Vikan


Vikan - 05.06.1980, Síða 38

Vikan - 05.06.1980, Síða 38
Vikan og Neytendasamtökin Þaö er ekkert leyndarmál, aö fallegar umbúðir hafa þó nokkur áhrif á okkur, þegar við stöndum í versluninni og veltum fyrir okkur hvaðskal ofan í innkaupavagninn. Ósnyrtilegar umbúðir, klaufalega lagaðar og illa merktar höfða sannarlega ekki til neytandans. Þó kann vel að vera, að innihaldið í súpupakkanum, sem blátt áfram er Ijótur, sé margfalt lystugra en innihaldið í skrautlega súpu- pakkanum við hliðina. Það er þvi til mikils að vinna fyrir fram- leiðendur að fá vöru sina setta i álitlegar umbúðir. Það er margt sem þarf að taka tillit til varðandi umbúðir. Þær þurfa að vera ódýrar svo verð vörunnar hækki ekki mikið þeirra vegna. Þær verða að þola núning og alla vega misjafna meðferð. Þær verða að vera vörn gegn bakteríum og svona mætti lengi telja. Eins skiptir það miklu máli, að umbúðir séu þannig gerðar, að auðvelt sé að pakka vörunni og þær fari vel í búöarhillunum. Einnig verða umbúöirnar að vera fyrir augað, svo neytandinn freistist til að taka vöruna í körfuna. Frá sjónarhóli neytandans er það mikill kostur, að á umþúðunum megi sjá innihaldið og að auðvelt sé að opna umbúðirnar. Svo viljum við að umbúðirnar taki sem minnst pláss í sorpfötunni og auðvelt sé að eyða þeim i sorp- eyðingarstöðvum eða á annan hátt. Það er þvi ekkert gamanmál að þóknast öllum þessum sjónar- miðum. Umbúðahönnuðir þykjast sjálfsagt leggja sig alla fram en einhvern veginn tekst þeim þó oft ansi illa að þóknast okkur neyt- endum. Kannast ekki allir t.d. við þá stöðu sem upp getur komið i eldhúsinu, þegar ekki virðist nokkur vegur að komast að inni- haldinu i sardínudósinni? Lykillinn, sem átti aðfylgja, löngu horfinn og aldeilis ómögulegt að koma við dósahníf. Það endar oftast með, að hamar og beittur hnífur er tekið fram og eftir góða stund glittir í innihaldið — en þaö er eins víst að áður en hægt er að njóta þess, séum við búin að sulla og sóða allt út i kringum okkur. Eru það við, sem umbúðahönnuðir hafa í huga? Umbúðir þeirrar vöru sem neytendur fá í hendur frá framleiðendum verða að uppfylla margvíslegar kröfur. Það er ekki bara vegna okkar neytenda sem hönnuðirnir leggja heilann i bleyti. Við skulum aðeins velta þessu máli fyrir okkur. 38 Vikan 23. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.