Vikan - 05.07.1979, Blaðsíða 4
Þetta eru verðlaunin sem falla
munu í skaut þeirra lesenda
Vikunnar sem eru nógu glúrnir
til að ráða fram úr myndastyttu-
getrauninni. í síðasta blaði
sögðum við lítillega frá dásemd-
um eyjarinnar Ibiza, og ekki eru
dásemdirnar minni á Kanarí-
eyjum og Mallorka.
Frá upphafi vega hefur svo
mikið orð farið af veðurblíðu,
frjósemi og fegurð Kanaríeyja,
sem eru undan norðvesturströnd
Afríku, að þær hafa verið
kenndar við eilíft vor. Kanarí-
eyjar eru eldfjallaeyjar, þrettán
talsins, þar af sjö í byggð. Spán-
verjar hafa ráðið eyjunum allt frá
því á 15. öld, og fyrr á tímum
4 Vikan 27. tbl.
Sumar-
getraun
VIKUNNAR
1979
Takið þátt í hinum sérstæða
myndastyttuleik Vikunnar,
—það eitt gæti komið ykkur
í sólog sumaryl.
voru þær mikilvægur áningar-
staður þeirra sem áttu fyrir
höndum hættulega sjóferð til
Nýja heimsins. Nú eru Kanarí-
eyjar fjölsóttur ferðamanna-
staður og munar aðeins 6 stigum
á meðalhita kaldasta og heitasta
mánaðar. í svartasta skamm-
deginu er hitinn um 20 stig,
VERÐLAUNIN:
þannig að þar þyrfti enginn að
verða þunglyndur sakir kulda.
Sannast sagna þá öfundar Vikan
væntanlega vinningshafa í
myndastyttugetrauninni að eiga
fyrir höndum Úrvalsferð til
þessara paradísareyja — en það
geta ekki allir unnið! Þá er það
getraunin.
1. Hálfsmánaðar Úrvalsferð
fyrir tvo í íbúð á Ibiza.
2. Hálfsmánaðar Úrvalsferð fyrir tvo
í íbúð á Kanaríeyjum.
3. Hálfsmánaðar Úrvalsferð fyrir
tvo í íbúð á Mallorka.