Vikan

Útgáva

Vikan - 16.12.1976, Síða 11

Vikan - 16.12.1976, Síða 11
Svona til þess aö hugga ykkur i lokin, þá held ég að sú, sem skrifar sé 15 ára. Skriftin er mjög læsileg og fremur áferðarfalleg. Úr skriftinni les ég undirgefni og góðvild. EIN HRIFIN. Kæri Póstur! Ég vona að þú getir hjálpaö mér. Ég er hrifin af strák, sem viö skulum kalla S. Hann var líka hrifinn af mér, en svo barst út sú saga, að ég hefði verið með öðrum og þá held ég að hann hafi misst allan áhuga á mér. Hvað á ég að gera, til þess að hann fái áhugann aftur? Hvað lestu úr skriftinni og hvað heldurðu að ég sé gömul? í guðanna bænum ekki birta nafnið. G.H.Bb. 4. N. Þú verður nú barasta að tala við guttann i snarhasti og útskýra málin. Ef hann er eitthvað hrifinn af þér ættirðu að gata sannfært hann þegar i stað. Annars skaltu láta hann sigla sinn sjó og vera fegin að losna við hann. Úr skriftinni les ég óframfærni. Þú ert 12 eða 13 ára. FERLEG VANDRÆÐI. Elsku Póstur! Ég er í ofsa vanda. Það má varla segja nokkuð við mig, því að þá ,,PLANG" eldroðna ég. Hvað get ég gert (ég er ekki feimin)? Og svo er það annað. Þegar ég hef verið með strák í partýi fæ ég alltaf ógeð á honum eftirá. Um daginn var ég t.d. í partýi (náttúrlega á skallanum) og var með strák, sem ég þoldi svo ekki, þegar fór að renna af mér, og hljóp því út úr herberginu. Núna stríða mér allir á stráknum, en ég er hrifin af öðrum. Hvað get ég gert? Og að lokum. Mér finnst ég ekki mega vera nógu lengi úti á kvöldin og er að verða brjáluð á því að koma inn þegar mömmu sýnist (botninn sleginn). Bið að heilsa ruslakörfunni og vona, að hún hafi ekki lyst á bréfinu. Ein með áhyggjur. P.S. Hvað lestu úr skriftinni og hvernig er hún? Hvað heldurðu að ég sé gömul? Pósturinn vorkennir þér vegna þess ógeðs, sem þú segist fá á hinu gagnstæða kyni, og telur það mjög óeðlilegt. Þú segista/ltaf vera á skallanum og gæti það haft sin áhrif í þessum efnum. Hefur þér ekki dottið það i hug væna min, að vera nú einu sinni edrú og athuga þá hvort allt fer á sömu lund? Áfengisneysla hefur nefni- lega mjög misjöfn áhrif á fólk og gæti því hæglega verið orsök þessara tilfinninga þinna. Þú skalt því beita sjálfa þig hörku og athuga þinn gang, þá gæti þetta allt saman lagast. Við hinum hvimleiða kinnroða getur Pósturinn hins vegar ekki gefið nein óbrigðul ráð og veit ekki til þess að aðrir geti það heldur. Þú verður því líklega að reyna að sætta þig við hann, en stundum eldist hann af fólki. Það er heldur ekkert óeðlilegt við það að roðna, og sumum finnst það bara ,,sjarmerandi". Þú verður að ræða útiverumálin við hana mömmu þina, og það er nú sennilegt, að hún geri þetta i góðri meiningu. Mömmur vita nefnilega oft lengra en nef þeirra ná. Úr skriftinni /es ég sjálfstæði og, þótt þér finnist það ef til vill skrítið, dálitla feimni. Rithöndin er ekki nógu þjálfuð og helst til stórkarlaleg. Þú ert á að giska 15 ára. Álfhildur Jóhannsdóttir, Sörla- skjóli 20, Rvík. óskar eftir penna- vinum á aldrinum 12—14 ára. Hún svarar öllum bréfum. Pá/mi Þór ivarsson, Brekkugötu 11, Akureyri hefur mikinn áhuga á að eignast nokkrar pennvinkonur á aldrinum 13 — 15 ára. Sjálfur er hann 14 ára. Helstu áhugamálin eru: Fótbolti, handbolti, skíði, skautar, sund, böll, útilegur, stelpur og margt fleira. Hann óskar eftir að mynd fylgi fyrsta bréfi, ef hægt er. Halla Úsk Halldórsdótti, Fögru- brekku 24, Kópavogi óskar eftir pennavinum á aldrinum 11 — 13 ára. Randi Andersen, Hellerudfaret 27, Oslo 6, Noregi er 15 ára norsk stúlka, sem hefur áhuga á að komast í bréfasamband við íslend- inga. Hún hefur í hyggju að ferðast til íslands og vill þá gjarnan þekkja einhvern hér. Helstu áhugamálin eru: Hestar (sérstak- lega íslenskir), hundar, alls kyns gæludýr, ferðalög og tónlist. Von- andi vill nú einhver skrifa henni. BLÁSIÐ NÝJU LÍFI í HÁRIÐ! BRAUN hársnyrtitækin eru ein þau fullkomnustu á markaðinum — og hönnunin sérlega glæsileg. ATHYGLISVERÐAST erþað nýjastafrá BRAUN — hársnyrtisettið PLUS 2, en þá er bætt við venjulegt sett úðara og lokkajárni. Þetta þýðiraðsjálfsögðu, aðþérgetiðætíðblásið nýju lífi í hárið — fyrirvaralaust. GOTT VERÐ Þetta glæsilega hársnyrtisett er á góðu verði — kostar kr. 11.900 (október 1976, gæti hækkað fyrirvaralítið). FLEIRI GERÐIR Seljum ennfremur BR AUN krullujárn, hárþurrkur og hár- burstasett sem eru nokkuð ódýrari en PLUS 2. KAUPMENN - KAUPFÉLÖG: Vinsamlegast gerið pantanir á BRAUN vörum sem fyrst. Verslunin PFAFF (heildsala — smásalg) Skólavörðustíg 1 -3, Bergstaðastræti 7 51 TBL VIKAN 1 1

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.