Vikan - 13.10.1977, Síða 16
CAROLINE OG
KÆRAST/NN
vikum síðar hittust þau í kvöld-
verðarboði hjá sameiginlegum
vinum, sem eru tengdir fursta-
fjölskyldunni. Upp úr því hittust
þau öðru hverju, þegar Caroline
hafði frístundir frá námi sínu í
París og var ekki í fríi í Mónakó. í
blöðum voru uppi getgátur um,
hvers eðlis samband þeirra væri —
en í augum furstahjónanna í
Monaco var Philippe þó aðeins
góður kunningi, einn í hópi
margra, sem stundum buðu
prinsessunni út að borða.
í fyrrasumar fóru þau hvort í
sínu lagi til Bandaríkjanna, hún í frí
og hann í vinnu. Þar hittust þau
ekki, og næstu mánuði sáust þau
minna en áður, og er talið, að þau
hafi verið að sannreyna, hvort
vináttan væri eitthvað meira en
góður kunningsskapur. Niður-
staðan virðist hafa orðið jákvæð
— ef marka má af því, sem síðan
hefur gerst.
Caroline hóf nám við hinn
fræga viðskipta- og stjórnmála-
háskóla í París, sem gengur undir
nafninu „Science Po", og þar
kom þekking Philippes henni að
góðu haldi. Ekki varð það henni
þó hvatning til frekari dáða, því er
Philippe kom heim úr einni
Ameríkuferð sinni, tilkynnti Caro-
line honum, að hún væri ákveðin í
að hætta. ,,Þetta á ekki við mig,"
sagði hún. „Fjámálastjórn er ekki
sérlega skemmtilegt námsefni,
eftir að maður kemst að því, að
það er hægt að leysa öll verkefni
með því að fletta upp í bókum."
Áhugi Caroline beinist nú að
barnasálfræði, og hyggur hún á
nám í þeim fræðum við Sorbonne-
háskóla. Philippe styður hana
eindregið í þeim áformum. Þá
verður stutt að skreppa til
unnustans úr skólanum, því
Philippe býr þar ekki fjarri, rétt við
Odéon. Þar hefur hann þriggja
herbergja íbúð, sem snýr út að
stórum trjágarði. í íbúðinni er hátt
til lofts og á veggjum og loftum
viðarskreytingar í stíl Lúðvíks 16.
Húsgögnin eru flest fjölskyldu-
arfur, og upp á þau lífga ýmsir
nýtískulegir listmunir, sem Phil-
ippe hefur keypt á ferðalögum
sínum. Philippe hefur gaman af að
fá nána vini sína í heimsókn, og
koma þeir oft til kvöldverðar eða
til að spila ,,back-gammon".
Einlægni og vingjarnleiki Caroline
opnuðu henni strax leið að
hjörtum vina Philippes.