Vikan - 08.07.1976, Page 58
LAX' LMXr LÁIX C
Hér koma fimm uppskriftir al
réttum úr nýjum eða frystum laxi,
sem allar eru frábrugðnar þessu
venjulega.
SALTAÐUR LAX.
1 kg nýr lax eða frosinn miðstykkið
er best.
1 1/2—2 dl gróft salt.
Sa/tlögur:
1/2 dl salt í 1 lítra vatns.
Útbúið laxinn á sama máta og í
gravlax.
Nuddið bitana með saltinu og setjið
þá með kjöthliðina niður í form eða
plastpoka. Breiðið vel yfir og setjið í
kæli í um 12 klst. Skolið af laxinum
og leggið í saltlöginn, látið standa í
kæliskáp í 2-3 sólarhringa. Skerið
síðan laxinn í þunnar sneiðar eins
og gravlax, og berið fram með
hrærðum kartöflum og klipptu dilli
LAX í FORMI.
Þetta er réttur, sem gott er að
matreiða í stærri skömmtum og
frysta.
Gott er að nota aHganga af saltaða
laxinum, sem að ofan greindi.
Sé hann of saltur, má leggja hann í
undanrennu í 2 tíma.
8 meðalstórar kartöflur, kaldar,
soðnar.
1 örþunnt sneiddur laukur
ca 250 gr saltaður lax.
gróft klippt dill
svartur pipar
4 egg
4dl mjólk.
Sjóðið mjólkina og látið kólna.
helliðsíðanyfirsundurslegin eggin.
Flysjið kartöflurnar og skerið í
sneiðar, einnig laxinn. Allt er sett til
skiptis í lögum í eldfast form og
piprað á milli laga. Efsta lagið á að
Bcazilíukaffi
flrvalskafíi
vera kartöflur. Hellið eggjamjólk-
inni yfir og bakið við 225° í 35—40
mínútur, eða þar til eggin hafa
stífnað og rétturinn fengið á sig
góðan lit. Berið fram með smjöri og
hrökkbrauði.
STEIKTUR LAX í SNEIÐUM.
Skerið nýjan eða frosinn lax í
1 1/2—2 sm sneiðar.
Nuddiðþærmeðsítrónusafaog um
1 tsk. af salti og nýmöluðum pipar.
Látið sneiðarnar liggja svona í
20 — 30 mínútur. Steikið síðan við
vægan hita í 3—4 mínútur á hvorri
hlið. Klippið dill yfir og berið fram
með kartöflum, harðsoðnum eggj-
um og grænmeti.
GRAVLAX.
1 kg lax, nýr eða frystur, helst
miðstykkið
4 msk. salt
3—4 msk. sykur
2 tsk. piparkorn (hvít)
ríkulegt af dilli.
Sé laxinn frosinn, er hann látinn
þiðna. Laxinn flakaður og smá-
beinum kippt burtu. Piparkornin
steytt og þeim síðan blandað
saman viðsykurinnogsaltið. Flökin
nudduð með hluta af blöndunni.
Setjið fiskinn síðan með roðhliðina
niður í glerfat eða rúmgóðan
plastpoka. Stráið þykku lagi af
kryddi og dilli yfir og setjið síðan
kjöthliðina á hinu flakinu yfir.
Leggið flökin á misvíxl þannig að
þunna stykkið á öðru flakinu liggi
við þykka stykkið á hinu. Stráið
síðan yfir því sem eftir er af
kryddblöndunni og dillinu og lokið
pokanum vel. Látið laxinn í kæli-
skáp í 2 daga og snúið honum
anna veifið. Berið laxinn siðan fram
í örþunnum roðlausum sneiðum.
Skreytið með dillgreinum og salat-
blöðum, sítrónubátum og gravlax-
sósu.
LAX SOÐINN í ÁLPAPPÍR.
Hann má bera fram bæði heitan og
kaldan.
600 — 700 gr nýr eða frystur lax
1 sítróna
3 tsk. salt
12 gróftmulin hvít piparkorn
1 meðalstór þunntsneiddur laukur
1 mulið lárviðarlauf
ríkulegt af gróftklipptu dilli
álpappír.
Sé laxinn frosinn er, hann látinn
þiðna fyrst. Laxinn hreinsaður og
þerraður. Dreypið sítrónusafa að
utan og innan, stráið salti og pipar
og nuddið inn í. Veljið þykka gerð af
álpappír. Setjiðlaxinn á helminginn
af lárviðarlaufinu, lauknum og
dillinu og setjið hinn helminginn
ofan á. Pakkið síðan pappírnum
þéttsamanutan umfiskinn. Setjiðí
200° heitan ofn og áætlið um
40 — 50 mínútna suðutíma. Laxinn
er borin fram heitur með soðnum
kartöflum og Hollenskri sósu.
Kaldur lax er hins vegar borinn f ram
meðgrænusalati, agúrkusneiðurm
ogsósuúrsýrðumrjóma, kryddaðri
með sinnepi, salti og pipar eða
mayonesse og í báðum tilfellum
ríkulegt af dilli.
LAXAPIROG.
6 dl hveiti
1/2 tsk. salt
150 gr smjörlíki
1 1 /2 dl ískalt vatn
Fyl/ing.
6 harðsoðin egg, grófsöxuð
2 dl soðin hrísgrjón
1 1 /2 dl kaffirjómi
afgangur af graflaxi, ca 200 gr og
álíka mikið af reyktum laxi
3—4 msk. fíntklipptur graslaukur
salt, svartur pipar.
Blandið saman hveiti og salti,
myljiðsmjörlíkiðsaman við, hnoðið
saman með vatninu og láið bíða á
köldumstað í minnst klukkustund.
Skerið laxinn mjög fínt og blandið
saman við egg, hrísgrjón og
graslauk og þynnið með rjóman-
um. Kryddið með salti og pipar.
Skiptiðdeiginuítvenntogfletjiðút í
2 aflangar lengjur. Setjið fyllinguna
á aðra lengjuna og setjið á smurða
plötu. Látið vera ca 2 sm bil
meðfram köntum. Penslið kantana
með sundurslegnu eggi og setjið
58 VIKAN 28. TBL.