Vikan - 05.07.1979, Síða 63
ófrjósemi síðar á ævinni.
Einnig er það mjög misjafnt
hvaða áhrif pillan hefur á
hvern einstakling. Sumar konur
þjást af ógleði og aðrar telja
hana hafa slæm áhrif á tauga-
kerfið. Farðu mjög varlega í
notkun hennar, taktu hana
aðeins samkvæmt ráðlegging-
um læknis og fáðu aldrei „lán-
aðan” skammt hjá vinkonum
þínum.
Hélstu að ég
væri að gera að
gamni mínu?
Kæri Póstur!
Ég er nú að skrifa í annað
sinn, síðast skrifaði ég í endað-
an mars s.l. Ég hef aldrei séð
spurningar í Póstinum iíkar
mínum (nema um flugnám) og
þú hefur kannski haidið að ég
væri að gera að gamni mínu,
eða er ég ef til vill aðeins of
óþolinmóður?
Nú eru það spurningarnar:
Þarf maður að hafa lögheim-
ili til að ganga í breska eða
bandaríska herinn? Ef svo er
ekki, hvað þarf maður að vera
gamall? Hvað stendur þjálfunin
lengi hjá óbreyttum og hve
lengi hjá foringja? Hvar fœr
maður nánari upplýsingar?
Þetta sama vildi ég fá að vita
um Franska útlendingaherinn
(nema þá fyrstu). Hvað þarf
maður að vera gamall til að
taka flugpróf? Hvað tekur það
langan tíma? Hvað kostar hver
flugtími?
Einn herskár.
P.S. Geturðu sagt mér hvort
Sven Hazel er á lífi?
Ja, satt að segja var Pósturinn
að vona að þú værir að gera að
gamni þínu. Það er illskiljanlegt
að þeir, sem eru svo lánsamir
að búa í landi þar sem her-
skylda er óþekkt fyrirbrigði og
allur stríðsrekstur víðs fjarri,
láti sér til hugar koma að ana
sjálfviljugir út i eitthvað slíkt.
Ef til vill væri það til bóta að
þú hættir án tafar að fylgjast
með stríðsmyndum í sjónvarpi
og kvikmyndahúsum. Þú getur
alveg trúað því að það er fátt
skylt með þeim hernaði, sem
þar er sýndur og því sem gerist
í raunveruleikanum, og það
verður seint ánægjulegt verk-
efni að murka lífið úr öðru
fólki, hver sem „málstaðurinn”
annars er. Ef þú getur á engan
máta losað sjálfan þig við þess-
ar hugmyndir ættir þú að snúa
þér til sendiráða viðkomandi
landa og fá nánari upplýsingar.
Flugnám mun vera mjög
kostnaðarsamt hér á landi. Til
þessa hefur hver flugtími kost-
'að 15.500 krónur, en nýlega
hefur verið stofnaður klúbbur
flugnema og kennara, sem ætla
sér að gera þetta á einhvern
máta kostnaðarminna. Klúbb-
urinn nefnist Flugklúbburinn
hf. og formaður hans er Kári
Jónsson. Einnig gætir þú haft
samband við Flugskóla Helga
Jónssonar á Reykjavíkurflug-
velli og þar ættir þú að geta
fengið tæmandi upplýsingar
um námið. Um Sven Hazel
veit Pósturinn harla fátt, telur
þó að hann sé enn á lífi. Hins
vegar ættir þú að hætta um
tíma að lesa bækurnar hans og
athuga, hvort lífsviðhorfin taka
ekki einhverjum breytingum.
Pcnnavinir
Sandra Sæborg Fannarsdóttir, Herjólfs-
götu 8, Vestmannaeyjum óskar eftir að
skrifast á við stráka á aldrinum 15-19
ára. Áhugamál margvísleg. Svarar öllum
bréfum og mynd fylgi fyrsta bréfi.
John M. Kisamwa, P.O. Box 96166,
Mombasa, Kenya. Áhugamál hans eru:
Bréfaskriftir, ferðalög og sund. Hann er
19ára.
Sarah Lanyerd Ochieng, P. O. Box
58744, Nairobi, Kenya. Hún hefur
áhuga á sundi, safna póstkortum, frí-
merkjum, ferðalögum, poppi, músik,
læra erlend tungumál og bréfaskriftum.
Húner !4áragömul.
Kailesh Onia P.O. Box 10841, Nairobi,
Kenya. Hann er 16 ára og vill helst
skrifast á við stelpur á hans aldri.
Áhugamál hans eru frímerkja- og póst-
kortasöfnun.
Gulbinser Singh, P.O. Box 298, Molo
Kenya óskar eftir islenskum
pennavinum.
