Vikan


Vikan - 14.12.1978, Side 63

Vikan - 14.12.1978, Side 63
Skitinn hundraðkall í verðbólgunni Sæti Póstur! Vertu nú ofsasætur og geföu mér upp heimilisfang Johns Travolta! Ég meina gerðu það fyrir mig. Ég hreinlega dái þann fýr. Hann á sér stóran aðdáendahóp hér á Fróni og eflaust, eins og þú sérð, hafa fleiri áhuga á adressunni. Skilurðu mig? Ég vona það, vinur minn. Og svo eitt enn. Þar sem ég hef verið aðdáandi Björgvins Halldórssonar músikants frá því ég man eftir mér, þá segðu mér, veistu hvort hann á barn? Annað vantar mig ekki um hann. Á heimilisfangið, aldurinn og það, sem þessir gæjar senda Póstinum ekki upplýsingar um, eins ogþú segir. Aðeins, á hann barn? Það ætti ekki að vera erfiðleikum bundið fyrir þig að komast að því. Að lokum vil ég minna þig á að birta heimilis- fangið hjá Jóni vini okkar trafala. Ég veit þú verður sætur og gerir það —■ ekki satt? Ég ber hag þinn mjög fyrir brjósti og vona að í náinni framtíð verði hægt að koma pennavinum og iélegu.n skrítlum, sem oft eru tii staðar á Póstsíðunni, fyrir annars staðar í Vikunni. Þið megið mín vegna hækka hana um hundraðkail skitinn, í þessari verðbólgu er það ekki umtalsvert. Nú kveð ég með von um að þú takir beiðni mína til greina. Ást og gæfa fylgi þér vinur. Ó.S. Ohh, bara að Pósturinn skildi hvað þú ert í raun og veru að fara. Hvað Björgvin HaUdórsson snertir harðneitar Pósturinn að fara að stunda einhverjar persónunjósnir og getur reyndar ekki skilið hvað það kemur aðdáun þinni á honum við, hvort hann er átta barna faðir úr álfheimum eða eitthvað annað. Svo var það hundraðkall skitinn, það er nokkuð greinilegt af orðum þínum að þú ert verð- bólgubarn og hefur aldrei heyrt minnst á máltækið safnast þegar saman kemur. Heimilisfang Johns Travolta er: John Travolta c/o Michele Cohen, 943 Westbourne Drive, Apt. 6 Los Angeles, California 90069, U.S.A. Pennavinir Nanna Árnadöttir, Hlíðarvegi 69, 625 Ólafsfirði og Elinborg Ágíistsdóttir, Gunnólfsgötu 12, 625 Ólafsfirði, óska eftir að skrifast á við stráka og stelpur á aldrinum 15-17 ára. Sóley Ragnarsdóttir, Sæviðarsundi 19, 104 Reykjavik, óskar eftir pennavinum, strákum og stelpum á aldrinum 12-15 ára. Áhugamál eru margvisleg og hún svararöllum bréfum. Guðbjörg Björnsdóttir, Túngötu 1, 730 Reyðarfirði, óskar eftir að skrifast á við stráka og stelpur á aldrinum 13-15 ára. Áhugamál eru margvisleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er . Hún svarar öllum bréfum. Aðalheiður Kristjánsdóttir, Ásgerði 6, 730 Reyðarfirði, Dagmar Einarsdóttir, Mánagötu 12, 730 Reyðarfirði, og Guðný Rikharðsdóttir Ásgerði 7, 730 Reyðarfirði, óska eftir pennavinum á aldrinum 14 ára og eldri. Áhugamál: Partí, böll, strákar, skíði og tónlist. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Shauna Grebhant, Box 116, M Cord, Sask, Canada, SOH-210 hefur undir höndum nöfn kanadískra unglinga, 19 ára og yngri sem vilja komast í bréfa- samband við íslenska unglinga. Vinsamlegast sendið henni nafn ykkar og heimilisfang, ásamt áhugamálum, ef þið hafið áhuga á kanadískum pennavinum. Hrefna Ásgeirsdóttir, Melum Fjótsdal, N-Múl. óskar eftir að komast í bréfasamband við stelpur á aldrinum 8- 10 ára. Æskilegt að mynd fylgdi fyrsta bréfi. Inga Vífilsdóttir Faxabraut 82, 230 Kefiavík og Bjarney Snævarsdóttir Háholti 9, 230 Keflavík, óska eftir pennavinum (strákum) á aldrinum 15-18 ára. Sigríður Ó Kristjánsdóttir, Bakkavegi 15,410 Hnífsdal óskar eftir pennavinum á aldrinum 11-13 ára. Hún er sjálf 11 ára og aðaláhugamál hennar eru bækur, dýrogfrímerki. Anna F. Hinriksdóttir, Bakkavegi 10, Hnifsdal, óskar eftir pennavinum á aldrinum 12-13 ára. Áhugamál: Kettir og diskótek. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Kristin Elfa Ingólfsdóttir, Urðargötu 22, 450 Patreksfirði, óskar eftir að skrifast á við stelpur og stráka á aldrinum 12-15 ára. Er sjálf 13 ára. Áhugamál eru íþróttir, útivera, pennavinir og fleira. I þessari sögu um litla stúlku jafn fágæta og fallega, á sinn hátt og bláa rós er boðskapur um ást til allra. BÓKIN: DAUÐUR í 45 MÍNÚTUR Diaa rósin DESEMBER Q Banvænt œxlið á mænu Donalds stækkaði og stækkaði þangað til uppskurður var óhjákvæmilegur. En tilþess að hann tækist, urðu læknarnir að stöðva starfsemi hjarta hans og heila — gera hann að lifandi líki. BÓK t BLAÐFORMI Ævisaga séra Jóns Steingrímssonar er eitt með merkarí rítum, sem við eigum. Hér er rætt ofurlítið um þessa merkilegu rítsmíð og grípið niður íhana hér og hvar. DAGLEGT LÍF Á ÍSLANDI Á ÁTJÁNDU ÖLD 50. tbl. Vlkan 63

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.