Vikan - 16.12.1976, Side 3
vegna eru demantar sjaldgæfir.
Flestir demantar koma frá Suður-
og Suðvestur Afríku, þar sem þeir
m.a. hafa verið sóttir niður á hafs-
botn. En það finnast einnig dem-
antar i mörgum öðrum hlutum
Afríku og í Indlandi, Síberiu , Bras-
ilíu, Guyana og Venezuela.
Framleiðslukostnaður: I afrísku
námunum vinnur fólk djúpt undir
yfirborði jarðar við að grafa eftir
demöntum. Demantarnir finnast í
sérþekkingu á þessu sviði. Hér á
eftir fara nokkrar upplýsingar, er
verða mættu þeim liði, sem ef til vill
hyggjast kaupa sér demant á
næstunni.
Þyngd. Þyngdin mælist í karöt-
um. Orðið karat á rætur sínar að
rekja til austurlenska karat trésins,
en fræ trésins var notað sem vikt-
areining og nefnist karat. Eitt karat
Sigurður H. Steinþórsson, gull-
smiður við vinnu sína.
efni, sem kallast blómold eða kimb-
erlit. Það er flutt upp á yfirborð-
ið, þar sem það er mulið og bleytt,
og leðjunni er síðan hellt yfir
hristisjónborð, sem er smurt sér-
stakri feiti, sem demanturinn situr
siðan eftir í, þegar moldin skolast
burt. Til að vinna stein til skart-
gripagerðar, sem er eitt karat að
þyngd, þarf að mylja, bleyta, skola
og sundurgreina 50 tonn af efni.
í Sv-Afriku þar sem demantar
finnast i sandi og sandhólum, þarf
að byrja á að grafa niður á 20 metra
dýpi og flytja burt gífurlegt magn
efnis. Þegar niður á réttan stað er
komið, er efninu mokað upp með
risavöxnum vélskóflum og efnið
sundurgreint eins og áður getur.
Einn hundrað milljónasti þess efnis
er upp kemur reynist vera hinn
langþróðí demantur.
Aðeins tæp 20% af þeim hrádem-
öntum er finnast eru nógu fallegir
til þess að unnt sé að slípa þá til
skartgripagerðar. Afgangurinn er
notaður til iðnaðar.
Þyngd, litur, hreinleiki og slípun
eru þau fjögur atriði er ráða verð-
lagningu demantsins. Viðskiptavin-
ur þyrfti að vera sérfræðingur til
að sjá þau blæbrigði er gera það að
verkum, að einn steinn er öðrum
verðmætari. Besta leiðin til að
fræðast um demanta er að ræða við
gullsmið hann hjálpar þér gjarnan
til að velja demant enda hefur hann
samsvarar 0,2 grömmum, eða 200
milligrömmum. Vigt minni steina
en eitt karat er reiknað sem
hundraðshluti úr karati t.d. 0,10
eða 0,15 karat, jafnvel 0,01 kt,
steinar eru notaðir í skartgripi. Við
þurfum sem sagt að borga sam-
kvæmt vigt, en einnig fyrir það,
hvað sumir steinar eru sjaldséðir.
Tveggja karata steinn er sjaldséðari
en eins kt. steinn og kostar því
nokkuð meira en tvisvar sinnum
hinn.
Litur. Demantarnir finnast i
mörgum litum. Hinn heimsfrægi
Hope-demantur er t.d. blár. Dresd-
endemanturinn, sem tilheyrir hirð-
gimsteinum Saxlands, er epla-
grænn. Flestir demantar hafa ör-
litla slikju guls litar eða jafnvel
■lái fuglinn
Elisabeth Taylor og Jacquline
Onassis eru sennilega þær, sem
hvað mest hafa vakið athygli á
demöntum ó okkar tímum. Menn
hafa keppst við að hlaða á þær
demöntum og allskyns skartgrip-
um. Og báðar kunna þær sannar-
lega að bera demanta.
fölbrúns litar. Þessi mildi eðlislægi
litblær, sem er oftast svo veikur
að aðeins sérfræðingar geta greint
hann, eykur einmitt ,,ELD” dem-
antsins með því að endurspegla
litróf umhverfisins. Algjörlega hvít-
ir — oft nefndir bláhvitir, eru mun
sjaldgæfari og þar af leiðandi verð-
meiri.
Hreinleiki. Flestir demantar inni-
halda örlitla flekki eða svokallaða
punkta, er orðið hafa til i náttúru-
legri sköpun steinsins. Svo lengi
sem punktarnir, eins og þeir eru
oftast kallaðir trufla ekki ljósbrotið
að nokkru ráði hafa þeir ekki áhrif á
fegurð steinsins og þá einnig tiltölu-
lega lítil áhrif á verðgildi hans.
Þegar demantar eru flokkaðir telst
steinninn hreinn, ef fagmaður sér
enga punkta í honum við tífalda
stækkun.
Slípun. Oháð lit og hreinleika
demantsins getur fegurð hans
aðeins notið sín eftir mjög góða
slipun. Hlutföll flatanna verða að
vera rétt og slípunin krefst ótrú-
legrar nákvæmni. Sérhver flötur
verður að vera hornréttur 100% við
næsta flöt, þetta er erfitt i harðasta
efni er þekkist. Demantsslíparar til-
heyra heimsins bestu listiðnaðar-
mönnum. Það er þeirra starf að gera
óásjálegan smástein að fegursta
gimstein veraldar.
* * *
Brazilíukaffi
Lr\al$kaffi
51. TBL. VIKAN 3