Vikan - 16.12.1976, Page 50
Kari Lind hóf störf hjá
Dahlberg& Co. um leið og hún hafði
útskrifast úr skólanum. Kari hafði
góðan eiginleika: Sanna og
óeigingjama þjónustulund. Hún tók
öll leiðinlegu verkin að sér. Ef einhver
var niðurdreginn eða þarfnaðist
hjálpar var Kari strax til reiðu.
Til að byrja með kunnu menn að meta
greiðasemi hennar — en síðan þótti
það aðeins sjálfsagt að hún gerði
hlutina.
jólin stóðu sem hœst. Kari
hafði borið hitann og þungann af
undirbúningi þeirra, en nú tók eng-
inn eftir henni. Það eina, sem henni
datt í hug að gera, var að hengja
meira skraut á jólatréð.
Þegar fröken Pedersen komst á
eftirlaunaaldurinn bað Dahlberg
forstjóri hana að finna eftirmann,
og fröken Pedersen valdi Kari Lind.
Hún var sœt og einmitt nýútskrif-
uð sem einkaritari. Hún brosti svo
fallega, og svo var hún svo áhuga-
söm að læra starfið. Hún vann tvær
vikur undir stjórn fröken Pedersen
og kynntist bæði starfinu og sam-
starfsfólkinu fljótt.
Kari hafði ekki einvörðungu
áhuga á að komast sem best inn í
starfið, hún vildi líka verða vinsæl
meðal fólksins. Hún vann öll verk-
efnin hratt og örugglega — var
Lrosmild og vingjarnleg. Síma-
stúlkan féU fy'st fyrir Kari Lind.
Þegar Kari .íafði starfið við fyrir-
tækið í tvo daga, hældi hún Fríðu
fyrir skýra og fallega símarödd.
Gjaldkerinn, Hanne Bang, fann
rauða rós á skrifborðinu einn gráan
haustmorgun — við nánari eftir-
grennslan kom i ljós, að það var
Kari Lind, sem hafði setjt þessa
ilmandi rós þama.
— Hún er sannarlega sæt, sagði
frú Bang — og brátt sögðu allir á
skrifstofunni hjá Dahlberg & Co
það sama. öllum féll vel við hana —
ekki síst Dahlberg forstjóra. Einn
morgun kom hann fyrr en hann var
vanur. Sá eini sem var á undan
honum, var Kari Lind, sem hafði
undirbúið allt fyrir störf dagsins.
Og ekki nóg með það, — á skrif-
borðinu fann hann nokkuð, sem
kom honum á óvart og gladdi hann.
Kari hafði komist að því, að hann
var gefinn fyrir krossgátur. Nú
hafði hún klippt krossgátur út úr
öllum vikublöðum, sem hún hafði
komist yfir, og fært honum. Viku
seinna kom hún með 22 krossgátur
og lagði á skrifborðið hans.
Hún gat meira að segja blíðkað
Reidar Hansen, bókhaldara, þann
durt. Hún hlustaði á hann, meðan
hann býsnaðist yfir ungdómnum
nú til dags, og hún fann til með
SMÁSAGA EFTIR
MARLENE FANTA SHYER