Vikan - 03.03.1977, Qupperneq 44
Pessi litli drengurá uð ffaru til sáifrazðings
Hann hringir bjöllci
Frecids
í fimmtíu ár hefur Anna, dóttir
Freuds, unnið eftir kenningum föður
síns. Hún hefur samt alltaf neitað að
tala nokkuð um hinn fræga föður
sinn. En nú, þegar hún er orðin 80 ára
gömul, hefur hún ákveðið að rjúfa
þögnina. Hún vill nú gera kvikmynd
um sig og föður sinn.
Hún er orðin áttræð, en starfar
þó af fullum krafti á vinnustofu
sinni í Vínarborg. Hinn þekkti
barnasálfræðingur Anna Freud.
Þrátt fyrir það að hún hefur getið
sér frægðarorð fyrir störf sín, er
nafn hennar ekki undanþegið
frægðinni, sem faðir hennar öðlað-
ist. Hann var nefnilega ekki einung-
is faöir hennar, heldur lika ,,faðir
sálfræðinnar, ” umtalaður maður,
þótt 30 ár séu liðin frá dauða hans.
Hann hefur verið hafinn til skýj-
anna og álitinn spámaður i þessum
fræðum, en síðar verið gagnýndur
og ályktanir hans dregnar í efa.
Þessa gagnrýni á einkadóttir
hans erfitt með að þola. Þess vegna
hefur hún tekið þá mikilvægu
ákvörðun að rjúfa þögnina, sem hún
hefur varið sig með í hálfa öld, á
meðan hún fetaði í fótspor föður
síns. Hingað til hefur hún algjör-
lega neitað að tala við blaðamenn og
ljósmyndara, en hefur unnið þegj-
andi, trúföst og einbeitt með hlið-
sjón af þvi, sem faðir hennar lét
henni eftir.
Hún sá um hann síðustu 17 árin,
þegar hann var þjáður af krabba-
meini í hálsi. Þvi er ekki ósennilegt,
að hún búi yfir vitneskju, bæði
vísindalegri og persónulegri.
Þögnin í kringum allt, sem
viðkemur föður hennar, hefur
kannski verið nauðsynleg fyrir
hana bæði af persónulegum og vís-
indalegum ástæðum. Hún hefur
barist til þess að verða eitthvað
sjálf, en ekki einungis eitthvað í
nafni föður síns.
ÆTLAR AÐ GERA KVIKMVND
UM LlF SITT
Þegar hún hefur nú loksins
ákveðið að leysa frá skjóðunni, á
það að verða til gagns. Ekki með
þvi að skrifa endurminningar, held-
ur með áhrifameiri aðferð. Eftir
þessi áttatiu þöglu ár hefur hún
ákveðið að leika sjálf aðalhlutverkið
í mynd um líf sitt. Og til þess að
koma þessu öllu af stað, dregur hún
nú úr pússi sinu gömul skjöl og
bréf, auk samræðna hennar við
föðurinn.
Það, sem fær hana til þess, er hin
stöðuga gagnrýni á föður hennar,
sem henni finnst skyggja á minn-
ingu hans. Hún vill ekki heyra það
nefnt, að faðir hennar hafi verið
ofmetinn og að þrátt fyrir allt sé
sálgreining aðeins lítill hluti af
geðlæknisfræðinni í heild. Sumir
visindamenn ganga jafnvel svo
langt að segja, að við getum ekkert
lært lengur af Freud. Það sé liklega
best að gleyma honum sem fyrst.
SAMFÉLAGIÐ ER VEIKT,
EN EKKI MANNESKJAN
Stór hluti gagnrýnenda hefur
fengið stuðning hjá félagsfræðing-
um, sem halda því fram, að
kenninar Freuds lagi fólkið eftir því
44VIKAN 9. TBL.