Rosse Bwibo, P.O. Box 30588,
Nairobi, Kenya. Áhugamál hennar eru:
Frímerki, póstkort, safna gömlum
peningum, kvikmyndir og að hitta fólk.
Hún er 18 ára. Pennavinir hennar mega
veraáaldrinum 18-21.
Mr. Michael A. Opuapioh, P.O. Box
72271, Nairobi, Kenya. Áhugamál hans
eru bækur og kvikmyndir og hann óskar
eftir íslenskum pennavinum.
Fjóla Þorsteinsdóttir, Lyngholti, 755
Stöðvarfirdi, óskar eftir pennavinum,
bæði strákum og stelpum. Hún er 17
ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi.
Kristin Þöll Kristinsdóttir, Brynju, 755
Stöðvarfirði óskar eftir pennavinum,
bæði strákum og stelpum. Hún er 17
ára. Svarar öllum bréfum.
Ruth og Elna Gunnarsdætur, Selásdal
v/Suðurlandsv., Reykjavik, box 10088.
Þær langar að skrifast á við stelpur og
stráka, hvaðan af landinu sem er, á
aldrinum 13-15 ára. Svara öllum
bréfum.
Miss Rujata Raithatah, P.O. Box
45828, Nairobi, Kenya. Áhugamál eru
margvísleg. Hana vantar stúlku sem
pennavin, aldur 18-19 ára.
George Ronny Wademu c/o Onyango
Arigi, Mombasa, Kenya. Áhugamál
hans eru að safna frímerkjum, fótbolti
og hann langar að skrifast á við bæði
stelpur og stráka.
Herson Miay Mwasy, P. O. Box
96166, Mombasa, Kenya. Hann er 20
ára gamall, hefur áhuga á: Músík, lesa
bækur, skriftum og kvikmyndum.
Jacob Elly Ochieng, P.O. Box 58744,
Nairobi, Kenya. Áhugamál hans eru:
Sund, söngur, spila á gítar, og alls konar
Sftort. Hann vill skrifast á við bæði
kynin.
Málfriður Vilmundardóttir, Brekkugötu
32,600 Akureyri óskar eftir að skrifast á
við stráka og stelpur á aldrinum 12-14
ára. Hún er sjálf að verða 13 ára.
Áhugamálin eru: Dans, allar íþróttir,
popptónlist, skautar, sund og böll. Mynd
fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Hlíf S. Hreinsdóttir, Auðnum, Öxnadal,
600 Akureyri óskar eftir pennavinum á
aldrinum 13-15 ára. Æskilegt að mynd
fylgi fyrsta bréfi.
G. Bayfield, 17 Belgrave rd
Rathumines, Dublin 6, Ireland óskar
eftir pennavinum.
Mrs. Vivienne Reader, 7 Street Form
Cottages Stoke Road Hoo nr Rochester
Kent ME 39 B.H. England óskar eftir
ífe'nnavinum á íslandi. Hún er 47 ára,
gift og tveggja barna móðir. Býr á
stócufl) búgarði. Hennar áhugamál eru:
Bréfaskriftif, frihiertTEfcortasöfnun, tón-
list, lestur, prjónaskapur og orkideu-
■ræktun.
Miss Kanthe Barley, 174 West st Umina
N.S. W- 2257, Australía óskar eftir
pennavinum á Íslandi. Hún safnar
frimerkjum og finnst gaman að skrifast
á viðfólk i öðrum löndum.
Ása Guðmundsdóttir, Ásgötu 17,
Raufarhöfn óskar eftir pennavinum á
aldrinum 12-14 ára, bæði stelpum og
strákum. Áhugamál eru margvísleg.
Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Elisabet Fanney Fannarsdóttir, Herjólfs-
götu 8, 900 Vestmannaeyjum óskar eftir
pennavinum á aldrinum 10-12 ára.
Áhugamál eru sund, iþróttir, handbolti
og hellingur í viðbót. Mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er. Svarar öllum bréfum.
Vigdís Helgadóttir, Valdastöðum Kjós,
280 Eyrarkot óskar eftir að skrifast á við
stráka og stelpur á aldrinum 13-14 ára.
Er sjálf 13 ára. Áhugamál: Skíði, fót-
bolti.dansogfleira.
Lára K. Lárusdóttir, Brimhólabraut 29,
900 Vestmannaeyjum og Unnur R.
Sigurjónsdóttir, Heiðarvegi 35
Vestmannaeyjum óska eftir að skrifast á
við stelpur og stráka á aldrinum 14-15
ára. Þær eru báðar 14 ára og segjast
hafa margvísleg áhugamál.
Melrós Eysteinsdóttir, Eiskhól 7, 780
Hornafirði óskar eftir pennavinum á
aldrinum 16-19 árá. Áhugamál eru
margvisleg en þó aðallega hesta-
mennska. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef
hægt er.
27. tbl. Vikan 63