Vikan


Vikan - 13.10.1977, Blaðsíða 48

Vikan - 13.10.1977, Blaðsíða 48
SKRÍTIÐ FÓSTUR Kæri draumráðandi! Mig langar til þess að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem mig dreymdi fyrir hálfu ári. Ég vil taka það fram, að ég og systir mín vorum báðar barnshafandi, þegar mig dreymdi þetta, en draumurinn hefur setið ansi lengi í mér. Mérfannst ég vera að klifra upp stóran moldarhaug, og þegar ég var kominn næstum því upp fannst mér ég vera komin með lítinn stiga, sem égt hélt í. Mér fannst síðasti spölurinn lang erfiðastur, en komst þó alla leið upp og hitti þar systur mína, sem heitir Júlíana. Við settumst fyrir framan hús, sem var hvítt að lit, og mér fannst ég vera ófrísk, en ekki systir mín. Sá ég fóstrið, sem ég gekk með, í gegnum magann á mér, og mér fannst systir mín segja: „Eigum við að taka það aðeins út." Við gerðum það, og var barnið stúlka. Hún var með blá augu, annað dökkt, en hitt Ijóst, og fannst mér dekkra augað vera miklu skærara. Svo fannst mér barnið vera með þrjá dökka fæðingarbletti. Einn á eyranu, en hina tvo á öðrum handleggnum. Ég strauk blettinn á eyranu, og var þá-einsog hann væri laus (eins og olía eða eitthvað þess háttar), og þurrkaði ég hann af. Þá fannst mérsystir mín segja: ,,Við skulum setja það aftur í magann, áður en þeir koma." Mér fannst hún vera að tala um læknana, og við settum barnið aftur í magann, og við það vaknaði ég. Svo langar mig til að vita, hvað það merkir að dreyma, að barn sé að taka tennur eða sé komið með tennur. Vonandi geturðu ráðið eitthvað úr þessu fyrir mig. Með fyrirfram þökk, H.J. Draumurinn boðar þér einhverja erfið/eika, sem virðast í fyrstu óyfirstígan/egir, en þér tekst þó að komast yfir án aðstoðar annarra. Fæðingarb/ettirnir eru viövörun. Þú skalt gæta þin vei á nýjum kunningjum, sem þú kannt að eignast. Þú færð góðar fréttir og verður mjög hamingjusöm i fram- tíðinni. Faiiegar tennur í draumi boða hamingju og góða stöðu. í VONDU SKAPI Kæri draumráðandi! Fyrirstuttu dreymdi mig draum, sem ég get ekki gleymt, en hann var á þessa leið: Mig dreymdi Eg var í vondu skapi og ætlaði að kveikja í mér. Svo þegar ég var byrjuð á því, hætti ég við það og fann þá, að það var komið gat á hausinn á mér og það sást í heilann. Ég fór til læknis, og hann læknaði þetta alveg. Síðan vakn- aði ég. Með þökk fyrir birtinguna, Trilla Þú iendir senniiega í harkaiegu rifriidi við einhvern, sem er þér nákominn. Varaðu þig á því að iáta skapið hiaupa með þig í gönur í þetta skipti, því það gæti haft s/æmar afieiöingar í för með sér. BARSMÍÐ OG MATARBOÐ Kæri draumráðandi! Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig tvo drauma, og er hinn fyrri svona: Mér fannst ég vera stödd í sjoppu og var í rauðu bikini, af því að ég hafði verið í sólbaði. Allt í einu komu pabbi og mamma inn í sjoppuna, og þegar ég leit á þau, sá ég, að pabbi hafði barið mömmu. Mér fannst ég hlaupa grátandi til þeirra, en þá fór pabbi út. Ég reyndi að hugga mömmu, og svo fannst mér við fara að leita að pabba. Við vorum á bíl og ókum mjög lengi. Loksins þegar við fundum hann, var hann á leiðinni heim, og við það vaknaði ég- Hinn draumurinn var á þessa leið: Mér fannst ég vera boðin í mat. Þegar ég kom á staðinn, þar sem boðið var haldið, fannst mér ég og strákur, sem ég þekki mjög vel, borða saman. Borðið, sem við sátum við var brúnt, frekar stórt, og það voru stengur upp með hverju horni, en rautt þak yfir því. En þetta var mjög flott matarborö. Þannig endaði þessi draumur. Með þökk fyrir birtinguna. 