Vikan - 05.05.1977, Síða 45
dæmisins þýska. Það var siðan
endurnýjað af heimamönnum með
það í huga að hýsa kaupsýslumenn.
Cutter valdi það, af þvi að það var
stutt frá Hótel Kilimanjaro, þar
sem Lapautre hafði sést. Auk þess
var það — öfugt við hið glæsilega
Kilimanjaro — hliðstæða evrópskra
hótela, þar sem kaupsýslumenn
gistu, og enginn þurfti að leggja að
sér til að líta út eins og ferðamaður.
Tímamismunurinn hafði truflandi
áhrif. Klukkan var næstum þvi það
sama, þegar þeir lentu í Dar-es-
Salaam og hún hafði verið, þegar
þeir lögðu upp í förina. Ross fannst
það væri snemma morguns, og
hann var óstöðugur á fótunum,
þegar hann fylgdi á eftir Cutter til
bækistöðvanna, sem Arbuckle hafði
i sóðalegri útflutningsskrifstofu.
Sem betur fer var loftið ekki eins
kæfandi heitt og rakt og hann hafði
ímyndað sér. Svalur andvari bles af
hafi, og hann varð að viðurkenna,
að fegurri höfn hafði hann aldrei
séð, umlukta pálmavöxnum strönd-
um, þar sem ríkmannleg og
glæsileg hús stóðu í hallanum upp
frá ströndinni. Elstu húsin í bænum
voru fátækleg, en annars var borgin
nýtískulegri en hann hafði vænst,
og þarna var iðandi mannlif. Á
aðalgötunum var stöðug umferð,
og á gangstéttunum mátti sjá fólk
klætt á vestræna visu innan um
sólbrennda araba, dökkeyga asiu-
búa og afríkumenn í sinum skraut-
legu ættarbúningum. Annað veifið
ók vörubíll framhjá með vopnaða
hermenn, en það var enginn asi á
þeim og ekkert, sem benti til þess
að hér var lögregluriki.
Þarna voru geysimargar smá-
verslanir, sem buðu upp á margs
konar varning, bæði ósvikna afriska
minjagripi og glysvarning, sem
ferðamenn láta alltaf glepjast af.
Gluggaskreytingarnar í stórversl-
ununum gátu verið í hvaða Evrópu-
landi sem var. Það var ekki fyrr en
þeir voru komnir upp á skrifstofuna
til Arbuckle, að Ross varð ljóst, að
þeir höfðu ekki orðið fyrir ágengni
betlara.
Arbuckle var hár maður vexti og
magur, hann var sköllóttur og
taugaóstyrkur. Hann hafði mikil-
vægar upplýsingar að gefa til
viðbótar þvi, sem Meyerson hafði
sagt: Lapautre var ennþá í Dar. —
Við höfum fylgst með henni. Hún
býr á herbergi númer 411 á
Kilimanjaro og borðar yfirleitt
hádegisverð í borðsalnum í Hótel
Nýja Afrika. Það er sagt, að buffin
þar séu bragðbetri. Gætið þess að
ganga ekki í flasið á henni. Hún
þekkir þig trúlega í sjón, Cutter.
— Já, það kæmi mér heldur ekki
á óvart, að hún hefði lesið mikinn
doðrant um mig. En Ross þekkir
hún ekki, sagði Cutter.
— Stundum getur það verið
kostur að vera óþekktur, skaut
Ross inn i.
— Rétt er það, sagði Cutter.
Þegar þeir gengu út af skrifstofunni
bætti hann við: — Nú máttu fara
aftur til hótelsins og sofa út.
— En hvað með þig sjálfan?
— Ég ætla að líta aðeins nánar i
kringum mig. Við hittumst við
morgunverðinn — klukkan sjö.
— Þú getur að minnsta kosti sagt
mér aðeins, hvað þú ætlar....
Cutter greip fram í fyrir honum:
— Ég gef þér engar upplýsingar,
fyrr en þú hefur fengið sextán tíma
svefn, minnst....
— Þarft þú sjálfur aldrei að sofa?
— Jú, þegar ég hefi ekkert annað
betra með tímann að gera.
Ross stóð lengi og horfði á eftir
honum, þar sem hann hvarf á milli
pálmatrjánna.
Hann var glorhungraður, þegar
hann kom niður í borðsalinn á
annarri hæð, þar sem Cutter sat.
Morgunverðarborðið svignaði und-
an kræsingunum, ávöxtum, brauði,
kjöti og ávaxtadrykk. Ross tók vel
á diskinn sinn og byrjaði að borða
með góðri lyst.
Salurinn var næstum fullsetinn,
þarna voru verslunarmenn frá
Evrópu og austurlöndum fjær,
afrískir embættismenn, nokkrir
ferðamenn, hópur englendinga,
greinilega verkfræðingar, sem voru
ráðgefandi við iðnfyrirtæki tansan-
iumanna, og einnig voru þarna
ameríkanar í safarifötum, sem
greinilega voru framleidd i Holly-
wood. Cutter sagði á lægri nótun-
um: — Eg valdi þetta borð af
handahófi. Með því átti hann líklega
við, að ekki væru hljóðnemar faldir
í því.
— Jæja, já, sagði Ross, — þá
getum við óhræddir rætt um
viðkvæhi ríkisleyndarmál.
Cutter smakkaði á kaffinu og
fitjaði upp á nefið:
— Fjandinn, bölvaður óþverri er
þetta. Þeir kunna að rækta kaffi í
þessu landi, en ekki hella upp á.
Hann setti bollann frá sér. — Það er
hættuleg kona, sem við eigum við
að etja, þú er sennilega viss á því.
Framhald í næsta blaði.
18. TBL. VIKAN45