt. Hann taldi okkur örugg.“ „Kannski þá úr trjánum heldur austar þar sem þessir bannsettu hrafnar eiga hreiður sín.‘- Hún hristi höfuðið og lét ekki sannfærast. „Birtan var líka mjög léleg. Hvernig gat nokkur skotið...“ „Þeir þekkja öll bellibrögðin, infrarauðu klækina. Ekki spyrja mig. Ég er enginn sérfræðingur í vopnabúnaði. Ef til vill hefur ein- hver leyniskyttan haft heppnina með sér. Enginn vindur í kvöld, ekki einu sinni gola. Slíkt á við þá. Fyrsta skotið geigaði." „Tvö? Ég heyrði aðeins eitt.“ „Hið fyrsta hæfði hvorugan okkar. En um leið og Josef ætlaði að hlaupa og hrafnarnir geru allt vitlaust, kvað við annað skot. Þá féll hann.“ Já, Irina var sammála, hún hafði ekkert heyrt fyrir garginu í hröfnunum. Hún þagði. Við hlið hennar sat Alois með kreppta hnefa, stífur og augun aftur. „Við erum nú komin á þjóðveg 2. Eftir tvær klukkustundir verð- urðu kornin heilu og höldnu til Vínarborgar." Heilu og höldnu. Hún hugsaði um Josef, liggjandi grafkyrran. Aftur byrjaði hún að gráta en í þetta sinn í hljóði. „Einhver varð að halda sönsum,“ sagði Ludvik reiðilega, „auk þess gátum við ekkert gert." Svo þögðu þau öll. 2. David Mennery sat við skrif- borðið og reyndi að einbeita sér að verki sínu. Hann átti mikið eftir ógert áður en hann æki aftur til New York i fyrramálið. Yfir helgina hafði hann skrifað sæmi- lega grein, þrátt fyrir truflandi áhrif veðursins, (bæði laugar- dagur og sunnudagur höfðu verið kjörnir til sundiðkana og letilifs) en hann átti eftir að yfirfara hana, snurfusa. Eins og venju- lega, áður en hann var byrjaður að skrifa, þóttist hann ekki hafa úr nógu að moða. Svo loksins. þegar hann var byrjaður, reyndist það alltof mikið. Þess vegna las hann nú handritið gagnrýnum augum, yddaði nokkra blýanta og reyndi að leiða hjá sér öldu- gjálfrið frá Atlantshafinu, sem gældi við sléttan, hvítan fjörusandinn og síðdegissólina, sem bakaði sandhólana fyrir utan sumarhúsið. Gluggarnir undir slútandi þak- skegginu voru galopnir og glugga- tjöldin dregin frá. þarinig að suð- vestan golan gat leikið um her- bergin að vild sinni. (Hún náði þó ekki þangað, sem hann sat með pappírsblöð, athugasemdir og tón- leikaskrár innan seilingar.) Birta barst í gegnum þakglugga. er vissi i norður og honum leið vel. jafnvel þótt hitinn í anddyrinu væri um 36°. Hann þurfti ekki að kvarta. Siðan hann og Caroline höfðu skilið fyrir fjórum árum. já, hugsa sér, það voru raunveru- lega fjögur ár. hafði hann gætt þess að vinnuaðstaða hans væri einföld en góð. Hann hafði losað sig við gólfbleðlana og púða i stólum sem ekki var hægt að sitja í. spegla í barokkrömmum og kertastjaka frá Fene.vjum. Framhald í næsta blaði. // DINNI & ÞINNI , SJAOU ^LETINGJANN???. HVAÐ HANN ER . FEITUR OG

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.