8138-9365 PS Fyrir hverju er að dreyma kven- mannsnöfnin Sjöfn og Lilja. Móðir þín verður senniiega fyrir einhverju happi, áður en langt um iíður, en þaö er þó ekki endiiega þér viðkomandi, þótt þú kunnir að njóta góðs af. Hinsvegar munu þú og strákurinn í seinni draumnum verða fyrir einhverju eignatapi eða eyða fjármunum tii einskis. Nafnið Sjöfn í draumi er fyrir velgengni I ástamálum, en Lilja er fyrir einhverri upphefð. HALLÓ ÍRIS! Kæri draumráðandi! Hér hef ég einn draum handa þér að ráða: Mér fannst ég vera á gangi í kringum stóra og fallega grasflöt, en með mér var margt fólk, sem náði umhverfis flötina. Inni í hringnum var ekkert nema grænt gras. Mér datt snöggvast í hug að líta aftur fyrir mig og athuga, hvort ég sæi þar fyrrverandi vin minn, sem ég kom strax auga á. Hann brosti til mín, ég þóttist ekki sjá hann og ákvað að ganga út úr röðinni. Ég lagðist á magann í grasið til þess að fela mig fyrir honum, en hann hafði komið auga á mig, gekk til mín og sagði: „Halló írisl", en ég svaraði honum ekki. Hann heilsaði mér aftur, og þá sagði ég: „Djöfull er hann Rúnar vinur þinn orðinn ógeðslegur, eins og hann var nú myndarlegur einu sinni." „Nú, finnst þér það," sagði hann þá. Vonandi geturðu ráðið þennan draum fljótlega. iris. Þú verður einhverrar ánægju aðnjótandi innan tíöar, en hins vegar er hætt við, að einhver fjö/skyldumeðlimur muni skapa miklar áhyggjur vegna svika og óheilinda. Þú verður sennilega mikið heima fyrir á næstunni. BÓKAFLÓÐ Kæri draumráðandi! Ég sendi þér hérna draum, sem mig dreymdi fyrir nokkru og hef mikið hugsaö um. Vonandi get- urðu ráðið eitthvað úr honum fyrir mig. Mér fannst ég vera í ókunnu húsi. I kringum mig voru staflar af bókum, en ég sat í stól og var að lesa í gífurlega stórri bók, sem var með mjög skrítnu letri. Allt ( einu fannst mér ég vera búin að gleyma, hvað bókin hét og ætlaði að athuga það, en fann þá hvergi fremstu síðuna úr henni og fór að leita að henni um allt herbergið. Loksins fann ég það samanbrotiö ofan í skúffu, og á því stóð: „Ævintýri og skrýtlur stóru, fínu prinsessunnar eftir Dísu." Skyndilega var blaðinu kippt úr höndunum á mér, en það var enginn í herberginu nema ég. Þetta fannst mér mjög furöulegt, og hvergi kom ég auga á blaðið. Bókin stóra var líka horfin, og það var farið að loga ( gömlum dagblöðum úti í horrii í herberg- inu. Ég reyndi að slökkva eldinn, en réði ekki við hann, og fyrr en varði var herbergið oröið eitt eldhaf. Síðast sá ég ekki annaö ráð en að stökkva út um gluggann, en við það vaknaði ég. Vonandi geturðu ráðið þennan draum fyrir mig, en hann var ákaflega eftirminnilegur. Með bestu kveðjum, Búkolla. Draumurinn boðar þér virðingu góðra manna og upphefö. Vetur- inn getur orðiö þér erfiður að einhverju /eyti, en f/est ætti þó að ganga þér I hag. Þú verður fyrir einhverri sorg, sem þú verður ef ti/ vill lengi að jafna þig á, en með aðstoð góðra manna brosir ham- ingjan við þér hvar sem er. OF MARGIR FINGUR Kæri draumráðandi! Fyrir skömmu dreymdi mig, að ég væri með sjö fingur á hægri hendi, og fannst mér það mjög óviðkunnanlegt. Ég fór til læknis, en hann sagði, að það væri ekkert við þessu að gera og að þatta myndi bara lagast með tímanum. Með fyrirfram þökk, S.S. Þessi draumur er fyrir vinsæld- um og virðingu. Varaðu þig samt á allri samkeppni. 48 VIKAN 41. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.