Vikan


Vikan - 05.06.1980, Blaðsíða 23

Vikan - 05.06.1980, Blaðsíða 23
— Ég vinn við auglýsingar. — Ja hérna. Ertu giftur? — Fráskilinn. Égá einn son. En þú? — Ég á þrjú börn. Ég giftist Dottie McCarthy. Manstu ekki eftir henni? — Vist man ég eftir henni, Frankie. Og manstu ekki eftir þvi að við slógumst einu sinni? Ég flæktist i jakkanum minum og þú lamdir mig eins og harðfisk. Ted hafði verið niu ára og þessi slags- mál voru honum ógleymanleg. Hann hafði orðið sér til athlægis, hörfað undan höggunum þar sem hann gat ekkert séð. Hann gleymdi aldrei þessari skömm. Slagsmál sem töpuðust af þvi að jakkinn váfðist utan um hausinn á honum. — Slagsmál? Milli okkar? — Manstu ekki eftir þeim? — Nei. Hver vann? — Þú. — Jæja, það var leiðinlegt. Paradís tvö og þrjú. Er það ekki synd? -Jú. Þeir stóðu þarna tvistigandi. — Teddy, mikið var gaman að hitta þig. Komdu við á barnum ef þú átt leið um nágrennið. Ég kem til vinnu klukkan fimrn á daginn. — Þakka þér fyrir. Frankie. Við sjáumstseinna. Hann langaði ekki til að halda upp á feriugsafmælið með þvi að fá sér drykk á Gilligansbar þar sem hann hafði aldrei komið. i hverfi þar sem fátt minnti lengur á gömlu æskustöðvarnar. Hann skálaði fyrir sjálfum sér i koníaki eftir að Billy var farinn að sofa. Til hamingju með fertugsafmælið, gamli minn. En innra með sér þráði hann helst að hverfa aftur til þeirra afmælisdaga er' hann sat við útvarpstækið. hlustaði á barna- timann ogsötraði heitt súkkulaði. TÓLFTI KAFLI Jim O'Connor hringdi til Teds og bað hann að finna sig á skrifstofu sinni. Þegar hann kom inn sat O'Connor við skrifborðið sitt með flösku af viskíi fyrir framan sig og tvö glös. Klukkan var 9.30 að morgni. — Drykkurinn er á kostnað fyrir- tækisins. — Hvaðgengurá? — Þú ert búinn að vera, Ted. — Hvað? — Þú ert búinn að vera, ég er búinn að vera, við erum öll búin að vera. Sá gamli er búinn að selja fyrirtækið. Þú færð tveggja vikna frest og mátt nota þessa skrifstofu út vikuna til að finna þér aðra atvinnu. Skál i botn. Ted hellti sér í glas. Það fór um hann hrollur en annars hafði viskíið litil áhrif. Hann hefði eins getað hellt þvi i þerri- pappír. — Er hann búinn að selja fyrirtækið? Hver keypti? — Keðjufyrirtæki í Houston. Þeir álíta að þar sé framtiðarmarkaðurinn' fyrir sumarleyfi og tómstundagaman. Þeir keyptu nöfn timaritanna af gamla manninunt og ætla alveg að skipta um starfsfólk. Þar sem við erum ekki kunnugir í Suðurrikjunum er ekki lengur þörf fyrir okkur. — En við kunnum tökin á þessari vinnu. — Þeir vilja ráða sitt eigið fólk. Við erum atvinnulausir. Starfsfólkið á vinnumiðlunarskrifstof- unum var frekar uppörvandi við Ted. En hann vissi sjálfur að kunnátta hans var á sliku sérsviði að möguleikar hans á nýju starfi voru ekki niiklir. Hann komst að því að þrír staðir koniu til greina en öll þau fyrirtæki buðu lægra kaup en hann hafði haft. Hann gat ekki séð hvernig hann átti að fara að því að lifa ef hann tæki svona boði. Hann fór samt i viðtöl, en fremur til að æfa sig fyrir frekari atvinnuleit. Og atvinnuleitin tók svo sannarlega á taugar manns sem varð að flýta sér að fá vinnu áður er. - nn þyrfti að játa það fyrir vinum og vai...a mönnum að hann hefði misst þá gömlu. Dagar liðu án þess að annað gerðist en það að hann var sendur manna á milli i fyrirtækjunum. Hann sótti um atvinnu leysisbætur. Hann fór með bók með sér á vinnumiðlunarskrifstofurnar svo hann þyrfti ekki að sitja og stara á veggina á meðan hann beið. Þriðju vikuna sem hann var atvinnulaus var jafnvel viðtöl- unum farið að fækka. Og fostudag | nokkurn |x;gar hann hafði engu að sinna i nenia biða eftir sunnudeginum og at- í vinnuauglýsingum sunnudagsblaðanna | ákvað hann að fara frekar með Ettu og tíilly á leikvöllinn en i bíó eða eyða deginum í lestur. Og |iað rann upp fyrir honum að hann átti í enn meiri erfið- leikum en hann hafði gert sér grein fyrir. Hann reyndi að verjast tómleikatil- finningunni með þvi að gera það að átta tima starfsdegi að leita að atvinnu. Hann fór snemma á fælur og klæddi sig eins og hann væri á leið til vinnu. Hann fór niður í bæ og notaði bókasafnið á 42. götu sem skrifstofu. Hann notaði almenningssímann þar til að hringja og spyrjast fyrir og las á milli þess sem Býður upp á heitan og kaldan mat fyrir árshátíðir, gift ingar-, fermingarveislur og þorrablót. Seljum kalt borö Þríréttaða máltíð Snittur Vinsamlegast hringið og reynið viðskiptin. Símar: 86880 og 85090. ir, gift- mr VACNHÖFDA 11 REYKJAVÍK SlMAR 86880 og 85090 23. tbl. Vikan 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.