Vikan - 05.06.1980, Side 10
Smásaga
K
Halldor Steindal fæddist i Keflavík
1938. Hann kom frá dæmigerðu
miðstéttarheimili, faðirinn búðareigandi
og tryggur stuðningsmaður Sjálfstæðis-
flokksins. Halldór lauk stúdentsprófi á
Laugarvatni og var þá orðinn öfgafullur
vinstri maður. Hann lagði stund á
samanburðarmálfræði við háskólann i
Prag og var á þeint tínia meðlimur i
Sósíalistaflokknum. Gaf út bækling á
eigin kostnað 1961, sem nefnist
Aðskotaorð amerísk í islenskri tungu.
Ári siðar hættir hann skyndilega námi.
kemur til íslands og segir sig úr
Sósíalistaflokknum. Tók að starfa sem
tungumálakennari i Grindavik og gekk i
Alþýðuflokkinn 1965. Skrifar fjölda
greina á þessum árum i blöð og tímarit.
Sú þekktasta var eflaust Vofan i austri
sem Félag ungra jafnaðarmanna gaf út
sérritaða 1967. Var engu að siður talinn
hernámsandstæðingur svonefndur af
flokksfélögum. Halldór lét sífellt meira
til sin taka í stjórnmálum og hlaut ýmsan
ábyrgðarstöður innan Alþýðuflokksins.
Talinn traustur vinnukraftur. fámáll en
fastur fyrir.
Halldór Steindal giftist Sigriði Björns
dóttur 1969 og var hjónaband þeirra
álitið farsælt. Þau eiga tvo syni. Bárð og
Björn. Halldór var ofarlega á lista
Alþýðuflokksins á Suðurlandi i alþingis-
kosningunum 1971 en náði þóekki kjöri
á þing. Þetta olli Halldóri miklum hugar-
kvölum og gerðist hann einrænni en
áður. Hann gaf ekki kost á sér i alþingis-
kosningunum 1974. Virtist fá æ meiri
áhuga á fornbókmenntum, islenskri
sögu og þjóðlegum fróðleik. en viðaði
ennfremur aðsér handbókum um fugla-
veiðar og meðferð skotvopna. Halldór
fékk byssuleyfi 1973 ogstundaði talsvert
rjúpna- og gæsaveiðar.
Vert er að geta munnlegrar frásagnar
feðga úr Ytri-Njarðvík. sem staddir voru
á skíðum upp af Bláfjöllum i
desembermánuði 1974. Gcngu þeir frani
á Halldór Steindal sem þeir þekktu af
Ijósmyndum úr blöðum, þar sem hann
hélt mikla eldræðu yftr skotnum rjúpum,
sem hann hafði lagt i hring i snjónum.
Þagnaði Halldór er hann varð var
mannaferða og stakk rjúpunum í
bakpoka sinn. Strunsaði hann af stað án
þess að kasta kveðju á þá feðga.
Alþýðuflokkurinn vann mikinn
kosningasigur við alþingiskosningarnar
1978 og komst þá Halldór Steindal á
þing, en hann hafði þá tekið upp stjórn
málaafskipti að nýju. Jómfrúræða hans
fjallaði um náttúruvernd á Suðurnesjum
og nauðsyn aukinnar íslenskukennslu i
skólum. Að öðru leyti hafði hann sig litt
frammi á þingi og fylgdi flokki sínum að
málum. Halldór var dagfarsprúður og
vel liðinn af samstarfsmönnum og þing-
mönnum. Eiginkona hans minntist þó
stöku sinnum á það við móður sína í
síma (móðirin var og er búsett á
Akureyri) að Halldór fengi þrálát
þunglyndisköst.
„Þriggja þjóða nefndin" var sammála
um að gíslatakan orsakaðist af
geðrænum truflunum þingmannsins og
því yrði að leysa málið með það I huga.
Sálfræðingar og geðlæknar. sem
nefndinni voru innan handar. voru
þessu sammála. í athugasemd annars
geðlæknisins segir m.a.:
„Halldór Steindal virðist haldinn
geðklofa (Schizophrenia) af tegundinni
Typus Paranoides et Týpus Catatonicus.
sem virðist hafa farið vaxandi á siðustu
árum. Snögg pólitísk hugarfarsbreyting.
einangrun i einhæfu þjóðfélagi (Grinda-
vik). þjóðernisofsi og djúp vonbrigði yfir
að komast ekki á þing virðast vera helstu
orsakir veikinnar. „Rjúpnaræðan"
veturinn 1974 bendir til
mikilmennskuhugmynda og ofvirkni i
atferli. sem ekki ber á daglega og
flokkast undir brátt geðveikikast
(status psycoticus acutus). Svo virðist
sem Halldóri hafi tekist að hafa vald á
þessum klinisku einkennum í nokkur ár.
eða allt þangað til hann fremur hinn
stjórnlausa verknað á heimili utan
ríkisráðherra í fullkomnu æðiskasti
(Raptus Catatonicus)."
— O —
Atburðurinn varð að heimsfrétt.
Strax um laugardagsmorguninn voru
erlendir fréttamenn komnir til landsins.
Breiðfirðingabúð var tekin á leigu og
sett upp fréttamiðstöð fyrir út-
lendingana. Blaðafulltrúa ríkis-
stjórnarinnar var falið að skrifa út sér-
staka heimildarpassa fyrir fréttamenn
sem óskuðu eftir að komast inn fyrir víg-
girðingu lögreglunnar. Innganga i hús
utanrikisráðherra var þó aftekin með
öllu. Blaðaljósmyndari franska tinia
ritsins Paris Match braut þessa’reglu en
var handsamaður af lögreglunni í
kyndiherbergi i kjallara hússins.
Flestar fréttir heimspressunnar voru i
æsifregnastil. Mikið var lagt upp úr
hinni miklu biðspennu, spáð í hreinlætis-
aðstöðu gíslanna og látið að þvi liggja að
mennirnir i vinkjallaranum væru orðnir
vitstola af hungri. Þessa frétt varð þó
viðkomandi blað að bera til baka er í Ijós
kom að vinkjallarinn var einnig matar
kjallari með nægar vistir i þrjá mánuði
fyrir fimm manna fjölskyldu.
Sumir erlendu fjölmiðlanna lögðu
megináherslu á pólitíska hlið málsins og
þó einkum skandinavísku blöðin.
Þannig var stór hluti sunnudagsforsíðu
sænska blaðsins Dagens Nyheter
helgaður gislatökunni með fyrirsögninni
„Kampen om den amerikanska basen pá
ísland - TVÁ AMBASSADÖRER
FÁNGNA". Norska Dagblaðið birti
fréttina þegar á laugardag með striðsletri
á forsíðu: „To ambassadörer i islandsk
gisseldrama — DESPERAT POLl-
TIKER TRUER STORMAKTENE".
Viðbrögðin frá Washington komu um
hádegi laugardags. að íslenskum tima.
Bandarikjaforseti lýsti yfir áhyggjunt
sínum, að slíkir atburðir gerðust í
lýðræðisrikjum. hliðhollum Banda-
ríkjunum. Hann kvað þó þjóð sina ekki
líða slíka árás á sérlega sendiherra
hennar og aðgerða mætti vænta af hálfu
bandariskra yfirvalda ef málið leystist
ekki innan tíðar.
Viðbrögð frá Moskvu voru hins vegar
lO Vikan 23. tbl.