Vikan


Vikan - 05.05.1977, Blaðsíða 37

Vikan - 05.05.1977, Blaðsíða 37
„Hvers vegna elti faðir þinn þig hingað?” spurði ég. „Ég held að hann hafi nú ekki beinlínis elt mig. Frá skattasjónar- miði var Malta hreinasta paradís, enda hélt hann áfram bresku ríkisfangi. Síðan komst hann að þeirri niðurstöðu, að Gozo, þessi rólega eyja, væri betur til þess fallin að flytja listaverkaþjófa frá Evrópu og yfir til Afríku.” „Sagði Noni þér frá þessu?” „Nei,” svaraði Randal. „Það varð að samkomulagi okkar í milli að ræða aldrei um málefni föður okkar.” „Þú vissir þá ekki hvað hann hafðist að?” „Nei,” sagði hann og hleypti brúnum. „En mig grunaði svo sem, að hann væri við sama heygarðs- hornið, ef það gerir mig samsekan.” „Grunur og vitneskja er ekki sami hluturinn,” svaraði ég ákveð- in. Mér varð hugsað til lögfræð- ingsins, sem hafði misst réttindi sín, en þóst vera sestur í helgan stein. Því næst minntist ég föður mins og Michaels, sem hafði drepið þá báða. Hann var enn á lífi einhvers staðar á þessari eyju. Ég var viss um, að ekki liði á löngu þar til lögreglan hefði hendur i hári hans. Eitt sinn hafði ég elskað þennan mann, en nú stóð mér nákvæmlega á sama um hann. Randal og ég fórum bakdyra- megin inn i hótelið og þar rákumst við á Noni. „Nei, sko turtildúfur- ar.” sagði hún. „En hrífandi.” Hún var jafn falleg og endranær. Það glampaði á ljóst hár hennar og við hlið hennar stóð lítil ferðataska. „Hvað ertu að gera?” sagði Randal reiðilega, þótt það lægi i augum uppi, að hún var að fara. „Eins og þú sérð, er ég að bíða eftir leigubíl,” svaraði hún og yppti öxlum. „Mér þykir það leitt Randal, en þessi lokaathöfn er ekki fyrir minn smekk. Að vera fátækur en heiðarlegur skírskotar ekki til min.” „Já, en faðir okkar er látinn, þú veist það.” Sem snöggvast varð hún annars hugar og fallegur munnur hennar titraði. Síðan sagði hún: „Það er sumpart þess vegna, sem ég er á förum. Ég var einum of flækt í málefni hans, en ekki saklaus eins og þú. Gozo er ekki lengur að mínu skapi.” Hún gaf í skyn, að hún ætlaði að hitta Michael, en ég gat ekki annað en varað hana við. „Noni, það var Michael, sem skaut föður þinn. Og hann drap lika föður minn.” Hún starði á mig, en sagði svo að lokum: „Alexa, þú kannt ekki við mig, en ég gerði þér mikinn greiða með þvi að taka Michael frá þér.” Ég undraðist hversu róleg hún var: „Vissirðu, að hann drap föður þinn?” „Nei, ekki fyrir víst. En hann var til alls vís. Þess vegna kunni ég svona vel við hann. ” Hún leit á mig með fyrirlitningu. „Hann hafði til að bera eiginleika, sem þú myndir aldrei kunna að meta.” „Hafði?” Noni yppti aftur öxlum. „Já, hvað mig áhrærir þá tilheyrir hann fortiðinni, hvort sem hann næst eða ekki.” „Og hvert hyggstu fara?” spurði Randal hvasst. „Túnis? Suður-Ameriku? Ætli sé ekki best fyrir þig að vita sem minnst um það. Hérna kemur leigubíllinn minn. Hafið það gott.” Hún veifaði okkur um leið og hún hljóp út i rigninguna. „Hún kemst undan," sagði ég við Randal og vildi með því hugga hann, en ég var raunar einnig nokkuð sannfærð um það. Strax og óveðrinu slotaði yrðu hraðbátar og lystisnekkjur aftur í förum og Noni myndi áreiðanlega takast að útvega sér far. „Vertu ekki svona dapur á svipinn," sagði ég og strauk honum um vangann. Hann þrýsti mér að sér og hvíslaði nafn mitt. Síðan kysstumst við, kysstumst aftur og sælutilfinning fór um mig alla. „Ég ætti að fara aftur til London,” sagði ég. „Erindi mínu hér er lokið.” „Innan skamms ætla ég að loka hótelinu i nokkrar vikur, sagði Randal. „Ég gæti þvi farið til London lika.” Ég fann að hiarta mitt sló örar. Hvernig gat mér dottið í hug, að ég myndi aftur ánetjast karlmanni? En nú hafði það einmitt gerst. Endir. mest seldi bíll 1976 PETTA EIGA BILAR AÐKOSTA Skoda Amigo er mjög falleg og stílhrein bifreió. Hun er buin fjölda tæknilegra nýjunga og öryggió hefur verió aukió til muna. Komió og skoóió þessa einstöku bifreió JOFUR HF Tékkneska bifreióaumboóió ó Islandi AUÐBREKKU 44-46 - KOPAVOGI - SIMI 42600 18. TBL. VIKAN37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.