Vikan


Vikan - 05.05.1977, Page 48

Vikan - 05.05.1977, Page 48
Wkan fer í búðir PÖLSKA BÚÐIN, Verslana- höllinni og í Glæsibæ, selur þessar skemmtilegu gamaldags uppþvottagrindur. Þær eru úr tré, og skilja því ekki eftir rákir á diskunum eins og svo oft vilja koma af plastgrindunum. Svona grind kostar 2.600 kr. LF.IKFANGABÚÐIN, Lauga- vegi 72, selur þessi stórsniðugu töfrateiknibretti, sem eru ætluð frá 6 ára aldri og upp úr. Hægt er aðteikna ólíklegustu myndirmeð því að snúa tveimur tökkum. Þau kosta kr. 2.750. Skrautgripaverslun Jóns Dal- mannssonar, GULLKISTAN, Frakkastíg 10, hefur mikið úrval af fallegu þjóðbúningaskrauti, bæði úr gulli og silfri. Búninga- siifrið á þessari mynd kostar um kr. 85.000, en sams konar úr gulli kostar um kr. 95.000. Hægt er að fá mörg mynstur, og er þetta selt i stöku, svo hægt er að safna smám saman. Hjá versluninni LIVERPOOL, Laugavegi 18a, fást þessir sólstólar, sem eru með sérstak- lega háu baki. Hægt er að leggja bak niður og fótaskemil upp. Svona sólstólar fást í mjög fjölbreyttu úrvali hjá Liverpool og á mismunandi verði, en þessi kostar 8.100 kr. Þessar fallegu barnapeysur fást í barnafataversluninni LILLY í Verslanahöllinni. Jakkapeysan er úr ull og acryl og fæst í þremur litum í stærðunum 1-6. Kosta þær frá kr. 2.200. Peysan innanundir er rúllukragapeysa úr acryl, fæst í 6 litum og kostar aðeins kr. 720. Stærðirnar eru frá 0-6. Þetta fallega, þýska stálhnífa- parasett fæst hjá G. B. SILFURBÚÐINNI, Laugavegi 55 og kostar kr. 4.400 fyrir manninn. Hægt er að kaupa hvern hlut stakan. SMASAGA EFTIR ELVI RHODES. Hefurðu einhverntíma orðið yfir þig ástfangin? — Það hef ég orðið — af fallegustu skóm, sem ég hef séð. Vandræðin voru bara þau, að þeir pössuðu ekki á mig.... Þarna er hann, í hillunni þar sem „afsláttarskórnir” eru. Hann er nærri falinn á bak við skó með þykkum botni og rauðum böndum, eins og hann skipti engu máli. Einmitt þegar ég hafði gefið upp alla von að finna slikan skó. Og ég var farin að örvænta, því brúð- kaupið er á laugardaginn. Ætli hann passi á mig? Góði guð, ég bið í hljóði, um leið og ég tek hann úr hillunni. Góði guð, láttu hann vera númer 38, og ég lofa að vera góð stúlka það sem ég á eftir ólifað. Hann er fallega grænn á litinn, einmitt liturinn, sem passar við brúðarmeyjarkjólinn minn. Hann er úr ekta leðri, með öklaböndum. Hællinn, þökk sé mínum sæla, er af réttri hæð. Gerðu það, gerðu það, láttu hann vera númer 38! Drottinn — þetta er refsing fyrir gamlar syndir? Hann er númer 37 1/2. Hvað um það, ég ætla að máta hann. Sá sem hefur mátað eins marga skó og ég hef gert í þessari viku mun vera mér sammála um, að stærðirnar geta verið mismunandi. Ég geng með skóinn innar í verslunina til að reyna að finna hinn. Allt er troðfullt hér, eins og allir í Brighton hafi valið sér þennan fimmtudagsmorgun til að kaupa sér skó. Hjörð kvenna, sem fer milli skóbúða til að leita sér að skóm. En þær eru fáar, sem eru að leita að grænum leðurskóm, hugga ég mig við. Afgreiðslustúlkan, með skóhorn í hendinni, lítur á mig með fjarræn- um svip. Ég veifa græna fjársjóðn- um framan í hana. „Vilduð þér vera svo góðar að láta mig fá hinn skóinn!” Hún kemur með hann til mín. Einn skór er yndislegur, tveir eru stórkostlegir. „Ég nota nú yfirleitt númer 38,” útskýri ég. „Því miður, þá er þetta eina parið. Þetta er sýnishorn.” „Kannski er þetta 37 1/2 í stóru númeri” segi ég bjartsýn. „Gæti verið.” Við erum sammála um, að stærðirnar séu mismunandi, svo ég máta þá. Ö! Æ! Þeir eru... ja... þröngir! Það þýðir ekki að neita því. En ég kemst í þá. Og með því að festa spennuna í fyrsta gatið get ég sett bandið um öklann. „Þú verður nú auðvitað aldrei í þeim við gallabuxur,” segir af- greiðslustúlkan sannfærandi. Það er rétt hjá henni. Ekki heldur við leðurjakka og ullarhúfu. Ég bretti buxunum upp á miðja kálfa og horfi á fætur mina i stóra speglinum. Þessir skór eiga heldur ekki skilið, að þeir séu notaðir við fjólubláa stuttsokka. En það skiptir ekki máli. Þeir eru sem skapaðir fyrir brúðarmeyjarkjólinn minn. Það sem meginmáli skiptir er: Get ég gengið í þeim? Svona nokkurn veginn. Ég kemst yfir að speglinum, án þess að þjást of mikið. „Auðvitað koma þeir til með að víkka,” segi ég. Afgreiðslustúlkan er sammála. „Fæturnir þrútna af að ganga svona á milli verslana. Þeir hljóta að víkka.” Já, allir vita, að skór vikka. En þeir vikka ekki frá fimmtudegi til laugardags, segir innri rödd min. Ég læt sem ég heyri ekki til hennar og kaupi skóna. Laugardagurinn rennur alltof fljótt upp. Flýta sér, flýta sér, flýta sér. Fyrirmæli brúðarinnar — Susan, bestu vinkonu minnar — eru að fara beint til kirkjunnar og bíða hennar þar. „Ég þyldi ekki að hafa ykkur mömmu báðar með læti í kringum mig,” segir hún. „Það yrði alveg hræðilegt.” Þetta kemur mér vel. Ég hef nægan tima fyrir sjálfa mig. Ég ligg lengi í baðinu. Siðan set ég á mig svitalyktareyði, smyr á mig ilmandi 48VIKAN18. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.