Vikan - 13.10.1977, Síða 40
STJÖRNUSPÁ
llnilurinn 2l.mars 20.a[iríl
Þú fœrð skemmtilegt
verkefni að glíma
við, sem mun gefa
þér mikið í aðra
hönd. Þetta tekur
mikið af tima þínum,
og þér gefst litill timi
til að sinna hugðar-
efnum þinum. Heilla-
tala er 5.
Rr.-'hhinn 22. júni J.V juli
Láttu ekki smá-
munasemi annarra
fara í taugamar á
þér, og sýndu þínum
nánustu þolinmæði.
Sumir virðast sífelit
þurfa að skipta sér
að annarra málefn-
um, án þess að meina
nokkuð illt með því.
\niíin 24.U‘pi. 2.Vokl.
Ástin blómstrar hjá
yngra fólkinu, og allt
virðist ganga í hag-
inn. Þó verður eitt-
hvað tii að koma þér
úr jafnvægi og ekki
að ástæðulausu, en
þú ættir að taka
hlutunum með meiri
skynsemi.
Sicingcili>*.22.dcs. ^O.jan.
Ovenjulega mikil
þreyta sækir að þér
um þesseu- mundir,
enda liggja eðlilegar
ástæður þar að baki.
Huggaðu þig við, að
þetta er bara tima-
bundið ástand, og
allt kemst í samt
horf fyrr en varir.
\auliA 21.npral 2Í.mai
I hönd fara rólegir
dagar, og þú hvílist
vel, enda áttu það
fyllilega skilið eftir
það mikla erfiði, sem
þú hefur stritt við að
undanfömu. Gættu
þess þó að láta letina
ekki ná yfirhöndinni.
l.jóniA 2-l. júlt 24. igú«l
Persóna, sem þú hef-
ur hingað til haft
mikið dálæti á, sýnir
nú á sér heldur leið-
inlega hlið og kemur
þér mjög á óvart.
Vertu því viðbúinn
að mæta mikilli
gagnrýni frá þessari
manneskju.
SporAdrckinn 24.ukl. Illnói.
Þú hefur hugann
alltof mikið við ein-
hvem viðburð, sem
mun eiga sér stað
innan tíðar og
gleymir alveg að
sinna skyldum þin-
um. Reyndu að lifa
ekki alveg í þínum
eigin draumaheimi.
\alnshcrinn 2l.jan. If>.íchr.
Mikil glaðværð ríkir
í kringum þig, og þú
kynnist hinum
björtu hliðum lífsins.
Einhver þér nákom-
inn reynist með af-
brigðum skemmti-
legur þessa dagana
og kemur þér heldur
á óvart.
Tiíhurarnir 22.mai 2l.júni
Einhverjar fréttir,
sem þú hefur beðið
eftir með óþreyju,
berast þér loks í
þessari viku og valda
þér nokkrum von-
brigðum. Láttu þó
ekki hugfallast, út-
litið er ekki eins
svart og sýnist.
Þessa vikuna get-
urðu látið eftir þér að
hvíia þig að vild og
gera nákvæmlega
það sem þér sýnist.
Þú kynnist áhuga-
verðri persónu, sem
á eftir að lífga mikið
upp á tilveru þína.
KogmaAurinn 24.nó%. 21.dcs.
Þú hefur meira en
nóg að gera í þessari
viku, og flest eru
þetta hlutir, sem þú
hefur lítið fengist við
áður. Allt gengur
þetta þó vel, ef þú
aðeins ert nógu ró-
legur. Happalitur er
rauður.
Kiskarnir 20.fchr. 20.mars
Þú ert eitthvað ein-
mana og leiður og
miklar fyrir þér ofur
einfalda hluti. Þú
ættir að fara meira
út að skemmta þér
og sitja ekki með
sjálfsvorkunnsemi
heima fyrir.
menn stjóma öllu, í staðinn fyrir
hina fomu höfðingja í Roccaleone.
