Vikan - 05.06.1980, Page 20
Framhaldssaga
Copyright 1979 hy A very Corman.
Þú ert búinn að vera, ég er búinn að vera, við
erum öll búin að vera. Sá gamli er búinn að
selja fyrirtækið. Þú færð tveggja vikna frest og
mátt nota þessa skrifstofu út vikuna til að finna
þér aðra atvinnu. Skál í botn.
Ted hafði áhyggjur allan daginn. Yrði
þaðáfall fyrir Billy ef hún stæði við orð
sín og hyrfi aftur á brott? Mundi honum
finnast hann svikinn? Hvaða rétt hafði
hún til að vaða svona inn á þá?
Sennilega hafði hún lögin sin megin.
Hann fór I hió til að róa taugarnar.
skoðaði í búðarglugga og var kominn
að hótelinu tæpum klukkutima á undan
áætlun. Hann beið i anddyrinu.
Jóhanna birtist með Billy rétt fyrir
sex. Drengurinn virtist þreyttur eftir
daginn en alsæll.
—Sjáðu pabbi. sagði hann og sýndi Ted
öskju meðgúmmíköllum.
—Gúmmíkallar, sem geta ekki dottið.
—Gúmmíkallar.
—Mamrna keypti þá handa mér.
Jóhanna virti Billy lengi fyrir sér og
lokaði svo augunum eins og þessi sjón
væri henni ofviða.
—Ég sé þig seinna. Billy. sagði hún og
faðmaði hann að sér. — Vertu nú góður
strákur.
—Sé þig mamma. Þakka þér fyrir
kallana.
Hún sneri sér við og gekk að lyftunni
án þess aðlita til baka.
Svo að Jóhanna Kramer hafði hvorki
komið til New York til að ræna syni
sínum né sættast við bónda sinn. Hún
var bara á leið til foreldra sinna og
stansaði I einn dag til að hitta Billy. For-
eldrar hennar sögðu honum seinna að
hún hefði dvalið hjá þeim i einn dag og
síðan haldið áfram til Kaliforniu. Alveg
eins og hún sagði. Jóhanna gat
greinilega ekki hugsað sér að ferðast alla
þessa leið án þess að sjá son sinn. En
lengra vildihún heldurekki ganga.
Drengurinn eyddi kvöldinu ‘án
nokkurs sýnilegs óróleika. Börn hafa
ótrúlega hæfileika til að taka heiminum
eins og hann er. Mamma var hérna.
Mantma var farin. Himinninn er blár.
Fólk borðar humar. Mamma var farin.
Pabbi var hérna. Hann hafði fengið
gúmmikalla. Gúmmikalla sem ultu ekki
um koll.
—Skemmtirðu þér vel? spurði Ted
varfærnislega.
—Já, mjög vel.
Saknarðu mömmu líka? En Ted
spurði þessarar spurningar ekki upphátt.
Ted Kramer var konu sinni gramur
fyrir að hafa gerst boðflenna i vel
skipulögðu lifi hans og tilfinningum.
Það dró úr honum kjark að sjá hana.
Einu sinni hafði hann verið kvæntur
fallegustu stúlkunni i samkvæminu.
einhvern veginn slapp hún i burtu og nú
var samkvæmið orðið leiðinlegt. Thelma
kallaði þá gerð af félagslífi sem þau
stunduðu „framhaldstengsl". Einn á
fætur öðrum. innantómt. enginn
staldraði lengi við. Ted hafði náð lengst
af öllum þeirra vinum í nánum kynnum
en það voru mánuðirnir tveir með lög-
fræðingnum Phyllis. Thelma sagði að
þau væru öll brennd börn. C'harlie
fullyrti að hann stæði nú á hápunkti
lífsins, Larry var enn á kafi í helgar-
ævintýrum.
Ted stóð einn laugardaginn á
leikvellinum og rólaði Billy við hliðina á
Thelmu sem rólaði Kim. Næsta laugar-
dag var það Charlie sem rólaði Kim við
hlið Teds. Charlie og Thelma voru nú
löglega skilin. Þau höfðu bæði haldið
það hátiðiegt með þvi að bjóða Ted i mat
sitt hvort kvöldið. ósköp gleðivana
hátiðarináltíð.
— Heldurðu að þú giftist nokkurn
tímann aftur? spurði Charlie þar sem
þeir stóðu skjálfandi á leikvellinum
meðan börn þeirra léku sér í snjónum.
—Ég veit það svei mér ekki. Þar sem ég
hef barnið er ég víst ekki það sem kallað
er á auglýsingamáli útgengileg vara.
—Ég hef verið að hugsa. . . hvað ef ég
Gardena tengi
og úðarar
f'/ V'” ' ? '\ ;
^ ii ‘V >* * *
AE.A3KA
BREIÐKDtTI
VSTEKKJARBAKKA. 109 REYKJAVÍK
20 VlKan 23. tbl,