Vikan - 13.10.1977, Page 51
Að sitja á bekk á Lækjartorgi, virða
fyrir sér mannlífið í borginni í dag, á
mildum haustdegi, þegar við erum að
búa okkur undir veturinn langa og,
að flestra mati, leiðinlega.
Og sumarið, sem aldrei kom hér á
höfuðborgarsvæðinu.og við bíðum
enn eftir að komi kannski einhvern
tíma. Að sjá, hvernig laufin eru tekin
að falla af trjánum, blómin að fölna,
einstaka morgunfrú heldur þó enn
velli, haustsvipur á gróðri og fólki.
Maustsins á lauksúpu, en hún er á
t>essa leið:
GRATINERUÐ LAUKSÚPA
Matreidd AÐ HÆTTI
•M WESSMAN.
Qlugga snyrtivöruverslunarinnar
Clöru.
Ætlað fyrir fjóra:
4—5 meðalstórir, afhýddir laukar
50 — 60 gr smjör
1 matsk. tómatmauk
ögn af hvítlauksdufti eða einn
marinn hvítlauksgeiri
salt og pipar
ca 1 lítri bragðsterkt kjötseyði
4 þunnar franskbrauðssneiðar
4 þykkar ostsneiðar.
Laukurinn er skorinn í þunnar
sneiðar og soðinn í smjörinu, án
þess að hann brúnist um of.
Kjötseyðinu bætt út í, kryddað
Komið við i Gjafahúsinu.
með tómatmaukinu og kryddinu.
Soðið í 15-20 mín. Sett í lauksúpu-
skálar. Franskbrauðið og osturinn
skorinn til þannig að það myndi
lok ofan á súpuskálina. Bakað í
ofni eða grilli, þar til osturinn er
bráðnaður og orðinn gulbrúnn á
litinr>
FREISTINGAR Á VEGI VORUM
Eftir ferð mína í Naustið veitir
mér sannarlega ekki af ærlegum
göngutúr. Ég held för minni um
Austurstræti áfram og lít inn hjá
Guðmundi í Klausturhólum, fæ
Borgarstjórinn okkar á Austurivelli.
hjá honum þær upplýsingar, að
næsta málverkauppboð verði
sennilega einhverntíma í október
og mörg falleg verk verði þar á
boðstólum.
Áfram upp Bankastræti, þar
sem staldrað er við snyrtivöru-
verslunina Clöru, skoðað dálítið í
gluggann, þar sem smekklega er
komið fyrir alls kyns snyrtivörum
og ýmsu, sem aðallega kven-
þjóöin hefir áhuga á. Já, margar
eru freistingarnar á vegi vorum....
MOKKA-KAFFI - GJAFAHÚS
Áfram held ég upp Skólavörðu-
stíg og farin að finna ríka þörf fyrir
kaffisopa, og hvar er betra kaffi en
á Mokka? Þar sest ég og drekk
kaffið mitt. Ég lít út um gluggann,
og við blasir Gjafahúsið og allar
körfurnar fyrir utan verslunina. Ég
ákveð að drífa mig yfir og kíkja þar
Rjómaterturnar á Hressó freista.
inn. Þar hitti ég eigendur Gjafa-
hússins, frú Sólveigu og Holger
Clausen, og spyr þau, hvernig
veturinn leggist í þau. Svarið er,
að veturinn leggist alltaf vel í þau,
eins og hinir árstímarnir. Lítill
munur sé á þeirra lífi, þó vetur
gangi í garð. Alltaf mikið að gera
hjá þeim í Gjafahúsinu. Þau hjónin
kváðust hafa verið heppin með
starfsfólk og mikið væri verslað
hjá þeim, ekki bara fólk úr
Reykjavík, heldur líka utan af
landi. Holgeir Clausen segist vera
búinn að starfa við verslun í um 47
ár, hafa breyst úr sendisveini í
yfirsendisvein, það sé hans staða í
dag. Þau hjón hyggjast taka sér
smáfrí á næstunni og segjast
hlakka mikiðtil þess. Ég lít dálítið í
kringum mig í versluninni, og svo
sannarlega stendur Gjafahúsið
41. TBL. VIKAN 51