Vikan - 05.06.1980, Side 6
Vinnustaður
Flestir Reykvikingar kannast við þennan stað i Bankastræti. En hvað býr
undir niðri?
„Ég lít á þetta sem hvert annað starf sem þarf að vinna vel," segir
Guðmundur Valur Sigurðsson, klósettvörður í Bankastræti núll.
BANKA-
STRÆTI
NÚLL
Rétt við ysinn og þysinn i miðborg
Reykjavíkur eru gluggalausar grafhvelf-
ingar, þar sem menn geta sinnt vissum
frumþörfum sinum. Beggja vegna
Bankastrætis fyrirfinnast neðanjarðar-
byrgi, annað fyrir konur og hitt fyrir
karla. Þessi byrgi hýsa almennings-
klósett, sem surnir þekkja undir nafninu
„Bankastræti núll”.
Guðmundur Valur Sigurðsson hefur
verið klósettvörður á karlaklósettinu
undanfarin fimm ár, eða frá þvi öilum var
sagt upp hjá verksmiðjunni Föt hf., en
þar vann Guðmundur sem klæðskeri.
— Hefurðu ekki orðið var við að fólk
líti niður á þetta starf, Guðmundur?
— Þegar ég var nýbyrjaður hér hitti
ég kunningjakonu mína og sagði
henni hvaða starf ég hefði.
Hún svaraði snúðugt: „Þú skrökvar
því,”og vildi alls ekki trúa mér.
Henni fannst þetta fyrir neðan virðingu
mína.
Sjálfur lít ég á þetta sem hvert annað
starf sem þarf að vinna vel. Ekki eru þó
allir kollegar mínir sáttir við starfið.
Fyrir nokkru vildi einn, sem vinnur á
skemmtistað hér í borg, halda fund í því
skyni að finna annað og betra nafn fyrir
starfsgreinina en „klósettvörður”. Mér
fannst þetta nú bara pjatt.
— l.eiðist þér ekki hérna niðri?
— Ég er talsvert mikið einn hér en
mér leiðist ekki. Kunningjarnir líta líka
stundum inn. Fólk hefur oft spurt mig
hvort (vetta gluggaleysi valdi ekki
innilokunarkennd. En ég hef aldrei
fundiðfyrir henni.
Þegar rólegt er lít ég i dagblöðin og
hef gaman af að ráða krossgáturnar. Við
klósettverðirnir höfum þessa kompu,
sent við sitjum í núna, sem dvalarstað.
Við þurfum samt að fylgjast með
6 Vikan 23. tbl.