Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 08.07.1976, Qupperneq 25

Vikan - 08.07.1976, Qupperneq 25
nefíð, og við gáfum hvort öðru nákvæmar lýsingar, hvar og hvursu mikla verki við höfðum. Á meðan við töluðum saman trilluðu tárin niður kinnarnar á vini mínum, og hann fullvissaði mig um, að þau kæmu eingöngu vegna þrýstingsins. Já, mikið áttum við bágt. Á morgun yrði byrjað að toga tróðið úr okkur. Það var þó bót í máli. Eftir að hafa sannfært vin minn um, að það væri óhætt að bursta í sér tennurnar án þess að kafna, fór ég í háttinn og undirbjó mig fyrir þessa síðustu og verstu nótt, sem ég yrði að þola með svona nef. Ég var ægileg ásýndum, þegar læknirinn kom morguninn eftir með tróðtökutækin sín. Hann byrj- aði að rífa plásturinn frá nefinu og togaði svo hægt og rólega í tróðið úr annarri nösinni. Mér fannst það ekki þægilegt. Hann hélt áfram að toga þangað til bakkinn, sem tók við blóðugu tróðinu, varorðinn nær barmafullur. Nú var önnur nösin alveg frjáls, og mér létti stórum. Ég vonað, að allt yrði tekið úr hinni nösinni líka, en læknirinn fékkst ekki til að samþykkja annað en aðeins að toga í tróðið og geyma svo afganginn þangað til næsta morg- un. En nú hafði ég engan plástur lengur, og önnur nösin hafði dregist' saman, svo að ég leit snöggtum skár út. Ég settist við sjónvarpið stundvís- lega kl. 8 þetta kvöld, og stuttu seinna settist maður með bómullar- hnoðra í nösunum rétt hjá mér. — Ég sé, að þú hefur líka verið í nefaðgerð, sagði ég. Hann sagði mér, að aðgerðin hefði verið gerð sama dag og mín, og ég varð alveg standandi hissa að hafa ekki séð þennan mann áður. Það kom upp úr kafinu, að hann hafði mest- megnis legið í rúminu. Við fórum að rabba um svæfínguna og eftir- köstin. Maðurinn spurði, hvort við vissum, hvernig væri farið með okkur eftir að við sofnuðum. Hann sagðist hafa heyrt það, að lungun færu alveg úr sambandi við svæf- inguna, og því þyrfti svæfinga- læknirinn að ýta jafnt og þétt á þau til þess að láta þau starfa. Einhver, sem heyrði á tal okkar, sagði, að við værum spennt niður með ólum, þess vegna værum við svona aum I skrokknum eftir að við vöknuðum. Annar sagðist hafa það fyrir satt, að á meðan aðgerðin væri gerð, stæð- um við nánast á haus, til þess að blóðið rynni ekki niðurí lungu. Það var helst á þessu að skilja, að það væri bara farið með okkur eins og dauða skrokka. En hvað svo sem satt er eða logið í þessum efnum, þá er eitt víst, að fáfræðin gefur ímynd- unaraflinu byr undir báða vængi eins og endranær. Og lifandi voru við þrátt fyrir slæma meðferð og máttum bráðum fara heim, og nú var tróðið hætt að angra úfinn á mér, svo að mér fannst orðið gaman að borða. Daginn eftir var tróðið tekið úr hinni nös minni og þá hvarf þrýstingurinn fyrir fullt og allt, en því miður þurfti ég að hafa bómull í nösunum, svo að ennþá gat ég ekki andað með nefinu. Vinkona mín, sem heimsótti mig daglega, undraðist mjög yfir þeim breytingum, sem ég tók dag frá degi, og hún sagði mér hreinskilnis- lega að hún hefði trúað því að nefið yrði lengi bólgið eftir að það losnað við tróðið. Frá og með byrjun tróð- töku fór heilsa mín batnandi, bæði líkamlega og andlega og ég varð vör við, að vorkunnsemi annarra fór dvlnandi. Konan, sem pantað hafði rödd- ina hennar Guðrúnar Á., var farin heim, svo að síðustu tvo dagana má segja, að ég hafi aðeins dvalist I rúminu yfir nóttina, því að ég þeyttist um allt hæstánægð með útlit mitt og geð. Fremur fáir sjúklingar dvöldust á endagangin- um á daginn, nema þeir, sem reyktu eða höfðu aðeins gengist undir „smáaðgerðir”. En þegar klukkan nálgaðist sjónvarpsfréttir jókst aðsóknin mjög, og komu sjúklingar ýmist sjálfir fram eða með hjálp starfskvenna. Daginn eftir að nef mitt var losað við allt utanaðkomandi drasl, fékk ég heimfararleyfí eftir nákvæma skoðun. Mér var sagt, að allt liti bærilega út inni I nefinu mlnu, en ég mætti ekki láta ilia næstu dagana. Nú var ekkert eftir nema að taka saman dótið, klæða sig og kveðja. Á meðan ég klæddi mig úr hreinum og tærum einkennisbún- ingnum, og fór I snjáðar gallabuxur og lufsulega peysu, fann ég hvað ég var orðin stirð eftir 6 daga spltala- legu, þrátt fyrir hlaup mln út um allar trissur. Ég fór fram á gang með föggur Tiínarog kvaddi allar góðu konurn- ar og sjúklingana, sem höfðu umborið mig með stakri þolin- mæði, og hélt síðan heim á leið með aumt nef. Þetta einstaka nef mitt hafði valdið því, að ég mátti þola ýmislegt og reyna I 6 daga. Mér hafði verið snúið þvers og kruss, og troðin upp og guð veit ekki hvað út af þessu litla og sakleysislega nefi mínu. Fyrst eftir að ég kom heim, mátti greina á þvl að eitthvað hafði verið gert við það, en fljótlega fór það að lagast og skrapp bæði fljótt og vel saman. Nú er það aftur orðið eins lltið og sakleysislegt og það var áður. Á.K. 28. TBL. VIKAN 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.