Vikan - 13.10.1977, Blaðsíða 37
LEIKARINN GÚÐKUNNI, Peter
Ustinov, virðist a/ltaf geta komið
fólki ígott skap, hvort heldur er í
einkalífinu, lleikhúsi eða
kvikmyndahúsi. Margir eiga
góðar endurminningar frá því,
þegar hann dvaldist hér á /andi
um skeið fyrir nokkrum árum, og
þá var meðal annars
meðfylgjandi mynd tekin austuri
Hveragerði. Fylgdarmenn Peters
þekkja allir, þá Matthfas
Johannessen ritstjóra
Morgunb/aðsins og Guðlaug
heitinn Rósinkrans þáverandi
Þjóðleikhússtjóra. Hin myndin
var tekin nýlega af Peter í
Montmartre hverfinu í París, en
hann var þar á göngu (eða
hiaupum) með Helenu konu
sinni. Leikarinn hefur nýlokið við
að skrifa ævisögu sína, sem ber
heitið „Dear me."
BOB EVANS er nafn, sem
mörgum er þekkt, enda hefur
maðurinn framleitt margar
kvikmyndir, sem náð hafa
geysilegum vinsældum, eins og
Love Story, Chinatown og
Maraþonmaðurinn, svo
einhverjar séu nefndar. Hann var
eitt sinn kvæntur Ali MacGraw,
stjörnunni úr Love Story, en nú-
verandi eiginkona heitir Phyllis
George og er íþróttafréttaritari
hjá CBS. Nýjasta myndin hans
Bobs Evans heitir Black Sunday,
og er ekki að vita, nema hún mali
honum enn meira gull.
HUGD/RFSKA kappaksturhetj-
unnar Niki Lauda er undrunar-
og aðdáunarefni manna um
heim allan. Eftir ægilegt s/ys á
kappakstursbrautinn á síðasta
ári væri hann liklegri til að slá i
gegn ihryllingskvikmynd heldur
* en aksturskeppni. En hann lætur
ekki deigan síga og berst nú
hetjulega fyrir endurheimt
heimsmeistaratitilsins úr
höndum englendingsins James
Hunt, og reyndar kann sú
barátta að vera útkijáð, þegar
þetta birtist. James á ekki neina
möguleika á að halda titlinum,
en sagt er, að hann eigi hann
Susan konu sinniað þakka, þvi
þegar hún hljópst á brott frá
honum til að taka saman við
Richard Burton, varð hann þetta
Htia heiftúðugur og ók eins og
maður I
sjálfsmorðshugleiðingum í hverri
keppninni á fætur annarri. I ár
gengur honum hins vegar ekkert
alltof vel, svo líklega eru
ástamálin í fínu lagi. Hér sjáum
við Niki Lauda með konu sinni
Marléne. Þau hafa verið
hamingjusamlega gift lengi, en
aumingja Marléne líður ekki
alltof vel, þegar eiginmaðurinn
eraðkeppa.
1