Vikan - 08.07.1976, Qupperneq 45
tímavarðstöðina. Leiðarhluta 13,
sem var 19,37 km, 18 mín. og með
meðalhraða 64,6 km á klst. fórum
við með 1 mín. í mínus, en þá
vorum við komnir að gatnamót-
unum á Vesturlandsvegi og Gufu-
nesi, svo stutt var eftir.
Síðasta leiðin var í bæinn,
lágmarkstími gefinn 25 mín., en
hámarkstími 38 mín svo við dúll-
uðum okkur í rólegheitum niður
að Hótel Loftleiðum á réttum
tíma. En þegar þangað kom,
þyrptist hátt í 100 manns að
bílnum, svo við lá, að við kæm-
umst ekki út. Spurningum rigndi
yfir okkur, og við urðum alveg
ruglaðir í öllum þessum ósköpum.
En það var kannski ekki að undra
því bíllinn leit alvag hræðilega illa
út.
Þótt mikið þurfi að gera við
Runólf eftir þetta, og þótt við
fengjum 15,41 mín. í refsitíma og
yrðum í 16. sæti, er ég ánægður
með árangurinn.
Sigurvegarar í þessari rally-
keppni urðu Magnús Helgason og
Guðjón Skúlason, en þeir óku
B.M.V. 1600 árgerð 1971. Þeir
stóðu sig alveg frábærlega vel og
fengu ekki nema 2,12 í refsitíma.
Sigurvegararnir kampakátir, þeir
Magnús He/gason og Guðjón
Skúlason. B.M.W.bíllinn stóð sig
með prýði, og þeir sigruðu alveg
stórglæsilega.
Að sögn Magnúsar er bíllinn í
mjög góðu ástandi eftir keppnina,
og hann varð ekki fyrir neinum
skakkaföllum.
Númer 2 urðu þeir bræðu Ómar
og Jón Ragnarssynir, en þeir voru
á Fiat 127. Refsitími þeirra var
6,17.
í þriðja sæti urðu Vilmar
Kristjánsson og Sigurður Ólafsson
á VW, en þeir fengu í refsitíma
6,20.
Allir, sem tóku þátt í þessari
keppni, einnig þeir sem voru á
þeim átta bílum, sem hættu
keppni vegna bilunar, voru sam-
mála um, að þetta hefði verið
alveg ofsalega gaman, og allir
voru til í að gera þetta aftur — og
það sem allra fyrst.
fer tókst okkur að keyra Grafning-
innn óhappalaust í þetta skipti,
þótt mikil umferð væri, og tíminn
var 0,21 sek. í mínus.
11. leiðarhluti var svo frá Grafn-
ingnum og að Þveránni aftur, því
við áttum að fara tvisvar i þennan
versta kafla. Á 11. leiðarhluta var
meðalhraðinn 66,1 km á klst., 18
mín. höfðum viö til aö spila úr, og
leiöin var 19,8 km. Þetta gekk
ágætlega, og við fengum ekkert I
frádrátt I þetta sinn.
12. leiðarhluti, 6,24 km, 6
mínútur og meðalhraðinn 64,20
km á klst., og við vorum komnir
að bannsettri ánni aftur. i þetta
skiptið ákváöum við aö notað
aðeins skeiðklukkuna, og eftir að
hafa fengið tímann á kortið, var
gefiö I botn beint út I ána og yfir.
En þá varð eitt óhappið enn.
hegar yfir ána kom, lentum við I
svo hrottalegu hvarfi, aö pedal-
arnir, kúpling, bremsur og bensln-
gjöf að viðbættri gírstöng gekk allt
upp I gólfið. Eftir þetta gekk
benslngjöfin bara 1/4 niöur,
bremsupedalinn festist niðri, ef á
hann varstigið, kúplingin varð svo
þung, að við lá að ég þyrfti aö
nota báða fætur á hana, og
gírstöngina var aðeins hægt að
hreyfa, ef öllu afli var beitt á hana.
Eitthvað fannst mér bíllinn skrftinn
I stýri, og hann hoppaöi alltaf
vinstra megin að aftan, svo ég
vissi, að þar hafði farið dempari.
Þrátt fyrir þetta höktum viö
áfram og komum 2 mín. of seint á
Áhöfnin á Renault R8, Jim Smart
og Árni Bjarnason.
28. TBL. VIKAN 45