Vikan

Eksemplar

Vikan - 08.07.1976, Side 46

Vikan - 08.07.1976, Side 46
Smásaga eftir Roy Bolitho MMvm BJUUMM Það var hálfdimmt f veitinga- húsinu og þar var svalt eftir glóheitt sólskinið á kirkjutorginu úti fyrir. Þetta var rétt eftir hádegið og lífið í spænska bænum leið áfram, hægt og syfjulega. Tvenn hjón komu inn í veitinga- húsið. Skandínavar, var Antonio viss um. Hann stóð við gluggann og horfði á kött, sem lá og malaði úti undir vegg. Á torginu fyrir utan vöfruðu túristar alls staðar að úr heiminum berhöfðaðir í sólskininu. Antonio hafði gengið um beina á þessu veitingahúsi i rúm tíu ár. Allt lif hans virtist snúast um þennan stað. Hér var veitingahúsið, i kring voru allar verslanirnar I bænum, og hann þurfti ekki að ganga nema upp þrepin og siðan nokkur skref til haegri og þá var hann kominn heim. Þar beið konan hans og þrjú börn þeirra eftir því, að hann kæmi þreyttur og sárfættur heim. Antonio sneri baki í dyrnar, þegar túristarnir fjórir komu inn. Hann stakk svoiítið við, en hann flýtti sér að borðinu til þeirra og rétti þeim matseðilinn. Karl- mennirnir voru í stutterma skyrtum og þunnum buxum. Þeir voru báðir fremur feitlagnir. Konurnar voru heldur magrar fyrir smekk Antonios. Þær voru báðar í þunnum sumarkjólum og báðar voru þær brenndar af sólinni. Svört fluga flögraði kringum borðið. Antonio stuggaði við henni. — Buenos dias, sagði hann. — Hvers óskið þið? Þau voru fljót að ákveða sig og Antonio þjónaði þeim til borðs eftir öllum kúnstarinnar reglum. Hann reyndi að leyna heltinni, þegar hann hélt á bakkanum, en hann gat það ekki. Hann var hár og glæsilegur maður, um það bil þrjátlu og fimm ára að aldri. Andlit hans var svipbrigðalaust. Af því varð ekki séð, hvað hann hugsaði. Augu hans voru fremur lítil og varirnar samanbitnar. Hann var of hrukkóttur miðað við aldurinn. Hann færði þeim drykkjar- föngin, litla diska með ólívum, steiktar kartöflur, humar. Hann lagði vandlega á borðið. Hann talaði ensku ágætlega og sömuleiðis eins konar blöndu af skandainavlsku málunum. — Ætlið þið að fara á nautaatið I dag? spurði hann og benti á glæsilega rauða og gula vegg- auglýsingu, sem hékk á veggnum. Leikvangurinn var ekki nema nokkur hundruð metra frá kirkjutorginu. — Já, sagði annar maðurinn við borðið. — Við höfðum Iátið okkur detta það I hug. Þetta var sá feitari þeirra tveggja, og andlitið á honum var blóðrautt af sólinni. — Við ætlum að sjá Levindo, sagði konan I rauða sumar- kjólnum. — Er hann ekki álitinn einn snjallasti nautabani heimsins? Eða að minnsta kosti sá besti hér um slóðir? Antoniu snéri sér hægt við. Þetta ætlaði að ganga vel. — Jú, sagði hann. — Hann er mjög góður, en hann verður aldrei einn þeirra fremstu! Levindo er allþekktur sem stendur — en — einu sinni fyrir mörgum árum átti ungur piltur heima í þessum bæ og hann hefði getað orðið besti nautabani heimsins. Hann byrjaði feril sinn einmitt á þessum leikvangi. En — örlögin höfðu ætlað honum annað hlutskipti. — Segðu okkur frá honum, sagði rauðklædda konan. Svo sagði Antonio frá unga nautabananum, sem allir bjuggust við að yrði sá besti allra tlma. Hann sagði frá hugaða og hrausta piltinum, sem átti bara eitt takmark frá því hann fæddist; að verða mesti nautabani á Spáni. Þegar hann var lltill, hafði hann unnið alls konar störf á bóndabæjunum I grenndinni — einkum, þar sem ræktaðir voru gripir til nautaata. Þar hafði hann þjálfað sig, og brátt þekktu allir strákar I bænum hann, þvi að hann var sá kjarkaðasti af öllum. Þegar hann var sextán ára var hann orðinn stjarna í heimabæ sínum, og túristar dáðust að honum. Og hann varð stöðugt þekktari og hæfari. Hann skildi skapgerð nráutanna, og gat gert sér ljóst fyrirfram, hvað þau myndu gera. Þegar þessi ungi nautabani Atíu mínútna fresti Þegar sumaráætlun stendur sem hæst flýgur Flugfélag íslands 109 áætlunarferöir í viku frá Reykjavík til 11 viðkomustaóa úti á landi. Þetta þýöir aö meðaltali hefja flugvélar Flugfélags íslands sig til flugs eöa lenda á tíu mínútna fresti frá morgni til kvölds alla daga vikunnar. Flugfélagiö skipuleggur feröir fyrir einstaklinga og hópa og býöur ýmis sérfargjöld. Hafiö þér til dæmis kynnt yður hin hagstæöu fjölskyldufargjöld? Feröaskrifstofur og umboð Flug- félagsins um allt land veita yöur allar upplýsingar. FLUGFÉLAG INNANLANDS ÍSLANDS FLUG Félag sem eykur kynni lands og þjóöar

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.