Vikan - 05.05.1977, Qupperneq 6
Kimnigáfan er fyrir öllu
Þótt Glenda sé ófús að ræða
giftingaráform, hefur hún ekkert á
móti þvi að upplýsa, hvað laðar
hana svo sterkt að Andy.
— Hann fær mig til að hlæja.
Kímnigáfa er aldeilis ómetanleg
náðargáfa. Ég vil gera hvað sem er
fyrir þann, sem fær mig til að
hlæja. Annars held ég í rauninni. að
enginn elski annan vegna eiginleika
hans, heldur miklu fremur vegna
eigin afstöðu. Tilfinningar minar
núna eru ekkert svipaðar þeim, sem
ég bar til Roys, þegar ég var 21 árs.
Ég er orðin fertug og allt önnur
manneskja en ungpian, sem ég þá
var. En hvort ég er fullþroskuð, er
ég ekki svo viss um. Ég held satt að
segja, að það vanti mikið á það. Til
dæmis hef ég ekki enn getað vanið
mig af þvi að reiðast heimskum og
klaufalegum framreiðslustúlkum!
Vill gjarnan vinna með konum.
Glenda er svo hátt skrifuð; að
hún getur valið og hafnað hlutverk-
um að geðþótta. Sem stendur leikur
hún nunnu, hlutverk, sem liklegt
er, að auki á hróður hennar. Valda-
baráttan er uppistaðan í myndinni
og sagan er raunar hliðstæð við
Watergatemálið. Það á að kjósa
nýja abbadís, og Glenda leikur
systur Alexöndru, sem svífst einsk-
is til að tryggja kjör sitt, hvorki
innbrot né annað. Glenda er mjög
ánægð með meðleikara sfna, en
þeirra á meðal eru Melina Mercouri,
Geraldine Page, Edith Evans og
Susan Penhaligon.
— Ég fæ sjaldan tækifæri til að
leika með öðrum leikkonum. Venju-
lega er aðeins eitt aðalkvenhlutverk
i kvikmyndum. Ekki svo að skilja,
að ég hafi neit.t á móti karlmönnum,
en mér finnst ánægjulegt að fá á
vinna öðru hverju með konum.
Hlutverk Alexöndru er mjög áhuga-
vert. Hún vill fyrir alla muni öðlast
virðingu, en verður hlægileg i
viðleitni sinni og ennþá hlægilegri
vegna þeirrar aðstöðu, sem hún er í.
Verðlaun gera mann ekki betri
Talið berst að Óskarsverðlaun-
unum, en Glenda hefur lítinn áhuga
á því umræðuefni.
— Slík verðlaun gera engan betri
leikara. Auðvitað getur viður-
kenning af þessu tagi haft sin áhrif.
En það getur beinlinis spillt fyrir
leikaranum, ef hann er sifellt með
það i huga að vinna til verðlauna.
Ég ber slíka virðingu bæði fyrir
sjálfri mér og minu starfi, að ég
reyni alltaf að gera mitt besta. Það
nægir mér. Ég hef litinn áhuga á
almenningshylli, eða að sýna mig
við hverja einustu frumsýningu og
fá myndir af mér í blöðum og
tímaritum. Ég er leikari, ekki
söluvara.
— Maður má aldrei vera hræddur
við að vera maður sjálfur. Það hefur
það meðal annars i för með sér, að
fólki mislíkar ýmislegt við mann, en
ég er á móti því að bæla niður
eiginleika til þess að falla inn i þá
mynd, sem annað fólk vill gera af
manni. Ég vil hafa leyfi til að hafa
mina eigin skoðanir. Reynist þær
rangar, þá er ábyrgðin eingöngu
min.
Glenda Jackson hefur leikið aðal-
hlutverk á sviði i eftirtöldum
leikritum;
„Marat/Sade” (í New York
og París 1965) 1965
,,The Investigation” ”65
„Hamlet” ”65 — ”66
,,Three Sisters” ”67
„Collaborators” ”73
,,The Maids” ”74
,,Hedda Gabler” ”75
Einnig hefur hún leikið í eftir-
töldum kvikmyndum:
,,Marat/Sade” 1966
„Women in Love” 1969
,,The Music Lovers” 1970
„Sunday, Bloody Sunday” 1971
,,The Boy Friend” 1971
,,Mary Queen of Scots” 1972
..Isabella of Spain” 1972
„The Triple Echo” 1972
„Bequest to the Nation” 1972
„A Touch of Class” 1973
„The Romantic Englishwoman” 1975
Tvisvar hefur Glenda hlotið
Óskarsverðlaun. Fyrir „Women in
Love” (1971) og ,,A Touch of
Class” (1974).
3 nýír smurostar
9 stœrriöskjur-
lœkkað verð
Ostarnir eru mýkri en
áður og bragðið breytt
Oskjurnar eru
bráðfallegar—
hreinasta borðprýði.
Og verðið '
hefur lækkað.
Rækju-, sveppa- og
paprikuostur eru því
veizlukostur
til daglegrar neyzlu