Vikan


Vikan - 14.12.1978, Side 12

Vikan - 14.12.1978, Side 12
Gullþynnulagður spegill frá Perú. Fyrr ð öldum notuðu listmálarar sltkar gullþynnur bseði i mðlverk og ikona. Dolma — marika, Istanbul 1/2 kíló nautakjöt 4-6 stykki pipar eftir stærð 3-4 tómatar 3-4 laukar salt og pipar eftir smekk olívuolía. Skerið lauk og tómata í örsmáa bita, og brúnið þá í olílvuolíu. Siðan er þessu hrært saman við hakkað nautakjöt, saltað og piprað eftir smekk. Hreinsið grænan pipar (þ.e.a.s. fræin og hvítan hreinsuð úr). Best er að velja stóran pipar, sem síðan er fylltur með kjöthakkinu og soðinn í olíu í ca 20 mín. í lokuðum potti við vægan hita. Gæta verður þess, að piparinn standi vel upp á endann í pottinum og nokkuð þétt, svo að kjötfyllingin fari ekki út úr. Annars má líka skera lítið lok af piparnum og binda yfir. Borið fram með soðnum hrísgrjónum og grænmeti. Antkuicho de corazon, Líma 2 nautahjörtu Kryddlögur: safi úr fjórum sítrónum 1-2 bollar matarolía 1-2 tsk salt 1 -2 tsk svartur pipar 1-2 tsk paprika eða rauður pipar. Fitan skorin af hjörtunum og þau síðan skorin í bita, u.þ.b. þumlung á hvern kant. Bitunum raðað í eitt lag i grunna skál og kryddleginum hellt yfir. Þetta er síðan látið standa í tvo til þrjá tíma. Bitarnir teknir upp úr og látið siga af þeim á síu. Síðan eru bitarnir þræddir upp á þar til gerðan tein eða bambuspílur og steiktir yfir opnum eldi eða glóð. Þennan rétt má bæði nota sem aukarétt eða aðalrétt. Sé hann notaður sem aðalréttur, er borið fram með honum grænmeti eða hrísgrjón. Kryddlögurinn þarf að vera nokkuð sterkur, svo að bragðið síist vel inn í bitana. Rétturinn er borinn fram vel heitur. 12 Vlkan f O. tbl. hundaæði er þarna algengur sjúkdómur og hefur hinar hörmulegustu afleiðingar. Þjófarnir tóku því til fótanna er þeir heyrðu í ísabellu. Húsið var harðlæst á nóttunni og rimlar fyrir öllum gluggum, en þeim hafði einhvern veginn tekist að brjótast inn eldhússmegin. Ég fór síðan á fætur og kveikti öll ljós til að fæla þá frá frekari innbrotstilraunum þá nóttina. Daginn eftir las ég þær fréttir í blöðunum að mikill innbrotafaraldur hefði gengið yfir mitt hverfi þessa nótt, og var kona, sem var ein í húsi við næstu götu, myrt. Það má því segja að ég hafi átt ísabellu líf mitt að launa, og eftir þetta svaf ég alltaf með langa sveðju við koddann minn, þegar ég var ein. Fom leirker frð Perú. Þau em ð aldrinum 500 til 2000 ðra, en nú er bannafl afl flytja slfka muni úr landi. Fiskinet þurrkufl vifl Bospoms. Ógrynni af betlurum Það sem olli mér mestu hjartakvölunum var hinn mikli fjöldi betlara, sem sótti að húsinu. Ég átti svo bágt með að neita þeim um ölmusu, sérstaklega ef um mæður með ung börn var að ræða. En þetta er stórhættulegt, maður venur bara á sig fleiri og fleiri og loks vorum við Hermann komin með fleiri fjölskyldur á okkar framfæri. Ég varð því að láta af þessum sið, en það tók mig sárara en ég fæ með orðum lýst að senda þá bónleiða frá mér. Ég bjó í 17 ár meðal framandi þjóða, og betri skóla gæti ég ekki kosið mér. Mér lærðist fljótt, að það gildismat sem ég kom með í veganesti að heiman, þarf ekki endilega að vera það eina rétta fyrir allan heiminn. Ég held að þeir hleypidómar, sem ganga i arf frá kynslóð til kynslóðar, eigi sinn stóra þátt í ófriðsamlegri sambúð þjóða á milli. Og hleypidómar stafa oftast af þröngsýni þeirra, sem sjá aldrei út fyrir heimahagann. J.Þ. Alda gaf okkur að lokum uppskrift að tveimur gómsætum réttum, öðrum frá Tyrklandi, en hinum frá Perú.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.