Vikan - 16.12.1976, Blaðsíða 5
JÓLAPOKA má klippa hvort heldur sem er úr glanspappír
eða málmpappír, en málmpappírinn er þó sterkari. Margir
kunna að flétta hjartapokann, sem snið er af á næstu opnu.
Setjið sniðið á samanbrotinn pappír, þannig að beina hliðin
sé á brotinu. Klippið stykkið út, og klippið rifurnar upp í,
eins og sniðið sýnir. Fléttið pokann saman, eins og myndin
sýnir, klippið síðan pappírsstrimil fyrir hanka og límið innan
á pokann. Þegar þið hafið náð leikni í að flétta svona poka,
skuluð þið reyna að klippa þá í ýmsum stærðum og eins að
klippa oftar upp í, þannig að fléttan verði flóknari. Það er
tilvalið að hengja stóran hjartapoka upp á vegg til að geyma
í jólakortin. Einfaldan jólapoka má búa til úr tveimur
kringlóttum málm- eða glanspappírsstykkjum, sem teikna
má eftir undirskál. Stykkin eru brotin saman í miðju og sett
saman, eins og myndin sýnir. Límið pappírsstrimil á til
upphengingar og skreytið ef til vill með pappírsklippi.
Þennan poka geta jafnvel yngstu börnin gert með lítilsháttar
aðstoð.
JÓLATRÉÐ er oft látið standa á sérstöku jólatrésteppi. Ef
tréð er lítið, er fallegt að láta það standa á litlu borði með
jólalegum dúki á. Á næstu opnu eru form, sem nota má til
að klippa út úr fliti eða taui og sauma eða líma á jólatrésteppi
eða dúk. Þessi form má líka, eins og áður hefur verið lýst,
nota til að klippa út úr málmpappír eða kartonpappír og nota
sem jólatrésskraut eða óróa. Hafið dúkinn sjálfan úr grófu
bómullarefni eða striga og kantið með skábandi eða
skrautborða. Veljið formm, takið þau upp og klippið út úr
filti eða taui og raðið meðfram köntunum. Reynið ýmsa
möguleika, áður en límt er eða saumað fast.
HJÖRTU eru vinsælt jólaskraut. Takið upp formin í naestu
opnu. Klippið 2 hjörtu af stærð A og 2Í öðrum lit af stærð B.
Límið minni hjörtun á þau stærri og síðan stærri hjörtun
saman með bandi á milli, eins og myndin sýnir. Hægt er að
setja fleiri hjörtu á sama band. Slíkar lengjur eru fallegar á
jólatréð og eins sem gluggaskreytingar. Á sama hátt má
nota hin formin, stjörnurnar og englana.
Að lokum vil ég óska lesendum gleðilegra jóla og góðrar
skemmtunar við jólaundirbúninginn.