Vikan - 05.06.1980, Síða 21
Þýðandi: Jóhanna Þráinsdóttir
Áttundi hluti
—Ég veit það. En hugsaðu um
peningana. Ég þyrfti að fylla upp i marg-
ar holur til aðstanda undir því.
Thelma hafði sín eigin sjónarmið um
giftingu í annað sinn. Hún skaut þeim
inn i algjörar hríðskotasamræður. frá
sjónvarpinu bárust glefsur úr Stundinni
okkar og i svefnherbergi Billys æpti
Óskar fýldi af grammófónplötu að hann
elskaði drasl. á meðan börnin léku sér í
feluleik um alla ibúðina.
— Í fyrsta skiptið giftistu vegna þess að
þú ert ástfanginn. Í annað skipti veistu
að ástin er bara uppfinning skáldanna og
giftist af einhverjum öðrum ástæðum.
—Bíddu. sagði hann. Billy og Kim.
Skrúfið niður i Öskari fýlda og sjálfum
ykkur í leiðinni.
—Svo. . . að seinna hjónabandið er
raunverulega til að staðfesta að þinn
eigin lifsmáti eða sjónarmið voru það
einarétta. í fyrsta skiptiðer það mamnia
þin sem þú giftist.
—Ég vissi það ekki, Thelma. Ég held að
þú ættir nú ekki að láta það fréttast.
—En i seinna skiptið giftistu sjálfum
þér.
— Mér léttir stórlega. Þá er ég sem sagt
þegargiftur.
Það var Larry sem kúventi eftir
áralöng hlaup. Hann ætlaði að kvænast
Ellen Fried. 29 ára gömlum grunnskóla
kennara. Larry hafði kynnst henni á
Fire Island og hitt hana af og til siðan á
meðan hann gerði hosur sínar grænar
fyrir öðrum konum eins og hans var
háttur. En nú hafði hann ákveðið að
leggja stúlkubilnum sínum fyrir fullt og
allt. Ted hafði hitt Ellen nokkrum
sinnum og tók eftir að hún hafði róandi
áhrif á Larry. Henni lá lágt rómur. hún
var fábrotnari og virðulegri en þær
konur sem Larry lagði venjulega lag sitt
við.
Brúðkaupsveislan var haldin i lítilli
svítu á Plaza hótelinu. Þau buðu aðeins
nokkrum vinum og nánasta skylduliði.
sem í þessu tilfellinu voru börn Larrys af
fyrra hjónabandi. 14 ára stúlka og 16
ára drengur. Ted mundi eftir þeim sem
smábörnum og varð hugsað til þess hve
timinn leið hratt.
Hann hafði einu sinni heyrt konu á
bekk í skemmtigarði segja við Thelmu:
yrði gleymd og grafin. Konan sagðist
hafa heyrt þetta í sjónvarpsumræðum.
—Þau skynja minningarnar en muna
ekki greinilega eftir neinu. Kannski man
barnið þitt ekki cftir neinu af .því sem
gerst hefur í dag.
Þennan dag hafði annað barn lamið
Biílyi höfuðið meðstálvörubíl.
—Þá er hann heppinn, sagði Ted.
Þeim fannst þetta fyndið. En seinna
hafði Ted áhyggjur af því sem Billy
mundi raunverulega muna. Og þegar
hann yrði eldri. kæmist á aldur við börn
Larrys og yxi úr grasi, hvaða áhrif hafði
hann þá haft á son sinn?
— Billy, veistu hvað pabbi gerir?
—Þú hefur vinnu.
—Já. en hvernig vinnu?
-tÁ skrifstofu.
I-Uþað er rétt. Þú hefur séð auglýsingar í
timaritum. Ég fæ fyrirtæki til að láta
svona auglýsingar i tímarit.
Skyndilega fannst Ted það afar
mikilvægt að gera Billy grein fyrir stöðu
sinni.
—Langar þig til að sjá skrifstofuna
mina? Viltu sjá hvar ég vinn?
—Auðvitað.
—Mig langar til að sýna þér það.
Næsta laugardag fór Ted með Billy til
skrifstofu sinnar á Madison Avenue og
57. stræti. í anddyrinu stóð einkennis-
klæddur dyravörður og Billy virtist
hræddur þangað til Ted dró upp kort
sem veitti þeim aðgang að byggingunni.
Stóri pabbi gat talið sér það til tekna.
hann var ekki hræddur. Skrifstofurnar
voru lokaðar. Ted opnaði útidyrnar með
lykli og kveikti Ijós. Langir gangarnir
voru barninu hið mesta völundarhús.
