Vikan - 14.12.1978, Qupperneq 4
íslensku ferðafólki í París vísað til veitingahúsavegar
Á framhlið matseðilsins er teikning
af Fom-Grikkjanum Arkistratusi,
fyrsta mataréstarmanni heimsins,
og er teikningin grœnmetisleg I
hsesta méta.
Níu rétta dúfnaveisla
hjá besta
kokki Parísar
í dag: VArcheStrate
í nœstu Viku: Kaffihúsin
„Ég ætlaðist ekki til, að þú byðir
okkur á 1’ArcheStrate. Það kostar þig
50.000 krónur fyrir okkur þrjú,” sagði ég
við kunningja okkar í Paris, sem hafði
lofað að gera dvölina í borginni okkur
ógleymanlega.
„Það er dýrt að þekkja sérvitringa,”
sagði hann og hló. „Úr þvi að þú ert á
annað borð hingað kominn að skrifa um
veitingahús, aetla ég að sjá um, að þú
farir ekki héðan án þess að hafa tekið
lífinu með ró á besta matsölustað
Parisar.”
Mótmæli stoðuðu ekki. „Ég pantaði
borð fyrir tveimur vikum og fékk samt
varla,” sagði hann. „Þú ferð varla að
gera mig ómerkilegan með þvi að láta
pöntunina bregðast.”
Fremst meðal þriggja
jafningja
Allir viðurkenndir sérfræðingar eru
sammála um 1’ArcheStrate. í árbók
Michelin er það eitt af sex þriggja
stjörnu veitingahúsum Parísar. 1 árbók
Kléber er 1’ArcheStrate talið í hópi sjö
bestu veitingahúsa borgarinnar. Gault-
Millau árbókin gengur skrefi lengra og
segir matstofuna eina af þremur bestu i
borginni, með 18 stig af 20 mögulegum.
Gault-Millau segir raunar, að
1’ArcheStrate sé fremst meðal þriggja
jafningja, mitt á milli einkunnarinnar 18
og 19/20. Hin tvö eru La Tour d’Argent
og Le Grand Véfour, bæði með 18 stig.
Hin þrjú, sem eru í þriggja stjörnu
flokki hjá Michelin og með 17 stig í
Gault-Millau, eru Lasserre, Taillevent
og Vivarois. Sjöunda matstofan, sem er i
fremsta flokki í Kléber, en ekki í
Michelin, er Lucas-Carton.
Mat þessara þriggja árbóka er svo
strangt, að hið sögufræga Maxim's er
dottið út úr Michelin og niður i fimmta
flokkhjáKléber.
Einn af sex bestu
kokkum heims
Hingað til hafa bestu veitingahús
Parísar ekki verið talin i hópi bestu
veitingahúsa Frakklands og þar með
heimsins. Sérfræðingarnir telja matinn
oftar betri úti á landsbyggðinni en í
sjálfri höfuðborg menningarinnar.
En nú hefur 1’ArcheStrate rofið
þennan múr. Eigandinn og kokkurinn er
að mati Gault-Millau kominn í hóp sex
fremstu matsveina heimsins.
Hinir fimm eru Paul Bocuse, sem
rekur veitingahúsið Paul Bocuse i einu
úthverfa Lyon-borgar, Alain Chapel,
sem rekur veitingahúsið Chez la Mere
Charles í Mionnay, 15 kílómetrum
norðan við Lyon; Michel Guérard, sem
rekur veitingahúsið Michel Guérard i
Eugénie-les-Bains. um 80 kílómetrum
austur af Biarritz við landamæri Spánar;
Paul Haeberlin, sem rekur með bróður
slnum matstofuna Auberge de l’Ill í
4 Vlkan SO.tbl.