Vikan


Vikan - 05.05.1977, Blaðsíða 22

Vikan - 05.05.1977, Blaðsíða 22
apríl að verðmæti 30 milljónir. MÖGUtíJ'Jj OUU utanferðir á 100, 200 og 300 þúsund / krónur hver. (C I UU bílavinningar á hálfa og eina milljón - þar af eru þrír valdir bílar: ÍMazda í Maí Simca í Ágúst Capri í Október. IU íbúóarvinningar á 3 og 5 milljónir. Ótal húsbúnaðarvinningar á 10, 25 og 50 þúsund hver. Sala á lausum miðum er hafin og einnig endurnýjun flokksmiða og ársmiða. Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld Happdrættí YW Nýtt happdrættisár TVö einbýlishús! Furulundur 9, Garðabæ útdregið í júlí að verðmæti 25 millj. og aóalvinningur ársins Hæðabyggð 28, Garðabæ útdregió í Af þessari ástæðu bý ég nálægt hinni víðu og frjálsu náttúru og get komist þangað, þegar þessi skuggi hvílir yfir sál minni; og þá er auð náttúran mjög unaðsleg undir stormasömum himninum. Þegar ég bjó í London var hryllingurinn næstum óþolandi. Ég komst ekki burt frá fólkinu; raddir þess bárust inn um gluggana, og læstar dyr voru ótraustur öryggisbúnaður. Ég fór oft út á göturnar til að berjast við blekkingu mina, og þá mjálm- uðu gangandi strætisdrósir á eftir mér, laumulegir, heimtufrekir menn litu mig öfundaraugum, þreyttir, fölir verkamenn gengu hóstandi fram hjá mér með þreytuleg augu og greikkuðu sporið eins og særðir hirtir, gamalt fólk, bogið og dauflegt, fór fram hjá og talaði við sjálft sig, og enginn skeytti neitt um röð tötralegra bama, sem vom að reyna að hrella vegfarenduma. Svo skaust ég venjulega inn í eitthvert guðshús, en ég var svo truflaður, að jafnvel þar virtist mér prédikarinn þvogla „stórar hugs- anir” rétt eins og apamaðurinn hafði gert; eða ég fór inn á eitthvert safn, og þar virtust áköf andlitin yfir bókunum ekki vera annað en þolinmóðar skepnur, sem biðu eftir ránsfeng. Tjáningarlaus andlit fólks í lestum og strætisvögnum Hrelldu mig þó sérstaklega. Það virtust ekki vera samtímamenn mínir fremur en lik, svo að ég þorði ekki að ferðast nema ég væri viss um að geta verið einn. Og jafnvel ég virtist heldur ekki vera skynsamleg vera, heldur aðeins dýr, sem kvaldist af einhverju einkennilegu ólagi, sem var á heilanum og kom mér til að fara einförum eins og vönkuð kind. En þetta er hugarástand, sem ég kemst sjaldnar i núna — guði sé lof. Ég hef dregið mig út úr ys og þys borga og mannmergðar og eyði dögunum yfir fræðibókum fyrir innan bjarta glugga, í þessu lífi okkar, sem er lýst upp af skínandi mannssálum. Ég sé fáa ókunnuga og hef aðeins lítið heimilishald. Dagana helga ég lestri og tilraunum i efnafræði, og ég eyði mörgum heiðskirum nóttum í stjörnuskoð- un. Hinum glitrandi herskörum himnanna fylgir tilfinning um óendanlegan frið og vernd, þótt ég viti ekki, hvernig þessu er háttað eða hvernig á því stendur. Ég held, að i þessu, í hinum stórkostlegu og eilífu lögmálum efnisins, en ekki í daglegu-' áhyggjum.og syndum og erfiðleikum manna, hljóti allt, sem í okkur býr og er æðra dýrunum, að finna huggun sína og von. Ég vona, því að annars gæti ég ekki lifað. Og þannig, í von og einveru, endar saga min. EDWARD PRENDICK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.