Vikan - 05.06.1980, Blaðsíða 15
Litið inn í
höggmyndadeild
Myndlistaskólans í
Reykjavík
Kroppamir jjórir hér á síðunni voru mótaðir í eilífri mynd af
fjórum námsmönnum í höggmyndalistardeild Myndlista-
skólans í Reykjavík. Nakinn mannslíkaminn var hafður til
fyrirmyndar, líkt og við önnur verkefni í höggmyndadeild.
Lesendur sjá vœntanlega að fyrirsœtan var í Öllum tilfellum
hin sama.
Eilíföarefnið, sem þessar höggmyndir voru endanlega
mótaðar í, er steinsteypa. Reyndar getur að líta frummynd
úr pípuleir hér til hægri, en steinsteypumyndin stendur
frammi á gangi í húsnœði Myndlistaskólans við Rauðarár-
stíg. Sú sem gerði þessa pípuleirmynd heitir Margrét
Hjálmarsdóttir. Þeir verðandi listamenn, sem unnu stein-
steypumyndirnar þrjár hér neðst á síðunni, heita (miðað við
stytturnar frá vinstri): Katrín Bílddal, Ingigerður Baldurs-
dóttir og Hanna Jensdóttir.
Hún Margrét Hjálmarsdóttir, sem sést á síðunni til
vinstri, heggur þarna í svonefndan kúnststein, sem er blanda
úr sementi, rauðamöl og vikri. Margrét notar skíðagleraugu
tilað hlífa augunum við steinflisum.
21. tbl. Vikan 15