Vikan - 13.10.1977, Síða 9
— Geturðu ekki blásið hraðara
ástin mín, ég lofaöi að hitta
strákana á golfvellinum klukk-
an tvö.
— Þetta er sonur minn. Þú
setur hann inn í starfið þitt á
hálftíma.
— Méfr’Bengm Wa að leggja
sömu tilfinningu ( mótmæla-
söngvana eftir að ég varö
milljónari.
— í rauninni kom ég bara til að
láta fjarlælgja inngróna nögl á
stórutánni, en ég datt af
sjúkrabekknum.
í NÆSTU VIKU
ÍRANIR ERU EKKI
ARABAR
Karl Monney heitir íslenskur byggingaverkfrœðingur,
sem er búsettur í Skotlandi, en starfar um þessar
mundir í Iran. Vikan náði tali af Karli fyrir skömmu og
fékk hjá honum heilmikla vitneskju um íran og írani. í
Iran er iðnvæðing rétt að hefjast, en þjóðin er geysilega
rík, enda eiga íranir einhvem stærsta gjaldeyrisforða í
heimi. Samt er margt ennþá í hálfgerðum aldamótastíl.
Meira um það í næstu Viku.
1
SKAKPARTY
Hinn ungi og snjalli skákmaður okkar, Jón L. Ámason,
gerði sér lítið fyrir og kom heim með heimsmeistaratitil
í skák, 17 ára og yngri. I næsta blaði birtum við
litmyndir, sem teknar vom í ráðherrabústaðnum er
Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra, efndi
til veislu fyrir hinn unga skákmeistara, forystumenn
skákhreyfingarinnar og fleiri gesti.
MARX OG FROST
I næstu Viku birtum við greinar um leikarann Groucho
Marx og sjónvarpsmanninn David Frost. Eitt af því
síðasta, sem haft er eftir leikaranum fræga Groucho
Marx er: „Bræður minir lofuðu að gefa mér merki að
ofan, ef þar væri eitthvað skemmtilegt að hafa. Þeir
hafa aldrei kallað á mig.”
Sjónvarpsmanninn David Frost er víst óþarft að
kynna. Á annan áratug hefur hann gert skemmti- og
viðtalsþætti fyrir sjónvarp og hafa margir þeirra hlotið
heimsfrægð — nú siðast viðtalsþættir við Nixon
fyrmm Bandaríkjaforseta.
NÝ FRAMHALDSSAGA
í næstu Viku hefst ný framhaldssaga, Boðberar óttans
eftir Dorothy Simpson. „Litil ferhyrnd kort.forboðar
haturs. Skilningslaus eiginmaður og efagjarn læknir,
einhver sem hún ekki sá en fann að fylgdist með henni.
Nægilegur hryllingur til að gera unga, vanfæra konu
vitskerta. Sara vissi, að sá sem sendi kortin hafði verið
inni á heimili hennar á meðan hún svaf. Hræðsla hennar
óx... Óttinn hafði jafnvel lagt undir sig hennar eigið
heimiii.”
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristin Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Anna Kristine Magnúsdóttir, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari:
Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn og auglýsingar i Siðumúla 12. Simar
35320—35323. Afgreiðsla og dreifíng i Þverholti 11. Simi 36720. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 400.
Áskriftarverð kr. 1500 pr. mánuð, kr. 4500 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 8460 fyrir 26 tölubl.
hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar, maí, ágúst.
41.TBL. VIKAN9