Vikan - 16.12.1976, Qupperneq 18
Vikan kynnir nýjusU
Reach Out heitir verðlaunadansinn,
sem við kynnum fýrst, en höfundar
eru Harpa Pálsdóttir og Heiðar
Ástvaldsson.
Okkur datt í hug, að margir
kynnu að hafa gaman af að kynnast
nýjustu dönsunum, og þvi báðum
við Heíðar Ástvaldsson dans-
kennara að koma til iiðs við okkur. •
Hann tók því ljúfmannlega, og
Ijósmyndari okkar, Jím Smart, festi
á fllmu helstu spor og hreyfingar í
dðnsunum Reach Out, Bump og
Bump Hustle. Það voru Kolbrún
Aðalsteinsdóttir og Hilmar Þórar-
insson sem dönsuðu.
Dansinn Reach Out, sem við
kynnum fyrst, er saminn af Heiðari
Ástvaldssyni og Hörpu Pálsdóttur,
og hlaut hann 1. verðlaun i táninga-
dansakeppni i Grena i Danmörku í
ágúst síðastlíðnum. Keppni þessi
var á vegum Dansk Danselærer-
foreníng.
Dansskólamir þurfa ekki að
kvarta undan áhugaleysi nú allra
siðustu árin, og krakkamir úti á
landi hafa ekki minni áhuga en
krakkamír hér á höfuðborgarsvæð-
inu. Heiðar sýndi okkur til dæmis
bréf undirritað af 97 nemendum á
EgOsstöðum, þar sem nemendumir
báðu hann formlega að koma austur
til að kenna dans þar.
Og þá er að kynna Reach Out:
1. KAFLI.
Byrjun: Standa með þungann í
vinstri fæti, hafa hægri fót fyrir
framan. Hendur niður með hlið-
unum.
Hreyfa mjaðmir til vinstri og
setja mjaðmir aftur í upprunalega
stöðu. Aftur mjaðmir til vinstri og
aftur í upprunalega stöðu. Endur-
taka hreyfingu 1—2, 3—4, 5—6,
7—8. Jafnframt því sem spor 1—8
em stigin færast hendur upp og í
kross 4 (Mynd 1). Síðan áfram upp
og út. Endastaða 8. Hendur mynda
V eða U, Iófar snúa að höfði (Mynd
2. KAFLI.
Spor:
1. Til hliðar i hægri fót.
2. Að með vinstri fót.
3. Til hliðar i hægri fót.
4. Styðja vinstri fæti að hægri
fæti. Hæll á hægri fæti frá gólfi
5. Vinstri fót til hliðar.
6. Að með hægri fót.
7. Til hliðar í vinstri fót.
8. Styðja hægri fæti að vinstri
fæti. Hæll á vinstri fæti frá
HENDUR:
1. Hægri hönd færist niður.
2. Vinstri hönd færist niður.
í ’ r m i m
1 1 1 i. m
1 ■ -MJ
- Hægri hönd færist upp, aðeins
ofar en í axlarhæð.
3. Hægri hönd niður, vinstri hönd
upp.
4. Hægri hönd upp, vinstri hönd
niður.
5. Hægri hönd áfram uppi.
6. Hægri hönd niður, vinstri hönd
færist upp.
7. Hægri hönd upp, vinstri hönd
niður.
8. Hægri hönd niður, vinstri hönd
upp. (Sjá mynd 3).
3. KAFLI
Spor:
1. Snúa 1/8 til hægri og stiga
fram i hægri fót. Táberg í gólf.
(Sjá mynd 4).
2. Spyma sér til baka, að með
hægri fót, snúa 1/8 til vinstri.
3. Snúa 1/8 til vinstri og stíga
fram í vinstri fót, táberg í gólf.
(Mynd 5).
4. Spyma sér til baka, að með
vinstri fót, snúa 1/8 til hægri.
5—6. Endurtaka 1—2.
7—8. Endurtaka 3—4
HENDUR:
1. Höndunum sveiflað fram og að
líkamanum u.þ.b. i axlarhæð,
lófar snúa fram.
2. Höndum sveiflað frá og niður.
3—4. Endurtekið 1—2.
5—6. Endurtekið 1—2
7—8. Endurtekið 1—2:
J næstu Viku kynnum við svo hinn
vinsæla BUMP
*
18 VIKAN 51.TBL.