Vikan - 08.07.1976, Blaðsíða 40
„Þá hljótum við að hafa farió
framhjá þeim stað, þar sem þeir
sitja fyrir keisaranum? En við
urðum einskis vör?“
„Þeir halda nú kannski ekki
beint sýningu á sér. Þeir ætla sér
að bíða í gamalli kalksteinsnámu
rétt við veginn og þeir láta ekki
sjá sig fyrr en á réttu augnabliki.
En þér skuluð samt ekki halda, að
þeir hafi ekki séð til ferða okkar.
Hið eina sem við þurfum að óttast
er vörðurinn, sem staðsettur er á
milli Malmaison og Fond-
Louvet."
Allt í einu juku þau hraðann.
Þau fóru í gegnum stórt hlið. en
beggja vegna voru varðhýsi með
þrístrendum göflum. Stórar
luktir úr bronsi vörpuðu birtu á
gyllt hliðið og varðhýsin, en þar
hjá stóðu hermenn klæddir bún-
ingum úr vísundaskinni og þeir
báru svartar hermannahúfur með
borðalykkjum.
„Þetta er korsíkusveitin," sagði
Joival. „Það er ljóminn af rjóm-
anum."
Marianne ansaði engu. Þetta
sveitasetur Jósefínu var líkt og
hjúpað geislabaug þeirrar ástar,
sem Napóleon hafði borið til
hennar og Marianne fylltist af-
brýðisemi. Jósefína hlaut að þjást
mjög mikið að þurfa að lúta í
lægra haldi fyrir annarri konu, —
en hafði hún ekki átt hug og
hjarta keisarans í lengri tíma?
Hversu smávægilegt hafði þetta
næturævintýri að Butard ekki
verið í samanburði við þau ár,
sem þau höfðu unnað hvort öðru.
Við endann á breiðum stíg, sá
hún lítið, upplýst sveitasetur.
Vagn stóð þar fyrir utan, vagn og
nokkrir riddarar i grænum og
rauðum búningum, flagsandi slár
og Ioðhúfur með fjaðraskúfum.
Jolival greip' þéttingsfast um
handlegg hennar.
„Sjáið? Keisarinn er enn
hérna!“
„Eruð þér viss um, að þetta sé
vagninn hans?“
„Þetta eru altént riddara-
liðarnir úr hinni keisaralegu
sveit. Þeir hljóta að vera að bíða
eftir honum. Þetta eru vaskir
sveinar, kannski ekki margir en
ég held að við ættum að láta þá
eina um að kljást við samsæris-
mennina."
„Eruð þér genginn af vitinu.
Þeir eru varla fleiri en tíu.“
„Já, en hver um sig er þriggja
manna maki. Annars hafið þér
rétt fyrir yður. Þeir gera sjálfsagt
leifturárás og þá er aldrei að vita
hvernig fer.“
Vagninn hægði nú á sér. Þau
voru komin dálítinn spöl inn fyrir
hliðið á sveitasetrinu og þar var
bugðu á veginum og þess vegna
hættulaust fyrir þau að stíga úr
vagninum. Jason stökk niður úr
vagnstjórasætinu, opnaði dyrnar
og hjálpaði Marianne út. Beggja
vegna voru háir múrar og trjá-
greinar slúttu út yfir þá. Naktar
greinarnar minntu á pennastrik,
sem dregin höfðu verið á dökkan
himininn.
„Við verðum að hafa hraðann
á,“ sagði ameríkaninn og leiddi
hana að múrnum á vinstri hönd.
„Vagn keisarans stendur enn
fyrir utan, en það er að nálgast
miðnætti og hann hlýtur að fara
innan tíðar.“
„Af hverju fóruð þér framhjá
sveitasetrinu? Þér hefðuð átt að
stansa fyrr.“
„Ég gerði það til þess að njósn-
ari samsærismannanna geti síður
fylgst með okkur. Það er auð-
heyrt, að þér eruð ekki vanar
syona löguðu. En nú verðum við
að komast inn.“
Marianne varð ljóst að hann
var áreiðanlega enginn viðvaning-
ur á þessu sviði. En hún hafði
ekki orð á því, sagði aðeins:
„Hvernig förum við að því?
Haldið þér, að varðmennirnir
hleypi okkur framhjá?"
Hún sá glitta í hvitar tennur
ameríkanans þarna i myrkrinu og
hann hlóð hæðnislega.
„Við reynum það ekki. Það
væri einungis tímasóun. Nú sýnið
þér mér, kæra Marianne, hvernig
vel uppalin stúlka klifrar yfir
vegg. Eftir það verður guð og
lukkan að ráða því, hvort við
rekumst á varðliða á leiðinni
heim að húsinu eða ekki. Þegar
þangað er komið getum við látið
handtaka okkur.“
„Handtaka! Hvað eigið þér
við?“
Franhald í næsta blaði.
Verzlun vor býður mjög fjölbreytt
úrval af bilaútvörpum og stereo
segulböndum. Einnig er fyrirliggjandi
úrval af fylgihlutum: festingum,
loftnetum og hátölurum.
Verkstæði okkar sér um ísetningar á
tækjunum, svo og alla þjónustu.
Bifreiðaeigendur
H
Einholti 2 Reykjavik Sími 23220
Við bjóðum fjölbrt-ytiar vt-itingar í rúmgóðum
búsaltyniuim. Opið alla tlagaifrá kl. 8 til 23.30.
Morgunverður. bátlegisverður, kvöldvcrður. Grillið
er opið allan daginn. þar er hægt að fá Ijúffengar
steikur. kjúklinga. hamborgara, djúpstciktan ftsk,
Irans'kar kartöflur o.fl. o.tt. Kaffi, tc, mjólk,
beimabakaðar kökur og úrval af smurbrauði.
*
Stierri ferðahópar cru bcðnir að panta með fyrirvara,
símanúmcr okkar cr 93-1130. Við útbúum góm-
sieta. girnilcga ncstispakka.
•
í fcrðamannaverslun okkar cigum við ávallt úrval
af matvörum, hrcinlxtisvörum, viðlcguútbúnaði,
Ijósmyndavörum. gastrckjum o.fl. o.fl.
Vegna mikillar aðsóknar að gistiaðstöðu okkar biðjum
við þá, sem setla að notfacra sér hana að panta
mcð fyrirvara, símanúmer okkar cr 93-1150.
Við önnumst afgrciðslu á ESSO og SHELL bcnsíni
og olíum. einnig fyllum við á fcrðagastæki.
*
Rúmgóð aðstaða cr til að þvo bifreiðina. Viðskipta-
vinir ciga kost á afnotum af hjólbarðadælu.
*
Akjósanlcgur áfangi hvort sem þér eruð á leið
norður cða að norðan.
Staðarskáli Hrútafirði
40 VIKAN 28. TBL.