Vikan - 16.12.1976, Side 9
— Hlustaðu Berti! Þeir eru að
spila lagið okkar.
★ ★ ★
Þegarvesturhluti landsinstókaö
byggjast, fékk Texas rjómann af
landnemunum, sagði einn af mörg-
um gorturum þess fylkis. Þegar
þessir harðsnúnu brautryðjendur
komu yfir Missisippi, fundu þeir
stórt og mikiö skilti nálægt St.
Louis. Á því stóð: Ef þið hafið
eitthvaðaf viti Ikollinum, þá haldið í
suður til Texas. Svo allir þeir
skynsömustukomuhingað. Ogallir
fákunnandi bjánar, sem voru
ólæsir, héldu áfram til Kaliforníu.
★ ★ ★
„Mamma." hrópaði dóttirin á
bænum, ,,ég er viss um, að pabbi
hefur dottið í brunninn. Það er
greinilegt áfengisbragð af
vatninu."
! \. \
■< T . v
.. -A ‘
/ ■. \ \ 'AJU1-
Yl \
v
Fjölskyldu, sem flutti úr mið-
bænum í úthverfi, var ráðlagt að fá
sér varðhund til að gæta hússins að
næturlagi. Þau keyptu stærsta
hundinn, sem til sölu var hjá
hundasala í nágrenninu. Skömmu
síðar komu innbrotsþjófar og höfðu
á brott með sér ríkulegan feng,
meðan hundurinn svaf eins og
steinn. Maðurinn fór beint til
hundasalansogkvartaðiyfirþessu.
,,Jæja, ég get bætt úr þessu,"
sagði hundasalinn, ,,nú vantar þig
ekkert nema lítinn hund til að vekja
stóra hundinn."
Birna Hrólfsdóttir
sj ónvarpsþulur
Öhætt er að segja, að viss frægðarljómi leiki um sjón-
varpsþulina, og ekki er laust við, að þessar vel snyrtu
konur - ■ Kji umtal og bæði öfund og aðdáun, þegar þær
tala til þjóðannnar af skjánum. Klæðnaður þeirra hefur
jafnvel orðið tilefni blaðaskrifa, og eflaust eru þeir til,
sem halda, að þær verji mestum hluta dagsins i að
snyrta sig og fegra. En allt eru þetta hinar elsku-
legustu stúlkur og orðnar fastir heimilisvinir víða.
I næstu VIKU birtist viðtal við þá yngstu i starfinu,
Birnu Hrólfsdóttur.
I NÆSTU VIKU
,,Brjálaður blaðamaður”
,,Að þessu loknu kom önnur stúlka með alls konar víra
og klemmur og bjóst nú til að koma því fyrir á mér.
Mér datt fyrst í hug rafmagnsstóllinn frægi, en huggaði
mig við það, að engin ástæða væri til að beita mig
slíkum brögðum, jafnvel þótt einhverjum væri kannski
ekk: hlýtt til mín. Eitt augnablik birtist þó fyrirsögn
blaðanna daginn eftir mér fyrir hugskotssjónum
eitthvað á þessa leið: ..Brjálaður blaðamaður bíður
bana". Þetta er örlitið sýnishorn af frásögn blaða-
manns VIKUNNAR, sem fór í rannsókn hjá Hjarta-
vernd. Sjá næsta blað.
Þrír frægir elskhugar
birtast aftur.
Valentino...Casanova...Clark Gable...mestu elskhugar
allra tíma. Það er ekki heiglum hent að feta í fótspor
þeirra, en einmitt i ár hafa þrír leikarar tekið að sér að
bregða sér í gervi þessara frægu manna. Þeir heita
Franco Nero, Donald Sutherland og James Brolin.
Hvað segja þeir um stjörnumar, sem þeir reyna að
endurlífga á hvíta tjaldinu? Við fræðumst nánar um
það í næstu VIKU.
Smásaga um ástir og jól.
Næsta tölublað VIKUNNAR kemur út á Þorláksmessu
svo að jólin koma að sjálfsögðu nokkuð við sögu,
meðal annars í smásögunni, sem nefnist ,,Af frjálsum
vilja” og er eftir Celiu White. Hún fjallar um ungt
kærustupar, sem kynnist að nokkru þeim erfiðleikum,
sem hjónabandið getur haft í för með sér, í gegnum
foreldra stúlkunnar, sem hyggja á skilnað eftir margra
ára hjónaband. Sagan gerist um jól og er bæði hugljúf
og trega blandin.
VIKAN Otgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Guðmundur Karlsson, Sigurjón Jóhannsson, Þórdis Árnadóttir. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson.
Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing
í Siðumúla 12. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 350. Áskriftarverð kr. 3.900 fyrir 13
tölublöð ársfjórðungslega, kr. 7.370 fyrir 26 tölublöð hálfsársiega eða kr. 13.650 í ársáskrift. Áskriftarverð
greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar, mai, ágúst.
51. TBL. VIKAN 9