Skilurðu nú, hvað ég er að fara? Ég
ætla að breyta þessu öllu.”
„Þegar ég er orðinn markgreifi,
verða borgarstjórinn og allir
borgarbúar að fara eftir því, sem ég
segi. Ég er réttborinn til titilsins,
og ég ætla svo sannarlega að sjá til
þess, að því gleymi enginn.”
Regína starði á hann agndofa.
Orð hans lýstu þeirri hræðilegu
harðstjóm, sem koma skyldi.
,,Og Roccaleone er aðeins byrjun-
in,” bætti hann við. „Biddu bara
og sjáðu. Ekkert getur stöðvað
mig, ekki einu sinni Edward og
þessi fundur hans á morgun....”
Snemma næsta morgun bað
Matteo Regínu að tala við sig. Á
meðan þau töluðu saman horfðu
þau á mennina, sem vom að koma
upp palli í kastalagarðinum. „Ég
ætlaði að segja þér þetta seinna,”
sagði Regína, „en það er alveg eins
gott að gera það núna. Ég vil að við
giftum okkur hér í Roccaleone. Hér
átt þú heima og innst í hjarta þínu
held ég að þú viðurkennir að þér
þykir vænt um Roccaleone.”
„En Regína, hefurðu gert þér
grein fyrir, hvað þú ert að segja? Að
þú komir sem brúður frá þessum
kastala til að giftast mér?”
Hún brosti til hans. „Einmitt.
Þú munt líka komast að raun um að
það mun gleðja markgreifann
mikið. Hann þarf á þér að halda,
Matteo.”
„Mér?”
„Það hafa hingað til verið
samantekin ráð að láta hann ekkert
vita um framferði Giulianos. Nú er
þvi lokið. Hann veit allan sann-
leikann. Edward talaði við hann í
gærkvöldi. Hann byggði allar sinar
vonir á Giuliano. Hann verður
áreiðanlega mjög einmana gamaU
maður. Edward þarf að fara aftur til
Englands, eftir nokkrar vikur.”
Matteo faðmaði hana að sér,
beygði sig niður og kyssti hana. Ég
veit ekki, hvort við eigum þetta allt
skilið, markgreifinn og ég.”
Allt i einu barst mikUl hávaði að
utan. Fjöldi fólks þyrptist inn í
kastalagarðinn, á eftir litlum vagni,
sem dreginn var af þreyttum hesti.
Á vagninum voru fáeinir bögglar og
búr með nokkrum vesældarlegum
hænum, hausar þeirra löfðu út á
milli rimlanna.
Gamall maður hélt í taumana og
aftast sat svartklædd kona með
gamalt sjal yfir höfðinu. Mann-
fjöldinn elti og kom stöðugt nær, án
þess þó að snerta vagninn. Nokkrar
gamlar konur í hópnum hágrétu.
„Þetta er Carla,” hvíslaði
Matteo.
Edward var kominn út, og gekk í
átt að vagninum, sem hafði numið
staðar i miðjum garðinum. Mann-
fjöldinn vék úr vegi fyrir honum og
þögn sló á alla, þegar hann lyfti
Cörlu varlega niður úr vagninum.
„Svona fór hún,” sagði Matteo.
„Hún hélt á litilli körfu, með
þessum fáu munum sínum í. Og
svona kemur hún aftur til okkar
líka.”
Edward ávarpaði mannfjöldann.
„Kæru vinir, Carla þarf að hvíla sig
eftir ferðalagið. Þið sjáið hana á
fundinum, eftir um það bil klukku-
tíma.”
Mannfjöldinn tvistraðist.
Edward benti Regínu og Matteo að
koma með þeim inn fyrir. Þegar inn
var komið, horfði Carla í kringum
sig og sagði: „En dásamlegt að
vera kominn heim. Matteo — og
Völundar
timbur
vandaö
timbur
Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
40VIKAN 41.TBL.