Vikan


Vikan - 14.12.1978, Qupperneq 7

Vikan - 14.12.1978, Qupperneq 7
Það hefur því vist ekki komið Edgari sér- lega á óvart, þegar hann kom heim og komst að raun um það, að faðir hans hafði séð svo um að hann myndi hitta nýja lækninn í bænum, Wesley Ketchum að nafni. Hann var lyflæknir og mjög vantrúaðar á allt það sem sagt var um lækningar Edgars Cayces. Að örfáum mönnum undanteknum hafði Edgar ekki góða reynslu af viðskiptum við lækna. Það kom honum því ekki heldur á óvart þegar þeir heilsuðust, að það lék háðsbros um varir læknisins, sem áreiðanlega hafði fullan hug á því að gera hann að gjaiti. Hann gekk hreint að verki. Hann sagðist sjálfur persónulega þurfa að fá fund hjá honum til þess að fá upplýsingar um það, hvort sjúkdómsgreining Edgars Cayces gæti útskýrt krankleika, sem hann sjálfur sagðist hafa gengið úr skugga um. Kom nú fram eins og oftar, að Edgar varð ekki sammála lækninum. Hann sagði i leiðslunni, að læknirinn væri ekki með botnlangabólgu eins og hann hélt fram, heldur þjáði hann aðþrengd taug neðarlega í mænunni, sem beinalæknir gæti læknað með aðgerð. Læknirinn rak upp skellihlátur. Hann kvaðst vita að hann væri með botnlanga- bólgu og til þess að sanna að Edgar væri svikari, þá skyldi hann láta annan lækni ganga úr skugga um þetta. Hann hélt svo sigrihrósandi yfir götuna til læknisins sem rannsakaði hann. Hann varð því heldur en ekki kyndugur á svipinn þegar það kom í ljós, að botnlangabólgan reyndist horfin. Læknir þessi var heiðarlegur og góður maður og alltof greindur.til þess að halda áfram að lemja höfðinu við steininn. Hann tók þegar að rannsaka skýrslur, sem Blackburn læknir og aðrir höfðu safnað eftir fundi hjá Cayce, og rannsakaði persónulega marga þeirra sjúklinga sem þar voru nefndir og hægt var að ná til í nágrenninu. Hann safnaði að sér feikna- miklum sönnunargögnum um lækningarn- ar með þessum hætti, og á því byggði hann svo skýrslu, sem hann sendi Amerísku klinikrannsóknastofunni síðla sumars árið 1910. Það leiddi aftur til greinar þeirrar i New York Times, sem minnst var á i upphafi fyrra þáttar míns^ Fréttamenn frá fjölda borga víðs vegai um Bandaríkin tóku nú að streyma til Edgars og nauðuðu í honum að segja sögur frá þessum frægu lækningum. Jafnframt komu stundum vísindamenn, eins og dr. Hugo Munsterberg frá Harvardháskóla, til þess að hæðast að skopast að þessu öllu saman. En það reyndust jafnan hógværari menn sem héldu aftur heim, fullir undrunar. Um tíma vann Edgar nú með nokkra vini sína í Hopkinsville að samstarfs- mönnum og hélt fundi tvisvar á dag fyrir þau hundruð manna, sem leituðu hjálpar. Hann neyddist nú til þess að taka nokkra greiðslu fyrir hjálp sína, því honum var ekki lengur unnt að vinna fyrir sér með öðrum störfum, sökum anna við þetta. En ekki hafa það verið nein ósköp, því hann gat rétt lifað af því sómasamlegu lifi. Því næst var honum boðið til Chicago á vegum Hearst-blaðahringsins, en það hafði ekki annað í för með sér en nýtt umtal um hæfileika hans. Cayce fór nú að verða ljóst, að ef hann ætti að geta komið þeim sem til hans leituðu að fullu gagni, þyrfti að koma upp varanlegri lækningamiðstöð og safni fyrir skýrslurnar um starf hans. Eða með öðrum orðum: hann þurfti sjúkrahús. Meðal þeirra þúsunda sem náðu heilsu fyrir hjálp Cayces var maður að nafni Madison B. Wyrick, sem var forstjóri fyrir verksmiðju. Hann hafði þjáðst af sykur- sýki. Annar maður sem lækningu hlaut hjá Edgari var Morton Blumental, kaupsýslumaður í New York. Hann hafði verið með króniska igerð í eyranu, en hlotið fullan bata. Þessir menn og ýmsir aðrir, sem leitað höfðu til Cayces og fengið hjálp, hvöttu hann mjög eindregið til þess að koma upp sjúkrahúsi. Að lokum rættist þetta og varð nokkuð afskekktur staður, Virginia Beach, fyrir valinu sem aðsetur sjúkrahússins. Félagsskapur var stofnaður um þetta fyrir- tækiþannö. maí 1927. Nú var Edgar Cayce loksins búinn að fá samastað fyrir starf sitt, eftir að hafa hrakist árum saman frá einum stað til annars. í nokkur ár gekk allt vel. Sjúkrahús var byggt og læknar ráðnir. Einkaritarar gerðu skýrslur yfir þær þúsundir funda sem Cayce hélt og siðan var fylgst vel með sjúklingunum og árangur lækninganna færður á skýrslurnar. Aðalstefnan i lækningum þeim sem fyrirskipaðar voru gegnum Cayce, var ævinlega sú sama: Að lækna orsökina en ekki afleiðinguna; að stuðla að heilbrigði alls líkamans, svo hann gæti sjálfur sigrast á sjúkdómnum. Kom þetta til dæmis vel í ljós í sambandi við tilfelli þar sem ung stúlka átti í hlut. Hún var að þvi komin að leggjast í rúmið vegna gigtar. Læknarnir höfðu gefið henni hin venjulegu sársaukasefandi lyf, en henni fór hríðversnandi. En þegar hún fór að þeim fyrirmælum sem Cayce hafði gefið henni, sem fólust í sérstöku mataræði, nuddi og æfingum, tók henni að batna og náði skjótt fullum bata. Kreppan mikla 1929 lamaði fjárhagslega ýmsa helstu styrktarmenn sjúkrastofnunar Cayces á Virginia Beach. Sjúkrahúsið hélt þó velli meðan stætt var, en varð að síðustu að loka, þegar allt fé var þrotið. Sjúklingarnir voru sendir heim. 50. tbl. Vikan 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.