Ted leiddi hann aðskrifstofunni sinni.
—Sjáðu. þarna stendur nafnið mitt.
—Þetta er lika nafnið mitt, Kramer.
Hann opnaði dyrnar og leiddi Billy
inn. Skrifstofan var á 14. hæð. og úr
glugganum sást í austur og vestur yfir
57. götu.
—Ó, pabbi, þetta er svo hátt! En hvað
þetta erfallegt.
Billy þrýsti andlitinu að rúður.ni.
Svo settist hann í stól föður sins og
sneri sér i hringi.
—'Mér geðjast vel að skrifstofunni þinni.
|pabbi.
mer gegn Kramer
giftist nú aftur, eignast barn, skil aftur
og verð að borga tvöfalt barnameðlag?
—Charlie. allar þessar efasemdir eru
þýðingarlausar. Þú geturekki haft þetta
sem ástæðu til að kvænast ekki.
—Þetta skiptir svo litlu ntáli. Þau muna
ekki eftir neinu sem gerist innan við
fimm ára aldur.
Ted var henni ósammála. hann vildi
ekki samþykkja að öll umhyggja hans
— Þakka þér fyrir. félagi. Félagi ntinn.
Billy hafði sýnt öll þau litíll drengur
sem-lítur-upp-til-pabba-síns viðbrögð
sem Ted hafði búist við. Billy var félagi
hans. Hann hafði verið Ted stöðugur
félagsskapur alla þessa mánuði.
Kannski myndi hann ekki allt um ftiður
sinn frá þessu tímabili. Kannski var
honum líka sama. Það var sársaukafull
tilhugsun fyrir Ted. En þeir höfðu lifað
saman erfiða tíma. Þeir voru banda-
menn.
Ég verð alltaf tilbúinn til að hjálpa
þér. Billy. Alltaf.
—Það er bara eitt sem mér finnst ekki
fallegt hérna. pabbi. Myndirnar.
Veggirnir voru þaktir gömlurn for-
siðunt af timaritum.
— Þú æt(ir heldur að hafa myndir af
sebradýrúm.
- Af hverju teiknarðu ekki nokkrar
fyrir mig? Svo hengi ég þær upp.
Barnið teiknaði nokkur vansköpuð.
röndótt dýr á blað og pabbinn hengdi
það upp.
Foreldrar Jóhönnu komu frá Boston.
Sú reiði sem hann hafði orðið var við i
garð Jóhönnu síðast þegar þau komu
hafði breyst i hryggð.
— Þetta er svei mér athyglisvert. sagði
Harriet við hann þegar Billy var hvergi
nærstaddur. — Afi og amma sjá barnið
oftar en móðirin.
Ted gat sér þess til að þau hefðu
vonað að Jóhanna væri að koma
alkomin en ekki bara skotferð á leið til
Kaliforníu.
Hvaðgerir hún þar? Égá við, hvernig
sér hún fyrir sér?
—Veistu þaðekki?
—Ég veit ekkert um líf hennar. Harriet.
a/|1s ekkert.
— Hún vinnur fyrir Hertz. Hún er ein
af þessum stúlkum sem brosa fallega og
leigja þér bíl.
—Jæja?
—Hún yfirgaf fjölskyldu sina. barnið
sitt. til að fara til Kaliforniu og leigja
bila. sagði Harriet.
Ted var nokkuð sama um hversu
óvirðulegt starfið var i augunt Harriet.
Hugur hans dvaldi lengur við allan
þann fjölda karlmanna sent Jóhanna
hlaut að hitta í gegnum þetta sama
starf.
—Hún spjarar sig á eigin spýtur. segir
hún. Svo leikur hún lika tennis, sagði
Sam. En það var engin sannfæring i
röddinni, fremur eins og hann væri að
verja gerðir dóttur sinnar fyrir sjálfum
sér.
—Þó það nú væri, sagði Ted.
—Já. Hún varð þriðja i einhverri
keppni.
En það var engin hrifning í röddinni.
föður hennar virtist ekki þykja þetta
nægilegt til aðafsaka brottför hennar.
Ted stakk upp á að þau borðuðu öll
saman um kvöldið. i fyrsta skipti -eftir
skilnaðinn. og þau samþykktu. Þau fóru
á kínverskt veitingahús og Sam vann
baráttuna um hver skyldi borga á þeint
forsendum að hann væri eldri.
— Mér datt svolitið arðvænlegt i hug.
23. tbl. Vikan 21